Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 67

Morgunblaðið - 31.03.2001, Síða 67
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2001 67 DAGSKRÁ kvikmyndahátíðarinnar Kvikar myndir: Pólitík er sem hér segir: 31. mars. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursm. Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarmyndir: Kl. 13 Titicut Follies eftir Fredrick Wise- man. Kl. 14.30 Painters Paintings eft- ir Emile De Antonio. MÍR-salurinn: Kvikmyndas. kl. 20. Hiroshima Mon Amour (1959) eftir Alain Resnais. Frönsk/japönsk. 90 mín. 1. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursm.: Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarmyndir: Kl. 13 Le Joli Mai eftir Chris Marker, kl. 15 Án titils eftir Pétur Má Gunnarsson. MÍR-salurinn: Kvikmyndasýning kl. 20. Metropolis (1926) eftir Fritz Lang. Þýsk. 120 mín. 2. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursmyndir: Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarm.: Kl. 13 myndir eftir John Grierson. Kl. 15 Triumph des Willens eftir Leni Rief- enstahl. MÍR-salurinn. Kvikmyndasýning kl. 20. Verkfall (1924) eftir Sergei Eis- enstein. 3. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursm.: Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarm.: Kl. 13 Titicut Follies eftir Fredrick Wiseman. Kl. 14.30 Painters Paintings eftir Emile De Antonio. MÍR-salurinn: Kvikmyndasýning kl. 20. Bóndi (1974 ) eftir Þorstein Jónsson. Grenada, Grenada, Grenada mín (1967) eftir Romans Karmen. 5. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursmyndir: Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarmyndir: Kl. 13 Le Joli Mai eftir Cris Marker. Kl. 15 Án titils eftir Pétur Má Gunnarsson. MÍR- salurinn: Kvikmyndasýning kl. 20. Reynsluár Tékkóslóvakíu (1969) eftir A. Koloshin. Rússnesk. 6. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursmyndir: Kl. 15 ýmsir titlar. Gryfja: Heimildarmyndir: Kl. 14. Kvikmyndir Þorsteins Jónssonar, Gagn og gaman, Fiskur undir steini Lífsmark, Öskudagur. MÍR-salurinn: Kvikmyndasýning kl. 20. Berlin: die Sinfonie der Gross- stadt (1929), Walther Ruttman. 7. apríl. Opið milli 12 og 17. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursmyndir: Kl. 14 ýmsir titlar. Gryfja: Málþing kl 15: Kalda- stríðið og kvikmyndapólitíkin. 8. apríl. Opið 12 - 17. Hátíðin endar. Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðursmyndir. Gryfja: Heimildarmyndir: Kl. 14 kvikmyndir Þorsteins Jónssonar: Gagn og gaman Fiskur undir steini Lífsmark Öskudagur. Dagskrá hátíðarinnar Kvikar myndir  AÐALFUNDUR Félags um Þjóðlagasetur séra Bjarna Þor- steinssonar verður haldinn í safn- aðarheimili Siglufjarðarkirkju í dag, laugardaginn 31. mars, kl. 17. Á fundinum verða áætlanir félagsins varðandi framkvæmdir við Þjóðlagasetrið ræddar og teikningar sýndar. Þá verður sagt frá þjóðlagahátíð á Siglufirði dag- ana 10.-15. júlí. Kvikmyndir og pólitík Rangt var farið með opnunartíma Nýlistasafnsins í tengslum við kvik- myndahátíðina Kvikar myndir sem stendur yfir til 8. apríl. Safnið er opið frá kl. 12–17 alla daga nema mánu- daga. Er beðist velvirðingar á þessu. Hljómleikar til heiðurs Jóni Múla Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að tónleikar til heiðurs Jóni Múla Árnasyni, áttræðum, voru sagðir vera þá um kvöldið. Rétt er hins vegar að þeir verða í kvöld kl. 20.30 í Salnum, Tónleikahúsi Kópa- vogs. Miðaverð er 1.500 kr. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer sunnudaginn 1. apríl kl. 10.30 í óvissuferð þar sem ekkert er gefið uppi um gönguleið nema að þar er að sjá fallegan foss. Þetta er um 3 klst. auðveld ganga og er verð 1.400 kr. fyrir félaga og 1.600 kr. fyrir aðra. Brottför frá BSÍ og þar eru farmiðar seldir í miðasölu. Ekki þarf að panta fyrirfram í dags- ferðir Útivistar og allir eru velkomn- ir. Óvissuferð á vegum Útivistar JÓHANN Sigurjónsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, verður á meðal þátttak- enda í hreysti-móti, sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni í Varmá í Mos- fellsbæ í dag. Á mótinu, sem hefst klukkan þrjú og stendur til klukkan fimm, munu 22 karlmenn og 12 konur keppa um svokallaðan Galaxy-bikar. Hjalti „Úrsus“ Árnason, einn af skipuleggjendum mótsins, sagði að keppt væri í ýmsum þrautum og því þyrftu keppendur að vera í góðu lík- amlegu ástandi. Einnig þyrfti útlitið að vera í lagi því einnig væri dæmt út frá því. Hjalti sagðist búast við góðri stemmningu á mótinu en miðaverð er 1.200 krónur fyrir fullorðna og 600 fyrir börn. Að sögn Hjalta hefur áhuginn fyrir mótum af þessu tagi farið mjög vaxandi, bæði hér og er- lendis, og sagði hann að áhuginn héld- ist í hendur við aukna vitund almenn- ings um kosti heilbrigðs lífernis. Í tilefni af mótinu bíður Íþróttamið- stöðin í Varmá upp á sérstakt sund- tilboð, sem gildir fram að páskum. Allir þeir sem skokka á upphituðu hlaupabrautinni fyrir framan íþrótta- húsið fá frítt í sund á eftir. Hreysti- mót í Mosfellsbæ FERÐAFÉLAG Íslands efnir til skíðagönguferðar á Holtavörðu- heiði 1. apríl. Brottför frá BSÍ er kl. 9 f.h. á sunnudag og eftir við- komu á skrifstofu FÍ í Mörkinni 6 verður ekið norður á Holtavörðu- heiði og sprett þar vel úr skíða- göngusporum. Fararstjóri í þess- ari ferð er Sigríður H. Þor- bjarnardóttir, sem er þaulvön fararstjórn. Að þessu sinni er af- sláttur fyrir félagsfólk af fargjaldi, félagsmenn greiða 3.200 kr. en aðrir 3.500 kr. Skíðagöngu- ferð hjá FÍ ♦ ♦ ♦ NÝTT dagblað hefur göngu sína mánudaginn 23. apríl næstkomandi, að því er segir í fréttatilkynningu. Blaðið á að heita Fréttablaðið og verður gefið út af samnefndu fé- lagi. „Fréttablaðinu verður dreift frítt í 75 þúsund eintökum inn á hvert heimili á höfuðborg- arsvæðinu og í samstarfi við DV annars staðar á landinu. Blaðið verður 24–32 síður að stærð og kemur út alla virka daga, frá mánudegi til föstu- dags. Í því verða stuttar, skýr- ar og upplýsandi fréttir af at- burðum og viðfangsefnum heima og erlendis. Áhersla verður lögð á að gefa yfirlit um það sem í boði er til afþreyingar og fróðleiks hvern dag vikunnar. Blaðið er óháð og tekur ekki afstöðu til pólitískra deilumála en mun leitast við að fjalla um skoðanir og viðhorf sem fréttaefni,“ segir í tilkynning- unni. Ritstjóri Fréttablaðsins verð- ur Einar Karl Haraldsson, að því er fram kemur í tilkynning- unni. Fulltrúi útgefenda verður Gunnar Smári Egilsson og fréttastjóri Pétur Gunnarsson. Gert er ráð fyrir 16 blaða- mönnum á ritstjórn auk ann- arra starfsmanna. Fyrirtækið Póstflutningar ehf. hefur verið stofnað til þess m.a. að annast dreifingu Fréttablaðsins. MorgunblaðiðArnaldur Einar Karl Haraldsson er ritstjóri Fréttablaðsins. Stefnt að útkomu Fréttablaðsins 23. apríl
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.