Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 73
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 73
Fermingarbörn munu aðstoða í
guðsþjónustunni, lesa ritningarorð
og bænir. Barnastarf verður með
hefðbundnum hætti, en því stýrir
Magnea Sverrisdóttir æskulýðs-
fulltrúi. Organisti verður Hörður
Áskelsson.
Gerðubergskórinn
og kaffisala
í Breiðholtskirkju
ANNAN sunnudag í aðventu fáum
við heimsókn í Breiðholtskirkju í
Mjódd.
Þá kemur Gerðubergskórinn, kór
félagsstarfsins í Gerðubergi, og
syngur við messu kl. 14 undir stjórn
Kára Friðrikssonar, en sú hefð hefur
skapast að kórinn syngi við messu í
kirkjunni þennan sunnudag og hefur
sú heimsókn ávallt verið mjög vel
heppnuð. Einnig munu þátttakendur
úr félagsstarfinu, þau Eyjólfur R.
Eyjólfsson, Jakob Þorsteinsson, Mar-
grét Eyjólfsdóttir og Svanhildur Sig-
urjónsdóttir lesa ritningarlestra og
bænir og Kristjana V. Jónsdóttir fer
með ljóð. Sólveig Jónsdóttir guð-
fræðingur prédikar. Vakin skal at-
hygli á því að hér er um að ræða
breyttan messutíma frá því sem
venjulegast er í Breiðholtskirkju.
Að messu lokinni verður síðan
kaffisala Kvenfélags Breiðholts en
félagið hefur alla tíð stutt safn-
aðarstarfið og kirkjubygginguna af
miklum dugnaði og rausnarskap.
Það er von okkar að sem flestir
safnaðarmeðlimir og aðrir velunn-
arar kirkjunnar og félagsstarfsins í
Gerðubergi hafi tækifæri til að taka
þátt í guðsþjónustunni og styðja
síðan starf kvenfélagsins með því
að þiggja veitingar á eftir.
Sr. Gísli Jónasson.
Morgunblaðið/Sverrir
Háteigskirkja. Aðventutónleikar stúlkna-
og barnakóra Háteigskirkju kl. 17.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14.
Skoðuð verður sýning Bjargar C. Þorláks-
son í Þjóðarbókhlöðunni undir leiðsögn
Einars Sigurðssonar landsbókavarðar.
Kaffiveitingar í Þjóðarbókhlöðunni. Þátt-
taka tilkynnist í síma 511-1560. Allir vel-
komnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
aflokkurinn
leði hefur unnið
ess í hugum
smanna fyrir
minnilegar og
gar frásagnir
kunnra
dinga.
fríður Leósdóttir
n Þórðarson
ún Ólafsdóttir
a Eyjólfsdóttir
r Foss
VEFUR félags áhugafólks um
Downs-heilkenni var formlega opn-
aður hinn 6. desember sl. í Lista-
safni Reykjavíkur. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra opnaði vefinn
að viðstöddum félagsmönnum og
öðrum gestum en hann er að finna
á slóðinni: http://www.downs.is
Tilgangur vefjarins er að safna
saman á einn stað þeim upplýs-
ingum sem tengjast Downs-
heilkenni og félaginu. Á honum er
að finna ýmsan fróðleik, sögur og
myndir sem nýtast ættu bæði að-
standendum og öðrum áhugasöm-
um. Þangað er einnig hægt að
senda inn fyrirspurnir og skrá sig
þar í félagið.
Morgunblaðið/Þorkell
Björn Bjarnason opnar vefinn.
Vefur opn-
aður um
Downs-heil-
kenni