Morgunblaðið - 22.10.2005, Page 2
2 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
10.
sæti
Metsölulisti Eymundsson
Skáldverk
Karin Alvtegen er ein-
stök meðal norrænna
spennusagnahöfunda
SVIK
fádæma spennandi
bók, enda tilnefnd
glæpasaga ársins
2003 í Svíþjóð
„Þetta er bók fyrir
spennufíkla“
Dagbladet
„Svik lætur hárin rísa
á höfði manna og
endirinn hefði svo
sannarlega glatt
Hitchcock gamla“
Expressen
KREFST REFSINGAR
Bandaríkjamenn sögðu í gær að
Sameinuðu þjóðirnar yrðu að bregð-
ast strax og kröftuglega við skýrslu
sem gerð var fyrir samtökin um
morðið á Rafik Hariri. Fram kemur
þar að háttsettir Sýrlendingar hafi
átt þátt í tilræðinu gegn Hariri. Tal-
ið er hugsanlegt að gripið verði til
viðskiptabanns gegn Sýrlandi.
Framleiðsla undirbúin
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
hefur verið falið að undirbúa fram-
leiðslu innrennslisvökva á vegum
spítalans en það er meðal annars
gert í ljósi hættu á að inflúensu-
faraldur breiðist út um heimsbyggð-
ina sem taka myndi fyrir möguleika
á innflutningi vökvans.
Lögmaður myrtur í Bagdad
Lögmaður sem starfað hefur fyrir
einn af sakborningum í réttarhöld-
unum gegn Saddam Hussein og liðs-
mönnum hans, fannst myrtur í
Bagdad í gær. Manninum, Sadoun
al-Janabi, var rænt í fyrradag.
Landsfundur VG hófst í gær
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, gagnrýndi harðlega í setn-
ingarræðu landsfundar flokksins þá
stöðu efnahagsmála sem ríkisstjórn-
in hefur kallað yfir landsmenn og
benti einnig á að ójöfnuður hefði
aukist geigvænlega á undanförnum
árum.
Hefur gefið 14 milljónir
Friðrik Sigtryggsson hefur haft
þann háttinn á undanfarin ár að gefa
Barnaspítala Hringsins peningagjöf
á afmælisdaginn sinn. Í gær fagnaði
Friðrik 88 ára afmæli sínu og gaf af
því tilefni ávísun upp á fjórar millj-
ónir en allt í allt hefur hann gefið
spítalanum 14 milljónir.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 43
Úr verinu 15 Minningar 48/55
Viðskipti 18 Skák 59
Erlent 20/23 Messur 60
Minn staður 24 Dagbók 62/65
Akureyri 25 Myndasögur 62
Suðurnes 26 Víkverji 62
Landið 26 Velvakandi 63
Árborg 27 Staður&stund 64/65
Menning28/31, 66/69 Af listum 69
Daglegt líf 32/33 Bíó 70/73
Ferðalög 34/35 Ljósvakamiðlar 74
Umræðan 36/46 Staksteinar 75
Forystugrein 38 Veður 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt fyrrum starfsmann sam-
býlis fyrir fatlaða í tveggja ára fang-
elsi fyrir kynferðisbrot gegn þroska-
heftri konu sem var vistmaður á
sambýlinu.
Ákærði neitaði sök en var eigi að
síður sakfelldur af ákæru ríkissak-
sóknara fyrir samræði við konuna og
að hafa notfært sér það að hún gat
ekki spornað við samræðinu sökum
andlegra annmarka sinna.
Framburður konunnar var stað-
fastur að mati dómsins og ekkert
kom fram í málinu um að hún hefði
borið kala til ákærða. Þvert á móti
virtist henni hafa verið fremur vel til
hans. Rakið er í dómi að hún hafi
borið starfsmenn heimilisins röng-
um sökum en aldrei orðið uppvís að
því að bera þá röngum sökum um
önnur eins brot og hér um ræddi.
Með vísan til stöðugs framburðar
hennar auk tæknirannsókna og
læknisskoðana var talið sannað að
ákærði hefði brotið gegn henni.
Að mati héraðsdóms voru skýring-
ar ákærða á málavöxtum ótrúverð-
ugar og voru brot hans talin alvar-
legt trúnaðarbrot. Átti hann sér
engar málsbætur að mati dómsins.
Var hann auk fangelsisrefsingarinn-
ar dæmdur til að greiða konunni 800
þúsund krónur í bætur auk sakar-
kostnaðar upp á 754 þúsund krónur.
Málið var dæmt 13. október af
héraðsdómurunum Arnfríði Einars-
dóttur dómsformanni, Guðjóni St.
Marteinssyni og Kristjönu Jónsdótt-
ur. Verjandi var Lilja Tryggvadóttir
hdl. og sækjandi Sigríður J. Frið-
jónsdóttir frá ríkissaksóknara.
Braut gegn
þroskaheftri konu
NÓG hefur verið um að vera á tónlistarhátíðinni Ice-
land Airwaves sem fram fer í Reykjavík. Hátíðinni lýk-
ur í kvöld en í gærkvöldi var mikill mannfjöldi saman
kominn á skemmtistaðnum NASA þar sem Stórsveit
Nix Noltes tróð upp. Mannskapurinn var í góðu stuði en
svo var einnig víðar um bæinn enda ótal skemmtilegir
viðburðir á dagskránni.
Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag er farið fögrum
orðum um söngkonuna Bryndísi Jakobsdóttur, sem
sögð er eitt mesta efni sem sést hafi árum saman. | 69
Morgunblaðið/Árni Torfason
Mikil stemmning á Airwaves
VIÐRÆÐUR um kaup FL Group á
danska flugfélaginu Sterling, sem er
í eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma
Haraldssonar og Jóhannesar Krist-
inssonar, eru nú á lokastigi og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins á
aðeins eftir að ganga frá formsatrið-
um. Standa vonir manna til að hægt
verði að tilkynna mjög fljótlega um
kaupin, væntanlega strax á morgun.
Fons keypti Sterling í mars í vor fyr-
ir 375 milljónir danskra króna, jafn-
gildi nær fjögurra milljarða króna á
þeim tíma og í júní var gengið frá
kaupum á Maersk Air sem sameinað
var Sterling í síðasta mánuði.
Eftir því sem næst verður komist
er stefnan sú að Sterling verði áfram
rekið sem sjálfstætt flugfélag og
verði það niðurstaðan er engan veg-
inn víst að til samstarfsslita komi á
milli Icelandair og SAS; Jørgen
Lindegaard, forstjóri SAS, sagði í
samtali við Morgunblaðið að verði
Sterling áfram rekið sem sjálfstætt
félag skipti ekki öllu máli hver eig-
andi þess er.
Verði af kaupunum muni SAS þó
skoða vandlega hvernig uppbygging
fyrirtækjanna verði. „FL Group er
að verða fjárfestingarfélag og þeir
geta auðvitað fjárfest í þeim félögum
sem þeir vilja. En það er annar hand-
leggur ef Icelandair og Sterling
verða sameinuð og þá myndum við
segja upp samstarfssamningnum við
Icelandair,“ segir Lindegaard.
Spurður um afstöðu SAS verði
Sterling áfram rekið sem sjálfstætt
flugfélag segir Lindegaard að menn
muni þá meta það þegar og ef samn-
ingar náist um kaup FL Group á
Sterling.
„Ef Sterling verður áfram alger-
lega sjálfstætt félag þá skiptir ekki
öllu máli hver á það. En það verður
auðveldara að taka afstöðu til þessa
máls þegar það er orðið ljóst hvað
menn nákvæmlega ætla sér.“ Spurð-
ur um hvort viðræður hafi verið á
milli FL Group og SAS vegna hugs-
anlegra kaupa á Sterling svarar
Lindegaard því til að félögin hafi um
50 ára skeið rætt saman. „Þannig að
auðvitað gerum við það og við höld-
um áfram að vinna saman þangað til
eitthvað annað kemur í ljós.“
Viðræður um
Sterling á lokastigi
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Í DAG verður haldin hátíð á
Skólavörðustíg til að fagna
fyrsta vetrardegi en að henni
standa búðareigendur við stíg-
inn ásamt Landssambandi
sauðfjárbænda og Markaðs-
ráði kindakjöts.
Einn af hápunktum dagsins
verður klukkan tvö í dag þeg-
ar gestum og gangandi verður
boðið upp á kjötsúpu að hætti
Sigga Hall. Þar að auki verða
tónleikar í 12 tónum og hin
ýmsu gallerí munu standa fyr-
ir sýningum. Verslunareig-
endur við Skólavörðustíginn
hafa staðið fyrir ýmsum uppá-
komum undanfarin ár, en
þetta er annað árið sem boðið
verður upp á heita kjötsúpu
fyrsta vetrardag.
Skólavörðu-
hátíð í dag
GÆSLUVARÐHALD yfir 16 ára
gömlum dreng, sem fór fyrir hópi
manna sem frömdu mannrán við
Bónus á Seltjarnarnesi 2. september
síðastliðinn, hefur verið framlengt
um 8 vikur, eða til 16. desember
næstkomandi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá ríkissaksóknara, sem fer
með málið, er ástæða þessa langa
gæsluvarðhalds sú að um síbrota-
mann er að ræða.
Drengurinn fór fyrir hópi fimm
manna sem námu mann á brott og
neyddu hann til að taka sparifé sitt
út úr hraðbanka. Notuðu mennirnir
ræsibyssu við verkið. Viðurkenndu
mennirnir að ástæða mannránsins
hafi verið sú að þeir voru að inn-
heimta skuld, þó ekki vegna fíkni-
efnamála.
Áfram í
haldi vegna
mannráns
MAÐURINN
sem lést á
fimmtudags-
morgun þegar
hann lenti í drif-
skafti dráttarvél-
ar sinnar hét Örn
Einarsson, bóndi
í Miðgarði í Staf-
holtstungum í
Borgarfirði. Örn var fæddur 31. des-
ember 1947 og lætur eftir sig eig-
inkonu og fjögur börn.
Lést í
vinnuslysi
♦♦♦