Morgunblaðið - 22.10.2005, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 73
KRINGLANÁLFABAKKI
Skelltu þér á
alvöru mynd.
Það er alltaf
hægt að þek-
kja myndir
sem eiga eftir
að keppa um
Óskarinn.
R.H.R / MÁLIÐ
Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée
Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins.
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”).
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar
Mörgæsirnar halda í jólaleiðangur sýnd.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
OG
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
V.J.V. TOPP5.IS
ROGER EBERT
SÉRHVER DRAUMUR Á SÉR UPPHAF
Kvikmyndir.com
H.J. / MBL
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
DREW BARRYMORE JIMMY FALLON
Hún fílar vinnuna, Hann íþróttir .
Munu þau fíla hvort annað?
AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
FLIGHT PLAN kl. 6.05 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára.
FLIGHT PLAN VIP kl. 1.40 - 3.45 - 6.05 - 8.15 - 10.30
WALLACE AND GROMIT Ísl tal. kl. 1.50 - 4 - 6.05
WALLACE AND GROMIT m/ensku.tali. kl. 6.05 - 8.15 - 10.30
CINDERELLA MAN kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
GOAL kl. 8.15 - 10.30
VALIANTm/- Ísl tal. kl. 1.50 - 3.40
SKY HIGH kl. 1.40 - 3.50
CHARLIE AND THE ... kl. 1.40 - 3.45
RACING STRIPESm/- Ísl tal. kl. 2
PERFECT CATCH kl. 4.10 - 6 - 8.15 - 10.30
TRANSPORTER 2 kl. 8.15 - 10.30 B.i. 16
WALLACE AND GROMIT
- Ísl tal.kl. kl.12 - 2 - 4 - 6
FLIGHT PLAN kl. 8 - 10.15 B.i. 12
MUST LOVE DOGS kl. 6.15
VALIANT m/- Ísl tal. kl. 12 - 2 - 4
SKY HIGH kl. 12 - 2.05
6
Vinsælasta fjölskyldumyndin
á Íslandi í dag
FJÖLÞJÓÐASAMFÉLAGIÐ á Ís-
landi á sína fulltrúa á fótboltavell-
inum og ber það hið hógværa nafn
Africa United. Það hafði spilað ut-
an deilda í ein 11 ár er það loksins
fékk þátttöku í deildakeppni KSÍ.
Nýliðar hefja keppni í 3. deild og
eins gott að hafa hugfast að þar er
samkeppnin ekki síður tvísýn og
vægðarlaus en í þeim efri. Leik-
menn þurfa að skora mörk til að
vinna.
Nýja myndin hans Ólafs Jó-
hannessonar fjallar um baráttu
þessa innflytjendaliðs fyrir lífi
sínu, hún er af nýja skólanum, er
e.k. sambland raunveruleikasjón-
varpsins sem tröllríður sjónvarps-
tækjum veraldar þessi misserin og
hefðbundinnar heimildarmyndar.
Liðið þarf á fjármagni að halda til
að halda út tímabilið og þar með
að myndin geti orðið að veruleika,
svo Ólafur hefur píslargöngu frá
Heródesi til Pílatusar í viðskipta-
heimi borgarinnar til að fá bak-
hjarla. Það hefst að lokum, síðan
fylgir hann liðinu eftir, filmar
kempurnar í sorg og í gleði í fram-
andi veröld jaðarvalla hins ís-
lenska fótboltaheims.
Prímusmótor AU er Marokkó-
búinn Zico, sem búinn er að lenda
í fjárhagslegum hremmingum í
nýja landinu og einbeitir sér nú að
boltanum, þar sem hann sér sókn-
arfæri, jafnvel frama og reynslu
sem hann getur nýtt sér í föð-
urlandinu. Hann er hinn andlegi
leiðtogi og framkvæmdastjórinn.
Hollendingurinn Einar Xavier að-
stoðar við þjálfunina, Serbinn
Zlatko og Nígeríumaðurinn Paul
eru mikið í sviðsljósinu innan um
félaga sína frá Gambíu, Kósóvó,
Íslandi og víðar.
Zico hefur litlu gleggri hugmynd
um hvað bíður hans í deildarleikj-
unum en áhorfendur myndarinnar.
Með þessa óvissu öðru fremur að
vopni skella Ólafur og hans menn
sér í tökurnar. Þeim hefur lukkast,
með miklum fjölda tökuvéla og
frábærri klippingu, að gera hressa
og jákvæða mynd um hálfgerða ut-
angarðsmenn í neðstu deild í fót-
boltanum á Íslandi. Liðsmennirnir
bera höfuðið hátt og halda virð-
ingu sinni, nota völlinn til að vera
„kóngar um sinn“, byggja upp
sjálfsvirðinguna, sem er upp og of-
an eins og gengur. Í upphafi eru
menn á bjartsýnisfylleríi: Í fyrsta
leiknum hrúgast mörkin inn, þá
segir einn leikmannanna á bekkn-
um; „Stjóri, skiptu mér inn á og
ég skora eins og ég get.“ Leik-
urinn endaði í tveggja stafa tölu á
móti núlli og menn tóku að nálgast
jörðina.
Þótt hún komi vitaskuld við
sögu forðast Ólafur að flækja
myndina sína með kynþáttaum-
ræðu eða vandamálum hópsins ut-
an vallar (að undanskilinni giftingu
Zlatkos og spaugilegri Lund-
únareisu Zicos á fund Charl-
tonstjórans, Alans Curbishleys),
fylgist þess í stað með því hvernig
litríkur hópurinn samlagast,
splundrast, vinnur en einkum tap-
ar. Zico segir sem svo í byrjun
myndarinnar að utan vallar séu
allir vinir, innan hans taki við al-
vara lífsins.
Einmitt þessi hugsunarháttur
verður þriðjudeildarliðinu mestur
fjötur um fót. Það er ekki fyrr en
undir lokin sem Zico og félagar
uppgötva að menn verða að hafa
gaman af hlutunum til að þeir
gangi vel. Hvort sem það er utan
vallar eða innan. Þá fer árangur að
koma í ljós, menn að skora. Ann-
ars á Zico við heilmargt að stríða.
Fyrir utan eigið reynsluleysi,
skort á markvissri þjálfun og hæfi-
leikum plagar agavandamál liðs-
mennina, jafnaðargeðið er hverf-
andi og mórallinn upp og ofan,
minnir stundum á sandkassastríð.
Hin jákvæða nálgun Ólafs við
viðfangsefnið skilar sér í bráð-
skemmtilegri mynd, hann og grón-
ir samstarfsmenn hans hafa
greinilega ósvikið gaman af því
sem þeir eru að gera, það smitar
út í salinn. Þeir halda léttu tempói
út myndina, útkoman kemur því
talsvert á óvart, á löngum köflum
áttar maður sig ekki alveg á því
hvort það er ósvikin gamanmynd
eða heimildarmynd sem rennur
hjá á tjaldinu. Ég hef grun um að
Africa United sé sitt lítið af hvoru,
t.d. virðist laganeminn Paul fara
eftir fyrirfram ákveðnum línum á
köflum. Hvað sem því líður sýnir
Ólafur enn og aftur að í honum
búa ótvíræðir hæfileikar sem hann
er að ná sífellt betri tökum á. Ólaf-
ur er kominn með traustan hóp
samstarfsmanna sem skilar sínu
vel. Einkum er tónlistarnotkunin
áhrifarík, sótt í allar áttir líkt og
leikmennirnir og fellur mjúkt að
efninu, áður hefur verið minnst á
klippingu og tökur. Africa United
á örugglega eftir að gera það gott
á kvikmyndahátíðahringnum, þar
sem hún er nú þegar farin að
sanna sig, og almennir bíógestir
eiga örugglega eftir að hafa ósvik-
ið gaman af þessu skondna sjón-
arhorni á vinsælustu íþróttagrein
veraldar.
Sameinaðir stöndum vér
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn og
Borgarbíó Akureyri
Heimildarmynd. Leikstjórn og handrit:
Ólafur Jóhannesson. Kvikmyndataka:
Ragnar Santos. Tónlist: Barði Jóhanns-
son. Aðalpersónur: Zakaria Anbari,
Zlatko Krickic, St Paul Edeh, Alex Lopez
Munoz, Einar Xavier Sveinsson. 95 mín-
útur. Poppoli Pictures og Zik Zak Film-
works/Bavaria Film International. 85
mín. Ísland. 2005.
Africa United Sæbjörn Valdimarsson
Lukkast hefur „með miklum fjölda tökuvéla og frábærri klippingu að gera
hressa og jákvæða mynd um hálfgerða utangarðsmenn í neðstu deild í fót-
boltanum á Íslandi,“ segir m.a. í dómnum.