Morgunblaðið - 22.10.2005, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Miðasala Þjóðleikhússins:
Sími 551-1200
www.leikhusid.is
Aukasýningar
20/11, 27/11 og
4/12 - 90. sýning!
Allra síðustu sýningar!
Rio de Janeiro. AP. | Brasilíumenn
munu greiða um það atkvæði á
morgun hvort takmarka eigi sölu á
skotvopnum og skotfærum. Benda
kannanir eindregið til þess, að það
verði fellt.
Könnun, sem birt var á fimmtu-
dag, sýndi, að um 52% ætluðu að
segja nei við tillögunni en aðeins 34%
já. Gengur hún út á, að vopnasala
verði takmörkuð við yfirvöld, herinn
og öryggisverði en með undantekn-
ingum þó hvað varðar veiðimenn á
landsbyggðinni, byssusafnara og þá,
sem stunda skotfimi.
Ofbeldi er óvíða meira en í Bras-
ilíu en þar falla um 40.000 manns fyr-
ir skotvopnum á ári hverju eða 21,72
menn á hverja 100.000 íbúa. Er land-
ið í öðru sæti í heiminum að þessu
leyti en Venesúela efst með 34,3
dauðsföll af þessum sökum á hverja
100.000 íbúa.
Í síðasta mánuði sýndu kannanir,
að um 80% ætluðu að styðja tillög-
una um takmarkanir á skotvopna-
sölu en þá tóku hagsmunasamtök
byssueigenda, byssusala og byssu-
framleiðenda við sér og hófu mikla
áróðursherferð, ekki síst í sjónvarpi.
Var því haldið fram, að takmarkan-
irnar gengju gegn réttindum þegn-
anna og myndu gera þá varnarlausa
frammi fyrir alls konar óþjóðalýð.
Byssunni
spáð sigri í
Brasilíu
!"#!
45
6
6
545 5
!"
#
$%&
'("
)* +
("
-$./,
01
.
-/,
,
!
%
+23&1
$%&&'&
$(
$')
*'++
,-"".
/-01!
%,/
.*4,
+*13
.,,&1
%
*33
,
/
5
$24116
77).,+3,&/, 3-/1.*,
3,%1
2!.3"45..6
47!3
.6
8
9
9
8
%
&8/1
-#,
8
$231
+*13
8
./
.*
!
,98,3
&.
&3.,
$5/,6
:1/ 0
$0#1
2$24
.31
.,3,
%
3,%1
.
,/
-
03&1
-$5/16
,//
$,/
90#
.31
#1/ 0
$0#1
2$24
5 .
%
3,%16
:1/ 0,
.31
!
;!
-
$.39
6
%+<6
/.,
%
..<.
.31
=1
.,3,6
.,3
.
.,
$.391
%+<1
3,%1
-
+*16
>
;
#1/ 0
-
#&
/
./,?
!
:5;
;!.3"4!!+
7013
3< 2!.3"45
!4
<5;.6
"1<0!
"#7
90&1
#1/ > 6
#81?
""$#7
$231
1&. -
#3,1
!(
-3
>! 6;!!
#81?
%#7
90&1
-
%
, @;@
2&
!'
).,,#A
BC3
BDE
Washington. AFP. | Bandarískir og evr-
ópskir vísindamenn óttast, að ísþekj-
an yfir sjó á norður- og suðurskautinu
geti brotnað upp og valdið því, að
sjávarborð hækki meira en áður hef-
ur verið gert ráð fyrir.
Ísþekjan hefur verið að brotna upp
og vísindamennirnir segja, að það
geti haft þau áhrif, að landfastur ís og
skriðjöklar verði óstöðugri og bráðni
því meira en ella.
„Vegna þessa er hugsanlegt, að
sjávarborð hækki meira og fyrr en
talið var og það er grafalvarlegt mál,“
sagði Peter Clark, prófessor í jarðvís-
indum við Oregon-háskóla.
Gæti hækkað um metra
Núverandi líkön gera ráð fyrir, að
sjávarborð muni hækka vegna bráðn-
unar og vegna þess, að vatn þenst út
við hita en á móti kemur, að hækkandi
hitastigi fylgir aukin úrkoma, sem
fellur þá sem snjór á heimskautunum.
Landfastir jöklar kunna því að hækka
aðeins eins og raunar má sjá merki
um á Grænlandi nú þegar. Samt sem
áður er gert ráð fyrir, að sjávarborð
hækki um 50 sm á þessari öld. Brotni
hins vegar ísþekjan upp með fyrr-
greindum afleiðingum, gæti sjávar-
borðið hækkað um heilan metra.
Clark bætti því við, að yrði engin
breyting á veðurfari næsta árþúsund-
ið, gæti Grænlandsjökull horfið að
mestu og sjávarborð hækkað um allt
að sex metra.
Óttast um
ísþekjuna
STJÓRNVÖLD í Sýrlandi ítrekuðu
í gær að þau bæru enga ábyrgð á
morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi
forsætisráðherra Líbanons. Í rann-
sóknarskýrslu, sem unnin var á
vegum Sameinuðu þjóðanna og birt
var á fimmtudag, segir að fyrir-
liggjandi gögn bendi til þess að Sýr-
lendingar hafi komið að morðinu.
Þykir skýrslan fallin til þess að
auka enn þrýstinginn á stjórnvöld í
Sýrlandi, sem sæta nú vaxandi ein-
angrun.
„Ég tel að skýrslan sé langt frá
því að vera faglega unnin og að hún
sé ekki fallin til að leiða okkur nær
sannleikanum í málinu,“ sagði
Mehdi Dakhlallah, upplýsingaráð-
herra Sýrlandsstjórnar, í viðtali við
Al-Jazeera-sjónvarpsstöðina. Hann
tók fram að hann hefði ekki séð
skýrsluna en hann hefði fylgst með
fréttaflutningi af innihaldi hennar.
Hún væri fyrst og fremst pólitísk í
eðli sínu og hefði að geyma „til-
búnar ásakanir“.
Hariri var myrtur í sprengjutil-
ræði í febrúarmánuði. Böndin bár-
ust strax að Sýrlendingum. Morðið
kallaði fram gífurlega reiði í garð
Sýrlendinga í Líbanon og víðar og
varð til þess að þeir ákváðu að kalla
heim liðsafla sinn í Líbanon þar
sem þeir og bandamenn þeirra
höfðu verið allsráðandi. Frá því að
þetta gerðist hafa Sýrlendingar
sætt vaxandi einangrun og þrýst-
ingi. Bandaríkjamenn hafa farið
fremstir í flokki í þeim efnum en
einnig hafa Evrópusambandið og
Sameinuðu þjóðirnar þrýst á stjórn-
völd í Damaskus um að veita þær
upplýsingar sem farið hefur verið
fram á og aðstoða við rannsókn
málsins. Almennt er litið svo á að
stjórn Bashars Assads forseta hafi
ekki orðið við þessari kröfu.
Sakaðir um blekkingar
Það mat kemur og fram í skýrsl-
unni, sem þýski rannsóknardómar-
inn Detlev Mehlis vann ásamt að-
stoðarmönnum sínum að beiðni
Sameinuðu þjóðanna. Í henni eru
Sýrlendingar sakaðir um að hafa
reynt að blekkja þá sem gerðu
skýrsluna. Er Farouk al-Sharaa, ut-
anríkisráðherra Sýrlands, beinlínis
sagður hafa logið í bréfi sem hann
sendi nefndinni er annaðist skýrslu-
gerðina.
Ákvörðun um að myrða Hariri
„gæti ekki hafa verið tekin án þess
að hún hefði verið samþykkt af
háttsettum manni í öryggisþjónustu
Sýrlands og morðið gæti ekki hafa
verið skipulagt án aðstoðar sam-
starfsmanna úr leyniþjónustu Líb-
anons,“ segir m.a. í skýrslunni. Sýr-
lendingar og bandamenn þeirra í
Líbanon stjórnuðu öllu öryggiskerfi
landsins er Hariri var myrtur.
Í skýrslunni er ekki fullyrt að As-
sad Sýrlandsforseti hafi beinlínis
komið að morðinu. Á hinn bóginn
segir þar að vitni eitt fullyrði að
bróðir hans og mágur hafi verið í
hópi þeim „sem ákvað að myrða
Hariri“.
Raunir Lahouds magnast
Andstæðingar Sýrlendinga í Líb-
anon hafa fagnað niðurstöðum
skýrslunnar. Magnast nú kröfur um
að Emile Lahoud, forseti Líbanons,
sem er hliðhollur Sýrlendingum,
segi af sér. Í skýrslunni er látið að
því liggja að honum hafi verið kunn-
ugt um að til stæði að myrða Hariri.
Vísað er til þess að fjórir nánir að-
stoðarmenn hans hafi komið að til-
ræðinu en menn þessir voru hand-
teknir í ágústmánuði. Lahoud hefur
lýst sig saklausan af ásökunum
þessum. Stjórnvöld í Sýrlandi hafa
jafnan haldið því fram að þau hafi á
engan veg komið nærri morðinu.
Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa
ítrekað þá kröfu sína að Sýrlend-
ingar láti af öllum afskiptum af
innri málefnum Líbanon. Stjórn
George W. Bush Bandaríkjaforseta
hefur aukið mjög þrýstinginn á
stjórn Assads, sem nýtur lítils
stuðnings á meðal annarra araba-
ríkja.
„Mikið áhyggjuefni“
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði skýrsl-
una í gær „mikið áhyggjuefni“ og að
viðbrögð stjórnvalda vestra myndu
koma fram í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Kvað hún „greinilegar
vísbendingar“ að finna í skýrslunni
um að Sýrlendingar hefðu ekki sýnt
samstarfsvilja við rannsókn máls-
ins.
Talsmaður Evrópusambandsins
hvatti Sýrlendinga í gær til að veita
alla þá aðstoð sem farið yrði fram á
við frekari rannsókn á morði Har-
iris. Yrðu stjórnvöld ekki við þeirri
kröfu myndu hagsmunir þeirra
skaðast.
Skýrslan verður rædd á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna í næstu viku.
Skýrslan er 54 síður. Við gerð henn-
ar voru tekin viðtöl við rúmlega 400
manns og höfundar hennar fóru yfir
meira en 60.000 skjöl.
Sýrlandsstjórn segist
saklaus af morði Hariris
Stjórn Assads
forseta sætir vax-
andi þrýstingi
eftir að birt var
skýrsla um morð-
ið á Rafik Hariri
AP
Ferðamenn ganga framhjá risastóru veggspjaldi í Beirút með mynd af Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og styttu píslarvottanna. Í skýrslu SÞ er Sýrlandsstjórn sökuð um að hafa samþykkt morðið á Hariri.
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
♦♦♦
Sydney. AFP. | Rúmlega sjötugur
maður, sem varð bráðkvaddur í bíl
sínum á bílastæði við stórverslun í
Melbourne í Ástralíu, var þar líklega
í heila viku án þess að nokkur áttaði
sig á því.
Þegar einhverjir urðu loks til að
athuga með manninn, sem sat undir
stýri á bílnum, kom auðvitað í ljós að
hann var látinn og var að auki kom-
inn með miða fyrir stöðumælasekt
undir þurrkublaðið. Hafa yfirvöld á
staðnum beðið fjölskyldu mannsins
afsökunar á þessu og segja að stöðu-
mælavörðurinn komi aðeins á bíla-
stæðið einu sinni í viku. Þar séu bílar
stöðugt að koma og fara og fólk því
upptekið af sjálfu sér en ekki öðrum.
Látinn en
sektaður samt