Morgunblaðið - 22.10.2005, Side 4
4 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yndisleg bók handa stelpum
Emma og Alice fæddust á sama
deginum og hafa verið vinkonur alla
tíð síðan. Þær hittast á hverjum
degi og eru harðákveðnar í að vera
vinkonur að eilífu. En dag nokkurn
uppgötvar Emma að Alice býr yfir
mögnuðu leyndarmáli …
Stórskemmtileg saga eftir
metsöluhöfund bókanna Stelpur í
stressi, Stelpur í stuði, Stelpur í
strákaleit, Stelpur í sárum
og Lóla Rós sem notið hafa
gríðarlegra vinsælda.
á aldrinum 9–13 ára
www.jpv.is
HINN heimsþekkti enski kylfingur,
Nick Faldo, hefur verið ráðinn til
þess að hanna golfvöll í Þorláks-
höfn, sem áætlað er að taka í notk-
un haustið 2008. Faldo er nú stadd-
ur á Íslandi og ræddi við
fjölmiðlamenn á Nordica hóteli í
gær. Áætlaður stofnkostnaður við
verkið er um 800 milljónir króna en
einnig á að rísa þar úrvalsklúbbhús
og öll aðstaða í kringum völlinn á
að vera í hæsta gæðaflokki.
Á fundinum kom fram að einka-
hlutafélagið Golf ehf. hefði samið
við fyrirtæki Faldos, Faldo design,
um hönnun vallarins sem rísa á við
hlið núverandi golfvallar í Þorláks-
höfn. Talsmaður Golf ehf. er Mar-
geir Vilhjálmsson, framkvæmdar-
stjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. Í
máli hans kom fram að félagið hefði
jafnframt samið við Sveitarfélagið
Ölfus og eigendur Hraunstorfunnar
í Ölfusi varðandi leigusamninga á
landinu, auk þess sem MP fjárfest-
ingarbanki myndi halda utan um
fjárhagslegan þátt verkefnisins og
laða að fjárfesta. Um er að ræða
metnaðarfullt verkefni, en stefnt er
að því að völlurinn verði á heims-
mælikvarða þannig að sá möguleiki
verði fyrir hendi að halda hér stór-
mót á evrópskan mælikvarða.
Faldo sagði á fundinum að verk-
efnið væri mikil áskorun fyrir sig:
,,Þetta er afskaplega spennandi fyr-
ir okkur því við þurfum að móta
golfvöll úr landi sem er ólíkt öllu
öðru sem við þekkjum. Möguleik-
arnir eru óþrjótandi og ljóst að við
þurfum að vanda okkur við upp-
bygginguna.“
Miklir möguleikar
Faldo sagði að miklir möguleikar
væru fyrir hendi: ,,Aðstæðurnar
sem um ræðir bjóða upp á gífurlega
mikla möguleika, en strandvellir á
borð við þennan eru ekki nema um
115-120 á heimsvísu. Auk þess er
svartur sandur fyrir hendi, sem er
mjög eftirsóknarvert, og því höfum
við alla möguleika á því að hanna
völl sem vakið gæti heimsathygli.
Ég sé fyrir mér mikla litardýrð þar
sem blandast saman grænt gras,
gyllt strá, svartur sandur, blár him-
inn og hvítir golfboltar. Veðurfarið
er ekki sérstakt áhyggjuefni þar
sem við erum að gera völl við sjáv-
arsíðuna og þeir bera þess merki að
vera í köldu loftslagi stóran hluta
ársins,“ sagði Faldo.
Nick Faldo hannar golfvöll á Íslandi
Morgunblaðið/Sverrir
Hönnuðurinn Nick Faldo.
Eftir Kristján Jónsson
DRÖG að nýrri viðbragðsáætlun
Landspítala – háskólasjúkrahúss
(LSH) voru kynnt sviðsstjórum,
landlækni og sóttvarnalækni ásamt
fleirum í gær. Áætlunin tekur til
þriggja atburðaflokka. Það er hóp-
slysa og hópveikinda, t.d. af völdum
farsótta, eitrana og geislunar. Einn-
ig vegna rekstrartengdrar vár, sem
getur t.d. stafað af bruna, jarð-
skjálfta og bilunum. Og loks ófyr-
irséðra atburða sem geta valdið
álagi á sjúkrahúsið. Áætlunin gerir
ráð fyrir stigskiptingu í viðbragði
sjúkrahússins og eru stigin fjögur
eftir alvarleika atburðanna.
Viðbragðsstjórn LSH var skipuð
í mars 2004 og hófst strax und-
irbúningur viðbragðsáætlunarinnar,
sem nú er komin á lokastig. Ing-
ólfur Þórisson, framkvæmdastjóri
tækni og eigna LSH, er formaður
stjórnarinnar. Hann taldi að um-
ræðan um HABL-vírusinn hafi ýtt
undir stofnun viðbragðsstjórnarinn-
ar. Nú séu þessi mál mikið í sviðs-
ljósinu vegna umræðunnar um
fuglaflensu.
„Við höfum verið með hópslysa-
áætlun en nú bætast við eitranir,
geislavá og farsóttir í þessari nýju
viðbragðsáætlun,“ sagði Ingólfur.
„Einnig viðbrögð við bilun á sjúkra-
húsinu sem getur valdið því að það
verði ekki eins vel starfhæft. Þessi
áætlun er sett upp eftir kerfi sem
stundum er kölluð SÁBF, það er
stjórnun, áætlanir, bjargir og fram-
kvæmd. Það er í samræmi við áætl-
anir Almannavarna.“
Áætlunin er mjög ýtarleg og nær
til sjúkrahússins í heild, auk þess
sem hver deild fær sinn verkþátta-
lista og hver lykilstarfsmaður eða
starfsmenn fá gátlista til að fara
eftir verði gripið til áætlunarinnar.
Þar kemur fram hvað starfsmað-
urinn á að gera, hvað hann á að
framkvæma, hverju hann á að
stjórna og hvaða bjargir hann hefur
til þess. Ingólfur sagði að tugir
starfsmanna LSH hafi lagt hönd á
plóginn við gerð áætlunarinnar.
Stofnaðar voru vinnunefndir sér-
fræðinga um viðbrögð sjúkrahúss-
ins við hópslysum, eitrunum, far-
sóttum, geislavá og rýmingu
húsnæðis.
„Út úr þessari vinnu fáum við
einnig lista yfir hvað við þurfum að
gera til að spítalinn verði enn betur
í stakk búinn til að takast á við
þessi verkefni,“ sagði Ingólfur. „Ef
það kemur upp farsótt þá þarf að
grípa til ákveðinna aðgerða, t.d.
boða starfsfólk eftir gátlistum, yf-
irfara hvaða sjúklingar geta útskrif-
ast til að rýma fyrir nýjum, útbúa
einangrunarrými, huga að loftræst-
ingu o.fl. Komi upp eitrun eða
geislaslys þá þarf t.d. að útbúa
hreinsunargátt sem getur afkastað
fjölda sjúklinga. Eins tekur áætl-
unin á birgðahaldi ýmiss konar og
hvaða búnað við þurfum að hafa til-
tækan, svo sem lyf, mótefni, tæki
og ýmsa rekstrarvöru.“
Sólveig Þorvaldsdóttir, verkfræð-
ingur og fyrrverandi forstjóri Al-
mannavarna, kom til liðs við við-
bragðsstjórn LSH á liðnu vori.
Sólveig gerði grein fyrir áætluninni
á fundinum og þeim nýjungum sem
í henni felast. Einnig því sem enn
er óunnið. Starfsmenn LSH leggj-
ast nú yfir drögin og eiga að skila
athugasemdum sínum fyrir lok
þessa mánaðar. Stefnt er að því að
ljúka samningu áætlunarinnar um
miðjan nóvember næstkomandi.
Viðbragðsáætlun Land-
spítala komin á lokastig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lagðar eru línur fyrir viðbrögð við hópslysum í drögum að viðbragðsáætl-
un Landspítalans. Myndin er tekin við æfingu hópslyss í Hvalfirði.
GERT er ráð fyrir því að hátt í
eitt þúsund manns taki þátt í
þingi Norðurlandaráðs sem
haldið verður í Reykjavík, dag-
ana 25. til 27. október nk. Búist
er við að um fimmtíu blaðamenn
frá öllum Norðurlöndunum
muni fylgjast með þinginu.
Rannveig Guðmundsdóttir, for-
seti Norðurlandaráðs, segir
mörg málefni liggja fyrir
þinginu, þar á meðal málefni
norðurskautsins og samstarf við
Rússland. Einnig verður m.a.
rætt um norræna nýsköpunar-
og atvinnumálastefnu, flæði
ólöglegs vinnuafls frá nýju Evr-
ópusambandsríkjunum og man-
sal.
Þá er stefnt að því að taka
ákvarðanir um skipulagsbreyt-
ingar, m.a. um þær tillögur að
fækka norrænum ráðherraráð-
um úr átján í ellefu.
Á þinginu tekur Noregur við
formennsku í ráðherraráðinu af
Dönum. Gert er ráð fyrir því að
nýr forsætisráðherra Noregs,
Jens Stoltenberg, muni í upp-
hafi þingsins gera grein fyrir
helstu áherslum Norðmanna á
komandi ári. Þar á eftir fara
fram þingumræður með þátt-
töku allra norrænu forsætisráð-
herranna.
Rætt um málefni Færeyja
Rannveig segir að málefni
Færeyja, og ósk þeirra um að fá
sjálfstæða aðild að Norður-
landaráði, verði einnig tekin upp
á fundi forsætisnefndar og for-
sætisráðherra Norðurlandanna í
næstu viku. Hún segir að
ákvörðun í þessum efnum verði
ekki tekin á þinginu, en það sé
stórt skref að málið verði tekið
upp við ráðherrana. Það skipti
miklu fyrir Vestur-Norðurlöndin
að við þessu máli verði hreyft.
Þingið fer fram á Nordica
Hóteli, en áður hefur það verið
haldið í Háskólabíói og á Hótel
Sögu.
Þing Norðurlandaráðs í Reykjavík
Búist við nær
eitt þúsund
þátttakendum
HEITI sjónvarpsþáttaraðarinnar
„Íslenski bachelorinn“, sem sýnd
er á Skjá einum, verður ekki breytt
þrátt fyrir að Íslensk málnefnd
hafi gert athugasemd við notkun
orðsins „bachelor“.
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins, sagði of
seint að breyta heiti þáttaraðar
sem þegar væri byrjað að sýna.
Hann sagði að með notkun enska
orðsins „bachelor“ væri verið að
tengja íslensku þættina við erlenda
fyrirmynd þeirra, sem er vel þekkt
hér á landi. Með því er farið að til-
mælum í samningi við erlendan
eiganda hugmyndarinnar og vöru-
merkis þáttanna, „Bachelor“.
Magnús benti á sambærilega nafn-
gift þáttaraðarinnar „Idol –
Stjörnuleit“ þar sem erlenda heitið
tengdi íslenska þætti við erlenda.
Í bréfi Íslenskrar málnefndar
segir m.a. að nefndin hafi fengið
„ábendingar um afleitt heiti á sjón-
varpsþætti á Skjá einum, „Íslenski
bachelorinn““. Harmar nefndin að
sjónvarpsstöðin noti hráa ensku-
slettu í heiti þáttarins og ekki verði
betur séð en að enska orðið bache-
lor eigi sér fullgilt íslenskt jafn-
heiti, þ.e. piparsveinn.
Magnúsi þykir piparsveinn ekki
fullnægjandi samsvörun við
„bachelor“. „Er ekki piparsveinn
einhver sem ekki vill vera í sam-
bandi,“ spurði Magnús. „Við vitum
að þetta er ekki hinn fullkomni titill
á þáttinn, en hyggjumst ekki
breyta honum.“ Magnús sagði að
Skjá einum hefðu ekki borist aðrar
formlegar kvartanir vegna nafns
þáttaraðarinnar en frá Íslenskri
málnefnd. En hafa einhverjir
kvartað óformlega?
„Móðir mín,“ svaraði Magnús.
„Bachelorinn“ verð-
ur ekki piparsveinn
Íslensk málnefnd gerir athugasemd