Morgunblaðið - 22.10.2005, Side 24
Húsavík | Fálki einn sat sem
fastast í grjótinu meðfram veg-
inum á milli hafnarsvæðanna á
Húsavík þegar ljósmyndari átti
þar leið um fyrir skömmu.
Fálkinn skeytti engu um bíla-
umferðina né ágang ljósmynd-
ara og sat sem fastast þar til
flautað var á hann.
Þarna var á ferðinni, að sögn
kunnugra, ungur fálki og hafði
hann verið þarna á sveimi und-
anfarna daga. Viðmælandi ljós-
myndara sagði fálka hafa dval-
ið norðan við bæinn að
undanförnu og gat sér til að
um sama fugl væri að ræða.
Kannski var hann að koma
sér undan samkeppni við veiði-
menn um rjúpuna því eitthvað
hefur verið um rjúpur í og
nærri bænum. Hér er meiri
friður fyrir byssuglöðum veiði-
mönnum en upp til fjalla og
kannski auðveldara að eltast
við þessar værukæru bæj-
arrjúpur.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fálki á ferð
Tignarlegur
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ég er flutt í gamla bæinn minn. Eftir sex
ára fjarveru ákvað ég að snúa heim á æsku-
slóðirnar og ala þar upp þrjá syni mína.
Héðan á ég góðar minningar og hér vil ég að
strákarnir mínir vaxi úr grasi og verði stór-
ir og sterkir. Það var ekki auðveld ákvörðun
að fara frá litla bænum mínum austur á
fjörðum en svona geta rætur verið sterkar.
Fyrir sex árum bjuggu rúmlega tvöþús-
und og tvöhundruð manns í Grindavík. Ég
þekkti alla í kaupfélaginu og allir þekktu
mig. Bærinn hefur vaxið og dafnað á þeim
árum sem ég var í burtu og bæjarbragurinn
breyst. Ég þekki fáa í búðinni en rekst þó
stundum á kunnugleg andlit. Hef smám
saman verið að finna mig á gamla staðnum
mínum og átta mig á því að margt hefur
breyst. Einmitt það er svo skemmtilegt, að
horfa á bæinn sinn verða „fullorðinn“.
Grindavík er snyrtilegur bær og hér ætti
fólk á öllum aldri að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Íþróttaaðstaðan er frábær, hér er
góður skóli, öflugt tónlistarlíf og víða má
finna merktar gönguleiðir um áhugaverð
svæði. Það er stutt að fara í höfuðborgina
enda hafa margir valið þann kost að búa í
Grindavík og sækja vinnu til Reykjavíkur.
Íbúum hefur fjölgað hratt undanfarið og má
nefna að á síðasta skólaári bættust við
fimmtíu og þrír nemendur í grunnskólann.
Hér búa nú rúmlega 2.600 manns og heilu
íbúðahverfin byggjast hratt upp.
Fyrir nokkrum árum var opnað Salt-
fisksetur Íslands í Grindavík og hefur það
sett svip sinn á bæjarlífið. Þar er hægt að
fræðast um sölu og verkun saltfisks en
Grindvíkingar hafa löngum verið drjúgir
við saltfisksvinnslu og því við hæfi að hafa
slíkt safn hér suður með sjó. Setrið hefur
notið mikilla vinsælda bæði innlendra og er-
lendra ferðamanna en ferðamannþjónusta
er einmitt vaxandi atvinnugrein hér.
Grindavík er þó fyrst og fremst sjávarpláss.
Hér eru rekin mörg öflugustu sjáv-
arútvegsfyrirtæki landsins og næg atvinna.
Lífið við höfnina hefur sinn sjarma og alltaf
nóg að gera. Hafnarlífið einkennir fjöl-
breytileiki flotans en hér landa trillur, neta-
bátar, línuskip og togarar. Löndunarhöfnin
er sú kvótahæsta á landinu . Innsiglingin
hefur verið dýpkuð, breikkuð og varin með
nýjum sjóvarnargörðum og er orðin miklu
öruggari en áður. Það er því óhætt að segja
að hér sé bjart framundan.
Úr
bæjarlífinu
GRINDAVÍK
EFTIR SÓLNÝJU PÁLSDÓTTUR
lagaval og skrifaði stór-
skemmtilega lýsingu á
lögunum í sýningunni í
leikskrá.
Í sýningunni Rokk í 50
ár er farið í gegnum
rokksöguna og þau lög
eða flytjendur teknir fyr-
ir sem skiptu sköpum fyr-
ir þróun rokksins. Horn-
Höfn | Hornfirska
skemmtifélagið frum-
sýndi „Rokk í 50“ ár á
Hótel Höfn um síðustu
helgi í mestu úrkomu sem
sögur fara af á Horna-
firði. Rigning og flóð
komu ekki í veg fyrir að
gestir skemmtu sér hið
besta á sýningunnni. Upp-
selt var á frumsýninguna
og fullt út úr dyrum.
Fimmtíu manna hópur frá
Seyðisfirði var sólarhring
á leiðinni til Hornafjarðar
til að sjá sýninguna og lét
einn úr hópnum þau orð
falla að þau sæju ekki eft-
ir því ferðalagi.
Heiðursgestur á frum-
sýningunni varAndrea
Jónsdóttir, dag-
skrárgerðarmaður á Rás
2, en hún lagði á ráðin um
firskir skemmtikraftar
bregða sér í gervi hinna
ólíkustu listamanna víðs-
vegar að úr rokksögunni.
10 söngvarar og fimm
manna hljómsveit, sem
reyndar verður níu
manna í sumum lögum
þegar blásarar og slag-
verksleikarar bætast við.
Ljósmynd/Þórhildur
Nanna Halldóra Imsland í gervi Janis Joplin.
Tætt og tryllt á Höfn
Borgfirðingar ogSkagamenn fundu
sex kindur í réttum í haust
sem voru úr Kjósinni og
höfðu því brotið lög og
reglur um sauðfjárvarnir
með því að fara á milli
varnarhólfa. Dauðadómur
liggur við þegar ferfæt-
lingar eiga í hlut. Sigrún
Haraldsdóttir yrkir:
Dimmt er líf og dyntótt allt,
dreyri moldu farðar.
Með lífi sínu Golsa galt
grösin norðan fjarðar.
Rúnari Kristjánssyni
varð hugsað um landsins
gagn og nauðsynjar:
Þjóðin sér með sínum augum,
svekkt á mörgum rosabaugum,
lýðræðið í landsins málum
langt frá réttum metaskálum!
Og enn yrkir Rúnar:
Daprast margt sem dafna ætti,
drenglyndi og annað slíkt.
Eykst á móti að aumum hætti
undirlægju stimamýkt.
Því vill ódyggð allra gerða
eitri læða í marga sál.
Þjóðlíf okkar er að verða
eins og glatað hneykslismál!
Í minningu kindar
pebl@mbl.is
Þingeyjarsveit | Sveitarstjórn Þingeyjar-
sveitar samþykkti á fundi sínum í fyrradag
samhljóða eftirfarandi bókun varðandi
þekkingarsetur Þingeyinga: „Sveitar-
stjórn skorar á fjárlaganefnd Alþingis,
þingmenn og ráðherra sem koma að mála-
flokknum að tryggja
rekstrarfé til áfram-
haldandi rekstrar set-
ursins og stuðla þannig
að uppbyggingu mennt-
unar, rannsóknastarfs
og atvinnulífs á svæðinu
enda hefur Þekkingar-
setur Þingeyinga haft
mjög jákvæð áhrif á
samfélagið í Þingeyjarsýslum.“
Hefur þessari áskorun verið komið á
framfæri við ráðherra byggðamála,
menntamálaráðherra, þingmenn norðaust-
urkjördæmis og fjárlaganefnd Alþingis.
Vonast sveitarstjórn til þess að gert verði
ráð fyrir föstum nægum fjárveitingum til
rekstrar Þekkingarseturs Þingeyinga til
framtíðar þannig að starfsfólk, íbúar, fyr-
irtæki og stofnanir á svæðinu búi ekki við
sífellda óvissu um starfsemina sem hefur
sannað gildi sitt svo um munar.
Í tilkynningu frá sveitarstjórn Þingeyj-
arsveitar segir ennfremur að margir há-
skólanemar hafi aðstöðu í þekkingarsetr-
inu. Klasi þekkingarstarfsemi og
rannsókna hafi myndast kringum Þekk-
ingarsetrið, sem er í sama húsnæði á Húsa-
vík og Náttúrustofa Norðausturlands,
Fræþing og Virkjum alla – rafrænt sam-
félag. Forstöðumaður Þekkingarsetursins
er Óli Halldórsson. Nánari upplýsingar má
finna á www.hac.is.
Þekkingar-
setrið verði
áfram rekið
Skagafjörður | Sveitarstjórn sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar samþykkti eftirfar-
andi bókun samhljóða á fundi sínum sl.
fimmtudag: „Sveitarstjórn Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar fagnar því að kirkju-
ráð ætli að minnast 900 ára afmælis bisk-
upsstóls á Hólum á næsta ári.
Hvetur sveitarstjórn kirkjuráð til að
nota tækifærið og efla Hólastað sem
starfsstöð vígslubiskup m.a. með því að
flytja þangað störf, svo sem umsjónar-
menn kirkjugarða og prestssetra.
Á undanförnum árum hefur mikil upp-
bygging orðið á Hólastað og væntir sveit-
arstjórn þess að kirkjuráð og kirkjuþing
styðji þá uppbyggingu með myndarlegum
hætti á afmælisári.“
Hólastaður
styrkist
frekar
♦♦♦
Egilsstaðir | Ný bílasala í eigu JG-
bíla hefur starfsemi á Egilsstöðum
laugardaginn 22. október nk. Fyr-
irtækið rekur jafnframt eitt stærsta
bifreiðaverkstæði staðarins og var
að sögn eigendanna, þeirra Jónasar
Jónassonar og Grétars Karlssonar,
ákveðið að færa út kvíarnar þegar
samkomulag um umboðssölu fyrir
B&L var í höfn.
Í tilefni opnunarinnar verður há-
tíð hjá JG-bílum um helgina, þar
sem nýjustu bílarnir frá Hyundai,
Renault, Land Rover og BMW og
vélsleðarnir frá Arctic Cat verða
sýndir. Opnunarhátíðin snýr þó ekki
eingöngu að nýju bílasölunni, heldur
verður einnig haldið upp á flutning
JG-bíla í glænýtt húsnæði sem fyr-
irtækið hefur reist við Kaupvang.
Nýja húsnæðið er um 525 m² að
grunnflatarmáli og skiptist grunn-
flöturinn nokkurn veginn til helm-
inga á milli bílasölunnar annars veg-
ar og verkstæðisins hins vegar.
Jafnframt hefur verið innréttuð
kaffistofa ásamt fundaraðstöðu á
millilofti, en alls eru sjö manns starf-
andi hjá JG-bílum, þar af fimm á
verkstæðinu. JG-bílar hafa verið í
eigu Jónasar og Grétars frá árinu
2001.
JG-bílar hefja starf-
semi á Egilsstöðum