Morgunblaðið - 22.10.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 29
MENNING
ÍSLENSKA óperan og EXTON hafa undirritað samstarfssamning sem fel-
ur í sér að EXTON kemur að kostun tveggja 42 flatskjáa sem settir verða
upp annars vegar í anddyri Óperunnar og hins vegar í glugga miðasöl-
unnar sem snýr út að Ingólfsstræti. Óperan mun nota skjáina til upplýs-
ingamiðlunar um starfsemi Óperunnar auk þess að kynna þar samstarf sitt
við önnur fyrirtæki atvinnulífsins. Þar verða meðal annars birtar myndir
úr sýningum Óperunnar sem og texti til upplýsinga fyrir gesti og gangandi
vegfarendur.
Á myndinni undirrita Bjarni Daníelsson óperustjóri og Haraldur Flosi
Tryggvason, framkvæmdastjóri EXTON, samninginn.
Samstarf Óperunnar
og EXTON
SAMNINGAR hafa tekist milli
bókaforlagsins Veraldar og
spænsku útgáfusamsteypunnar
Santillana um útgáfu á Þriðja
tákninu, óútkominni glæpasögu
Yrsu Sigurðardóttur, í átján
spænskumælandi löndum. Frá
þessu var gengið á bókastefnunnni
í Frankfurt í gær. Santillana er
með aðalbækistöðvar á Spáni en
rekur sjálfstæð dótturforlög í tutt-
ugu öðrum löndum. Áður hefur
verið gengið frá samningum um
útgáfu á Þriðja tákninu á átta
tungumálum með söluheimildum
til að minnsta kosti tólf landa.
Þessi nýja íslenska glæpasaga,
sem kemur út í byrjun nóvember,
fer því á markað í að minnsta
kosti þrjátíu löndum austan hafs
og vestan á næstu misserum.
Pétur Már Ólafsson, sem stend-
ur að Veröld ásamt Ólafi Ragn-
arssyni, veit ekki til þess að geng-
ið hafi verið frá útgáfu á íslensku
skáldverki jafn víða áður en það
kemur út hér á landi. „Þessi
samningur þýðir að Yrsa fær að-
gang að rosalega stórum hópi les-
enda en Santillana hefur mjög
góða stöðu í öllum hinum
spænskumælandi heimi, betri en
maður gerir sér grein fyrir í upp-
hafi,“ segir Pétur Már.
Útgáfufyrirtækið Santillana er
með starfsemi í 21 landi, þar á
meðal í öllum spænskumælandi
löndum heims. Það mun, að sögn
Péturs Más, í fyrstu setja Þriðja
táknið á markað á fjölmennustu
mörkuðunum, á Spáni, í Mexíkó,
Kólumbíu, Argentínu og Chile, en
hin löndin fylgja síðan í kjölfarið.
„Þá er samsteypan umsvifamikil á
öðrum sviðum miðlunar, rekur
fjölda útvarps- og sjónvarps-
stöðva, auk dagblaða á borð við El
Pais, sem styður við bakið á útgáf-
unni,“ segir hann.
Áður hefur verið gengið frá
samningum um útgáfu á skáldsögu
Yrsu í Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku, Þýskalandi, Hollandi,
Frakklandi, Ítalíu og Grikklandi. Í
tengslum við þá samninga hefur
jafnframt verið samið um sölurétt
þýskrar útgáfu bókarinnar í Aust-
urríki og Sviss, hollenskrar í Belg-
íu og franskrar útgáfu í Lúx-
emborg og Belgíu auk ýmissa
annarra landa þar sem franska er
töluð.
Pétur Már segir að þetta sé
vitaskuld fljúgandi start fyrir nýj-
an höfund en Þriðja táknið er
fyrsta skáldsaga Yrsu fyrir full-
orðna. Að hans dómi er nærtæk-
asta skýringin á þessum góðu við-
brögðum sú að bókin er mjög góð.
„Við höfðum strax mikla trú á
þessari bók. Yrsa virðist hitta
þarna á einhvern tón sem ekki
hefur verið til staðar á þessu sviði
bókmenntanna. Þess vegna falla
menn svona víða fyrir bókinni. Ég
vonaðist til að ná samningum í
fimm löndum í haust en þetta er
framar villtustu draumum,“ segir
Pétur Már.
Þriðja táknið er nú í prentun og
Pétur Már segir að menn bíði
spenntir eftir viðtökum hér heima,
jafnt hjá leikum sem lærðum.
„Það er ekki laust við að maður sé
með svolítinn frumsýningarskrekk
en við erum sannfærðir um að
bókin mun standa undir vænt-
ingum.“
Þýskur sagnfræði-
nemi myrtur
Í Þriðja tákninu finnst þýskur
sagnfræðinemi myrtur í húsi á
svæði Háskóla Íslands við Suð-
urgötu. Fjölskylda hins látna í
Þýskalandi er ósátt við rannsókn
lögreglunnar á morðinu og fær
ungan íslenskan lögmann, Þóru
Guðmundsdóttur, til að kynna sér
málavöxtu upp á eigin spýtur. Há-
skólastúdentinn hafði verið að
bera saman galdrafárið á Íslandi á
17. öld og hliðstæðu þess á meg-
inlandi Evrópu en fram kemur að
hann hefur lifað afar skrautlegu
lífi. Og áður en Þóra veit af hefur
hún sogast inn í veröld sem hún
vissi ekki að væri til.
Þriðja táknið er fyrsta skáldsag-
an sem Yrsa Sigurðardóttir ritar
fyrir fullorðna. Hún hefur áður
gefið út fimm skáldverk fyrir börn
og unglinga og hefur hún hlotið
verðlaun og viðurkenningar fyrir
þau verk sín. Hún er bygging-
arverkfæðingur að mennt, starfar
um þessar mundir sem eftirlits-
verkfræðingur við virkjanafram-
kvæmdirnar á Kárahnjúkum og
vann þar að handriti glæpasög-
unnar.
Íslenskar bækur vinsælar
Pétur Már segir að stemmn-
ingin sé góð á Bókastefnunni í
Frankfurt og greinilega mikill
áhugi og spurn eftir íslenskum
bókum. Það komi ekki á óvart
enda hafi mikið verið þýtt á er-
lend tungumál á liðnum misserum
og mælst vel fyrir. Þannig að er-
lendir útgefendur vilja meira. Að-
spurður hvort Veröld sé með fleiri
samninga í burðarliðnum þar ytra
verst hann frétta. „Það kemur í
ljós.“
Bókmenntir | Spænskt risaforlag, Santillana, kaupir Þriðja táknið fyrir átján spænskumælandi lönd
Glæpasaga Yrsu
Sigurðardóttur fer á
markað í 30 löndum
Yrsa Sigurðardóttir. Nýja glæpasagan, Þriðja táknið, kemur út hér á landi í byrjun nóvember.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
NORÐURLÖND – TORG TÆKIFÆRANNA
Fjölbreytt skemmtun fyrir unga sem aldna
FERÐAVINNINGAR
Norrænir dagar í Smáralind
21. - 23. október kl. 13-18
Ferðir – Atvinna – Nám – Samstarf
Frábært tilboð til Kanarí 5.-20. desember. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað við frábæran aðbúnað í 15 nætur. Bjóðum
nokkrar íbúðir á þessum vinsæla gististað á frábæru verði. Sama
verð, hvort sem 2, eða 3 eru saman í íbúð. Allar íbúðir eru með 1
svefnherbergi. Skelltu þér til Kanarí, gerðu hagstæð jólainnkaup á
Kanarí og búðu vel meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kanarí
5.–20. des.
Sértilboð á Roque Nublo
frá kr. 49.990
Frábært tilboð 5.-20. desember
Verð kr. 49.990
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn, m.v.
2, eða 3 saman í íbúð á Roque Nublo í 15 nætur
5. des. Netverð á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
FREYJA Gunnlaugsdóttir leikur
einleiksverk fyrir klarínettu á tón-
leikum í Iðnó á sunnudaginn
klukkan 15:00.
Hún mun leika
Þrjú smáverk
eftir Igor Strav-
insky, Sequnza
Ixa eftir Luciano
Berio, madrigal
I eftir Henri
Pousseur og
New York Coun-
terpoint eftir
Steve Reich.
Freyja hefur nýlokið námi við tón-
listarháskólann í Berlín þar sem
kennari hennar var Karlheinz
Steffens, sólóklarínettuleikari við
Berlínarfílharmóníuna. Freyja
hefur leikið á fjölda einleiks- og
kammertónleikum víða um Evrópu
og í Asíu og vann fyrstu verðlaun
fyrir flutning í „Hanns Eisler“-
nútímatónlistarkeppninni í Berlín.
Freyja hefur meðal annars leikið
með Staatsorchester Frankfurt,
hljómsveit Komische Oper, Berlin,
Berliner Symphoniker og Óp-
eruhljómsveitinni í Madríd. Hún
hefur einnig unnið með myndlist-
armönnum á borð við Bruce Neu-
mann og Pippilotti Ritz og leikið á
klarinett við Deutsches Theater í
Berlín.
Hljómsveitin Amina mun einnig
troða upp á tónleikunum.
Freyja
leikur í Iðnó
Freyja
Gunnlaugsdóttir
Fréttir í
tölvupósti