Morgunblaðið - 22.10.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 22.10.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 31 MENNING Skólavörðuhátíðin fyrsta vetrardag 2005 Laugardaginn 22 október Kl. 11:00 Klukknaspil í Hallgrímskirkju verk eftir Áskel Másson. Menningarganga Birnu Þórðardóttur fer frá Hótel Leif Eiríkssyni. Shanko silki með sýningu á Japönskum brúðarkápum og kimono. Sýning í listhúsi Ófeigs. Kl. 13:00 Klukknaspil í Hallgrímskirkju verk eftir Áskel Másson. Menningarganga Birnu Þórðardóttur fer frá Hótel Leif Eiríkssyni. Eggert Feldskeri sýnir nýjustu línuna í mokkafatnaði og loðfeldum. Tæknihornið heldur uppá eins árs afmæli á heimilislegan hátt. Mæðurnar bjóða uppá vöfflur eins og þegar strákarnir voru ungir. 12 Tónar, tónleikar með The Viking Giant Show. Kl. 13:30 10 ára krakkar úr Austurbæjarskóla syngja 10 lög. Kl. 14:00 Ellen Kristjáns, Helgi Björns, Daniel Ágúst, Ragnar Kjartans og Steindór Andersen skenkja gestum og gangandi kjötsúpu að hætti Sigga Hall við Hegningarhúsið og hjá Eggert Feldskera. Sjöfn Har. Art gallery. Ný málverk og kynning á verkum skosku listakonunnar Ishbel Macdonald - Silkiþrykk. 12 Tónar, tónleikar með Jakobínarína. Fyrir krakkana er Töfraveröld tóna og hljóða í verslun Kristínar Cardew. Kolbrún S. Kjarval leirlistakona rennir leir. Kl. 14:30 Kramhúsið verður með Afríska dansa og fleiri atriði á Kjaftaklöpp. Kl. 15:00 Klukknaspil í Hallgrímskirkju verk eftir Áskel Másson. Mennigarganga Birnu Þórðardóttur fer frá Hótel Leif Eiríkssyni. Opnun á sýningu verka eftir Ásu Ólafsdóttur í gallerí Hún og Hún. 12 Tónar, tónleikar með Architecture in Helsinki. Kl. 16:00 Kolbrún S. Kjarval leirlistakona rennir leir. Kristína Berman dansar magadans fyrir utan Verksmiðjuna. 12 Tónar, tónleikar með Au Reavoir Simone. Kl. 18:00 Samhringing klukkna Hallgrímskirkju í tilefni 331. ártíðar séra Hallgríms Péturssonar. Verið velkomin á Skólavörðustíginn Spron/Ögurvík - Landssamband sauðfjárbænda/markaðsráð kindakjöts - Þróunarfélag Miðborgar Ofangreindir vildaraðilar styrkja hátíðina Bragðlaukar kitlaðir í Ostabúðinni allan daginn. Ýmsar uppákomur hér og þar á Stígnum! BLÁTT hraunblóm er titillinn á einu málverka Elsa Alfelt, máluðu hér á landi sumarið 1948, en hún kom hingað til lands ásamt manni sínum, Carl-Henning Pedersen, þá um vorið. Tilefni heimsóknar þeirra var að þau voru hluti af sýning- arhópi sem nefndi sig Höstudstill- ingen og hafði sýnt í Kaupmanna- höfn haustið áður. Svavar Guðnason var einn af hópnum og kom því til leiðar að sýningin hafði viðkomu hér á landi á ferð sinni um Norðurlöndin. Á sýningunni sem haldin var í Listamannaskálanum voru verk eftir 12 listamenn, Else Alfelt var eina konan og Svavar eini Íslendingurinn. Aðrir voru m.a. Asger Jorn, Ejler Bille og Egill Ja- cobsen. Haustsýningin var tímamótasýn- ing hér á landi og vakti mikla at- hygli, mestmegnis jákvæða þó sum- ir yrðu hissa á myndum sem kallaðar voru óhlutbundnar. Mörk- in á milli hins óhlutbundna og raunsæja voru þó óljós og þó að þessir málarar hafi tilheyrt þeim sem kallaðir voru „de abstrakte“ í Danmörku, Svavar þar meðtalinn, innihéldu verkin flest tilvísanir í hlutbundinn eða ímyndaðan raun- veruleika. Nú vill Listasafn Sigurjóns Ólafssonar varpa einhverju ljósi á þetta tímabil íslenskrar listasögu og þá sérstaklega á tengslin milli Danmerkur og Íslands, en bæði Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson lærðu í Danmörku og urðu fyrir áhrifum frá straumum og stefnum þess tíma. Á fjórða ára- tugnum urðu danskir listamenn fyrir auknum alþjóðlegum áhrifum og nokkrir héldu til Parísar, m.a. Egill Jacobsen, Asger Jorn, Ejler Bille og Carl-Henning Pedersen. Á fimmta áratugnum varð til al- þjóðlegt samstarf listamanna undir nafninu Cobra, en þeir máluðu flestir í abstraktexpressjónískum stíl undir ýmsum áhrifum, m.a. frá súrrealisma og primitivisma en listamenn sóttu gjarnan til svokall- aðra frumstæðra þjóða í leit að ein- hverju hreinu, sönnu og barnslegu. Sumir sóttu innblástur í grímur eða önnur frumstæð tákn og aðrir sóttu í ævintýri eins og Carl- Henning Pedersen gerði. Þessi áhrif bárust einnig hingað til lands, til að mynda með Haustsýningunni. Verk þeirra fjögurra sem sýnd eru saman í Listasafni Sigurjóns, nú undir titlinum Hraunblóm, eru ágætir fulltrúar hinna ýmsu áherslna í tíðarandanum í kringum 1950 í Danmörku. Málverk Svavars Guðnasonar eru okkur kunn en hér sjáum við allnokkur smærri verk sem sýna vel hvernig hann virkjar hinn frumstæða kraft sem lista- menn þessa tíma sóttust svo eftir, til að skapa sinn eigin íslenska ab- straktlandslagsheim þar sem stundum er eins og myndefnið sé sjálfur kraftur náttúruaflanna. Myndir hans kallast á við nátt- úrustemmningar Else Alfelt sem eru geysifallegar og búa yfir sér- stakri og sterkri hrynjandi, þær minna á storminn, öldurnar, fjalls- hlíðarnar og vindinn allt í senn en eru um leið vandlega uppbyggðar. Hún málar ekki eftir fyrirmynd heldur tilfinningu en nær að grípa vel íslenskt umhverfi. Myndirnar hér eru allar málaðar hér á landi sumarið 1948, fæstar eru nákvæm- lega staðsettar en augljós áhrifin frá íslenskri birtu. Þær njóta sín sérstaklega vel við undirspil hafsins á efri hæðinni í Sigurjónssafni. Málverk Carl-Henning Pedersen eru síðan á neðri hæð og hans hlut- ur stærstur á sýningunni, mynd- irnar einnig a.m.k. flestar unnar hér á landi og sumar bera titil þess til vitnis. Þær eru unnar með olíu- krít og birta ævintýraheim sem er tengdari tíðarandanum sem þá ríkti en málverk hinna tveggja. Fjórir skúlptúrar eftir Sigurjón eru á sýn- ingunni en verk hans umhverfis safnið verða einnig nánast hluti af henni. Veglegur bæklingur fylgir sýn- ingunni sem á eftir að ferðast nokkuð áður en yfir lýkur, til Ak- ureyrar og Danmerkur. Það sem helst kom á óvart voru hrífandi myndir Else Alfelt sem standans mjög vel tímans tönn, en í heild er hér um forvitnileg tengsl milli danskra og íslenskra listamanna að ræða sem áhugavert er að vekja athygli á. Blátt hraunblóm er titillinn á einu málverka Elsa Alfelt, en það var málað hér á landi sumarið 1948. Konan í hópnum Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Sigurjónssafn Til 27. nóvember. Opið laugard. og sunnud. kl. 14–17. Hraunblóm Else Alfelt, Carl-Henning Pedersen, Svavar Guðnason, Sigurjón Ólafsson Fréttir í tölvupósti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.