Morgunblaðið - 22.10.2005, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
STEFNT AÐ
VINSTRISTJÓRN
Eftir landsfund Samfylkingar-innar í vor var ljóst að sáflokkur stefndi að því að
mynda hér hreinræktaða vinstri-
stjórn, þá fyrstu í sögunni, með sam-
starfi við Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð. Ræða Steingríms J. Sigfús-
sonar, formanns síðarnefnda flokks-
ins, sem hann hélt við setningu lands-
fundar VG í gær, sýnir svo ekki verður
um villzt að sá flokkur er reiðubúinn
til þess samstarfs. „Markmiðið er, og
verður að vera, að fella ríkisstjórnina,
koma Sjálfstæðisflokknum og Fram-
sóknarflokknum líka út úr Stjórnar-
ráðinu. Ekkert dekur við Framsókn
heldur, því hafi nú einhver flokkur
einhvern tímann í samanlagðri ís-
lenskri stjórnmálasögunni haft mikla
þörf fyrir hvíld og langa endurhæf-
ingu, þá er það Framsóknarflokkur-
inn,“ sagði Steingrímur í ræðu sinni.
Steingrímur hefur að vísu áhyggjur
af því að Samfylkingin sé ekki nógu
vinstrisinnuð. En þær áhyggjur
kunna að vera óþarfar. Samfylkingin
er ennþá hálfvolg í t.d. stuðningi við
hugmyndir um að auka valfrelsi fólks
um almannaþjónustu og nota einka-
framtakið til að nýta betur skattpen-
inga almennings og bæta velferðar-
þjónustuna. Og í utanríkismálum er
Samfylkingin augljóslega miklu nær
stefnu Vinstri grænna en núverandi
stjórnarflokka. Vinstri grænir gætu
væntanlega í stjórnarsamstarfi haft
hemil á „hægri“ tilhneigingum Sam-
fylkingarinnar.
Ætla má að stjórn þessara tveggja
flokka myndi gera gangskör að því að
gera Ísland varnarlaust og draga
landið út úr friðargæzluverkefnum,
sem unnin eru í samstarfi við banda-
lagsríki okkar í NATO í t.d. Írak og
Afganistan. Hún myndi ekki standa
fyrir skattalækkunum, ekki leita
nýrra lausna í velferðarkerfinu, ekki
halda áfram einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja eða opna hagkerfið frekar fyrir
alþjóðlegum viðskiptum.
Steingrímur J. Sigfússon gat í ræðu
sinni talið upp ýmis góð mál, sem
flokkur hans hefur barizt fyrir. Þar á
meðal eru umhverfis- og jafnréttis-
mál, barátta gegn kynferðisofbeldi, að
gera leikskólann gjaldfrjálsan og
fleira. En á heildina litið er Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð gamal-
dags vinstriflokkur. Hún hafnar kost-
um einkaframtaksins, en telur
opinberan rekstur leysa flestan
vanda. Flokkurinn er miklu upptekn-
ari af því hvernig eigi að skipta kök-
unni en af því hvernig megi stækka
kökuna þannig að allir fái meira. Það
var til dæmis alveg augljóst af ræðu
formannsins í gær að það hefur farið
framhjá VG hvernig hægt sé að auka
tekjur ríkissjóðs til lengri tíma litið
með því að lækka skatthlutföll og ein-
falda skattkerfið, þótt reynslan, bæði
hér á landi og víða annars staðar, sýni
fram á það.
Steingrímur J. Sigfússon ræddi
talsvert um hringamyndun í ræðu
sinni í gær. Í því máli hafa Morgun-
blaðið og VG átt samleið að talsverðu
leyti, að vísu á ólíkum forsendum.
Morgunblaðið hefur talið sjálfsagt að
einkavæða ríkisfyrirtæki, auka sam-
keppni, opna hagkerfið og gefa fjár-
magnsflutninga frjálsa og draga úr
höftum og reglusetningum sem
íþyngja daglegum rekstri fyrirtækja.
Þessi þróun hefur skilað stóraukinni
verðmætasköpun og orðið þjóðinni til
mikilla hagsbóta. Blaðið hefur hins
vegar talið að til þess að varðveita ár-
angur þessa stóraukna frjálsræðis og
tryggja heilbrigða samkeppni, yrði að
tryggja að enginn einn eða örfáir að-
ilar næðu tökum á stórum hluta efna-
hagslífsins.
VG hefði hins vegar gjarnan viljað
losna við frjálsræðisþróunina. „Við
höfum lagst gegn einkavæðingu, m.a.
af þeim ástæðum að fyrir lá að af henni
leiddi einkavædd einokun eða fá-
keppni. Þannig að það stendur ekki
upp á okkur,“ sagði Steingrímur í
ræðu sinni í gær.
Hann bætti við: „ Og það er reyndar
kostulegt líka að til dæmis Morgun-
blaðið talar iðulega eins og aðal
vandamálið við að koma lögum yfir,
eða böndum á, auðhringana, sem „hér
eigi ekki að gína yfir öllu“, eins og það
var orðað í Reykjavíkurbréfi sunnu-
daginn síðasta, og var eins og talað út
úr mínu hjarta. Mogginn talar stund-
um eins og aðal vandamálið sé stjórn-
arandstaðan. […] Sérstaklega er það
Samfylkingin sem er skömmuð mikið í
þessu sambandi í Mogganum.
Það kann vel að vera að Samfylk-
ingin sé eitthvað mjúk í hnjáliðunum
[...] í þessum efnum, en það skiptir
bara bókstaflega engu máli, það skipt-
ir engu máli. Stjórnarflokkarnir hafa
haft alla möguleika til að grípa til að-
gerða, ef hugur fylgdi máli, ef þetta
væri eitthvað meira en í nösunum á
þeim,“
Það er rangtúlkun hjá Steingrími J.
Sigfússyni að Morgunblaðið telji Sam-
fylkinguna aðalvandamálið í þessu
efni. Þvert á móti hefur blaðið margoft
skorað á núverandi stjórnarflokka að
taka sig saman í andlitinu og setja lög-
gjöf, sem dugar til að koma böndum á
fyrirtækjasamsteypurnar.
Það breytir ekki því að blaðið hefur
furðað sig á afstöðu Samfylkingarinn-
ar í málinu. Og í einum þætti þessa
máls, sem snýr að samþjöppun eign-
arhalds á fjölmiðlum, skiptir afstaða
Samfylkingarinnar augljóslega máli.
Mikilvægt er að sú löggjöf, sem sett
verður um eignarhald á fjölmiðlum,
dugi til að vinda ofan af núverandi
stöðu á fjölmiðlamarkaðnum, sem yrði
ekki liðin í neinu öðru vestrænu lýð-
ræðisríki. Og jafnframt er mikilvægt
að um þá löggjöf ríki mjög víðtæk
samstaða á Alþingi, því að dæmin
sanna að annars er gamall flokksbróð-
ir Steingríms J. Sigfússonar, Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands,
reiðubúinn að beita valdi sínu til að
synja ákvörðunum hins þjóðkjörna Al-
þingis um samþykki.
Einmitt vegna þess hvað Samfylk-
ingin er lasin í hnjánum í þessu máli,
skiptir afstaða Vinstri grænna hins
vegar máli. Steingrímur J. Sigfússon
segist tilbúinn að setja „skynsamlegar
leikreglur og gera ráðstafanir til að
sporna við óhóflegri samþjöppun á
sviði fjölmiðlunar“. Hann er mun upp-
réttari í málinu en formaður Samfylk-
ingarinnar.
Meðal annarra orða; hvernig ætlar
Steingrímur J. Sigfússon að koma
fram stefnu sinni í auðhringamálinu í
vinstristjórnarsamstarfinu við Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur?
Þegar ekið er inn Fljótsdal,framhjá Skriðuklaustri, Vé-garði og Valþjófsstað koma um-fangsmiklar búðir Fosskrafts
fljótlega í ljós. Sá verktakahópur tók að
sér gerð stöðvarhúss virkjunarinnar og
meðfylgjandi mannvirkja eins og spennu-
salar, fallganga, lokuhúss, frárennslis-
ganga og þjónustubyggingar. Síðasttalda
mannvirkið, auk tengivirkis, er hið eina
sem er ofanjarðar í dalnum, að því und-
anskildu að hluti frárennslisganga er of-
anjarðar í formi skurðar sem liggur út að
Jökulsá í Fljótsdal. Fosskraftshópinn
skipa Íslenskir aðalverktakar, Ístak, Pihl
& Sön og þýska fyrirtækið Hochtief.
Áætlaður kostnaður verksins er um 185
milljónir evra, eða um 13 milljarðar króna
á núvirði.
Gunnar Þ. Guðmundsson, verkefnis-
stjóri í eftirliti með framkvæmdunum í
Fljótsdal, er með góða yfirsýn á verkið og
tók hann á móti Morgunblaðsmönnum.
Um svipað leyti tók starfsfélagi hans á
móti öðrum hópi, sem kominn var til að
skoða mannvirkin en fjölmargir gestir
hafa fengið leiðsögn um svæðið frá því að
framkvæmdir hófust.
Leiðin lá einn kílómetra inn í Valþjófs-
staðarfjall um aðkomugöng en fyrir tæpu
ári lauk öllum greftri í fjallinu. Það var
enginn smáræðisgröftur, eða um 325 þús-
und rúmmetrar, þar á meðal voru grafin
og sprengd göng upp á alls rúma fjóra
kílómetra. Var þessi verkþáttur nokkuð á
undan áætlun. Síðan þá hafa starfsmenn
Fosskrafts og undirverktaka unnið við
steypuvinnu í spennasal og stöðvarhúsi,
þar sem sex túrbínum virkjunarinnar
verður komið fyrir. Samhliða því fer fram
uppsetning vél- og rafbúnaðar af hendi
VA-Tech frá Þýskalandi. Alls vinna nú
hátt í 200 manns á svæðinu, ef allir verk-
takar eru meðtaldir, þar af um 95 Íslend-
ingar. Meðtaldir eru einnig starfsmenn
Keflavíkurverktaka, sem eru að byggja
tengivirkið í Fljótsdal fyrir Landsnet, VA-
Tech og DSD Stahlbau frá Þýskalandi.
Mikil steypuvinna
Þegar inn í gríðarstórt stöðvarhúsið var
komið, sem er um 30 metra hátt, 126
metra langt og 14 metra breitt, stóð yfir
steypuvinna við fyrstu vélina og járnalögn
og uppsláttur utan um aðrar. Hver
steypubíllinn tók við af öðrum og starfs-
mennirnir unntu sér vart hvíldar. Til
þessa hafa farið um 30 þúsund rúmmetrar
af steypu í mannvirkin en áætlað magn í
heildarverkinu er um 50 þúsund rúm-
metrar, sem er álíka mikil steypa og fór í
alla Vatnsfellsvirkjun, svo dæmi sé tekið.
Þarna er engin þörf á vaktavinnu, menn
vinna frá klukkan sjö að morgni til sjö á
kvöldin og á handtökum þeirra mátti sjá
að þar fóru vanir starfsmenn. Vinnu-
brögðin voru fumlaus og andrúmsloftið
ótrúlega rólegt. Engan leka í göngum var
að sjá, enda bergið sagt gott á þessum
slóðum í fjallinu. Búið er að setja niður
fimm snigla af sex og ofan á þrjá þeirra er
komin steypt plata. Alls verða hæðirnar í
húsinu fjórar, ef sniglarnir í botninum,
sem taka við vatninu, eru taldir með.
Stálfóðrun á eftir áætlun
Stálfóðrun fallganganna tveggja, sem
koma lóðrétt úr aðrennslisgöngum niður í
stöðvarhúsið, hvor um sig um 420 metra
löng, hefur verið nokkuð í fréttum und-
anfarið vegna gjaldþrots Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri. Slippstöðin tók að sér verk-
ið sem undirverktaki DSD Stahlbau. Að
sögn Gunnars er sú
vinna að hefjast á ný
og munu að öllum lík-
indum flestir þeir
starfsmenn, sem
voru hjá Slippstöð-
inni, fá vinnu aftur.
Gunnar sagði þetta
eina verkþáttinn í
fjallinu sem væri á
eftir áætlun.
Hann sagðist telja
að hátt í 70% bygg-
ingarvirkja, þ.e.
gröftur og steypu-
vinna, væru að baki,
þegar allt væri talið.
Þegar búið er að
koma öllum sniglum fyrir og steypa ofan á
þá sagðist Gunnar telja að fljótlega upp úr
áramótum hæfist uppsetning annars vél-
og rafbúnaðar og næsta vor væri komið að
sjálfum rafölum vélanna. Fyrstu vélina á
svo að gangsetja í apríl 2007 og hinar koll
af kolli fram á haust það ár.
Áður en við yfirgáfum virkjunarsvæðið,
og haldið var niður á Egilsstaði, bauð
Gunnar okkur í kvöldverð í mötuneytinu
þar sem kokkurinn hafði reitt fram næt-
ursaltaðan fisk með hamsatólg, kart-
öflum, rúgbrauði og smjöri. Í erfiðisvinnu
þurfa fílefldir starfsmenn kraftmikinn
mat, öðruvísi verður Kárahnjúkavirkjun
ekki gangsett samkvæmt áætlun.
Snemmbúinn vetur
Á einum degi náðist ekki að komast yfir
allt virkjunarsvæðið, enda er það víð-
feðmt, en fleiri verktakar eru að störfum
en Impregilo og Fosskraft. Meðal þeirra
eru Arnarfell, sem er að vinna við Ufs-
arveitu, og Suðurverk, sem reisir Sauð-
árdalsstíflu og Desjarárstíflu, hliðarstífl-
ur sitt hvorum megin við Kárahnjúka-
stíflu. Báðir v
veginn á áætlun
strik í reiknin
ekki síst stíflug
gerð hjá Arnarf
Ufsarveita, s
nefndri Jökulsá
arlóni í Jökulsá
að bora og spr
göng í norðurá
risabornum TB
arfell nýjan 26 k
slitlagi frá Kár
austur að Keld
son, einn eigend
á svæðinu, se
kuldakastið haf
inn hafi komið ó
Nú eru rífleg
arfelli, allt Ísle
þegar mest var
unarlega slopp
starfsmenn. Í o
fengið með því,“
Arnarfellsme
metra í göngun
Starfsmenn Su
Morgun
4 *2
4/-!
.) -
#?) -
$-
K.K .
&
*- >
,; $
<
0:-
Flest annað
en göngin
á áætlun
Þegar aðrar virkjunarframkvæmdir en hjá Imp-
regilo eru skoðaðar við Kárahnjúka kemur í ljós að
langflestir verkþættir eru á áætlun. Björn Jóhann
Björnsson og Steinunn Ásmundsdóttir ljúka frá-
sögn af yfirferð sinni um svæðið í máli og myndum.
Gunnar Þ.
Guðmundsson
Tveir starfsmenn Fosskrafts koma fyrir hluta af einni vélas