Morgunblaðið - 22.10.2005, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 63
DAGBÓK
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Fjölbýli í Garðabæ
Okkur hefur verið falið að útvega fjársterkum kaupanda
íbúð í fjölbýli í Garðabæ, t.d. Sjálandi. Sérstaklega koma
eignir til greina sem eru á efri hæðum, helst „penthouse“-
íbúðir. Íbúðin þarf að vera 120-160 fm að stærð.
Rýming eignarinnar er samkomulag.
Um er að ræða staðgreiðslu fyrir réttu eignina.
Íbúð við Þorragötu óskast
Traustur kaupandi óskar eftir íbúð við Þorragötu.
Rýming er samkomulag. Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Íbúð við miðborgina óskast
- t.d. í 101 Skuggi, við Klapparstíg eða Skúlagötu.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu svæði.
Rýming samkomulag. Staðgreiðsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir
raðhúsa og einbýlishúsa víðs vegar á höfuðborgar-
svæðinu - einnig vantar flestar stærðir og gerðir íbúða -
traustir kaupendur. Dæmi úr kaupendaskrá:
Nú er lag í Glæsibæ!
Harmonikudansleikur af bestu gerð í Glæsibæ
kl. 21.30 í kvöld
Hljómsveitir undir stjórn Garðars Ólafssonar,
Þorleifs Finnssonar og Ingvars Hólmgeirssonar
ásamt söngvaranum Þorvaldi Skaftasyni.
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík. F.H.U.R
Afmælisþakkir
Öllum þeim, sem sýndu mér vináttu og
heiðruðu mig á 90 ára afmæli mínu, sendi
ég hjartans þakkir.
Karl Helmut Brückner Kortsson,
Hellu.
Ídag verður haldin Skólavörðuhátíð í til-efni fyrsta dags vetrar, sem er í dag, ogkennir ýmissa grasa. Undanfarin fimm árhafa búðareigendur á Skólavörðustíg
staðið fyrir alls kyns uppákomum en að sögn
Eggerts Jóhannssonar, sem betur er þekktur
sem Eggert feldskeri, var í fyrra ákveðið að
festa niður tvo árlega viðburði. Annars vegar
blómadaginn á vorin og svo Skólavörðuhátíðina
fyrsta vetrardag til að fagna Vetri konungi. Á
sjötta þúsund manns komu á Skólavörðustíginn
á hátíðinni í fyrra og að sjálfsögðu er vonast
eftir jafngóðri ef ekki betri mætingu í dag. „Við
fengum til samstarfs við okkur í fyrra Lands-
samband sauðfjárbænda og Markaðsráð kinda-
kjöts sem hjálpuðu okkur að gera magnaða
kjötsúpu þar sem Siggi Hall spilaði stórt hlut-
verk. Þar með vorum við komin af stað með
kjötsúpu og vetrardag.“
Ráðist var í að gera nokkur hundruð lítra af
kjötsúpu en það verða þau Ellen Kristjáns-
dóttir, Helgi Björnsson, Daníel Ágúst, Ragnar
Kjartansson og Steindór Andersen sem sjá um
að skenkja gestum og gangandi súpunni, sem
er að hætti Sigga Hall, við Hegningarhúsið og
svo hjá Eggerti feldskera klukkan tvö í dag. Að
auki verður opið í öllum verslunum á Skóla-
vörðustígnum og tekið vel á móti öllum þeim
sem kíkja í heimsókn. Þá verður Birna Þórð-
ardóttir með menningargöngu um Skólavörðu-
stíginn en hún þekkir vel til sögu hans og
þeirra húsa sem við stíginn standa. Eggert seg-
ir að afar vel hafi verið mætt í gönguna í fyrra,
um fimmtíu til sextíu manns í hverri göngu, og
býst hann við að jafnvel fleiri mæti í ár. Gangan
hefst með klukknaspili í Hallgrímskirkju í um
fimm mínútur en eftir það er gengið niður
Skólavörðustíginn frá Hótel Leifi Eiríkssyni.
Af öðrum atburðum sem eru á dagskrá
Skólavörðuhátíðarinnar má nefna eins árs af-
mæli Tæknihornsins sem heldur upp á afmælið
á heimilislegan hátt og munu mæðurnar bjóða
upp á vöfflur eins og þegar strákarnir voru
ungir. Þá verður opnun sýningar á verkum Ásu
Ólafsdóttur í galleríinu Hún og Hún, Kristína
Berman mun dansa magadans fyrir utan Verk-
smiðjuna, krakkar úr Austurbæjarskóla syngja
nokkur lög og á vegum Shanko silki verður
haldin sýning á japönskum brúðarkápum og
kimono.
Þá verður einnig tónleikadagskrá í húsakynn-
um tónlistarverslunarinnar 12 tóna en þar
koma meðal annars fram The Viking Giant
Show, með Heiðar úr hljómsveitinni Botnleðju
fremstan og einan í flokki, Jakobínarína úr
Hafnarfirði treður einnig upp og Architecture
in Helsinki.
Hátíð | Ýmsar uppákomur á Skólavörðustíg í dag til að fagna vetrarkomu
Kjötsúpa fyrir gesti og gangandi
Eggert Jóhannsson
er fæddur í Reykjavík
hinn 8. mars 1953.
Hann lagði stund á sjó-
mennsku eftir lands-
próf en fluttist til Lund-
úna í Englandi eftir tvö
ár á sjó. Þar lærði Egg-
ert feldskurð en varð
frá að hverfa eftir
tveggja ára dvöl þar
sem atvinnuleyfi hans
var ekki endurnýjað. Frá Englandi hélt hann til
Svíþjóðar þar sem hann lagði stund á nám í
feldskurði hjá virtum feldskerum. Árið 1997
hóf hann eigin rekstur í Reykjavík og hefur
gert allar götur síðan.
1. Rf3 d5 2. g3 c5 3. Bg2 Rc6 4. O-O Bf5
5. d3 h6 6. Rbd2 Rf6 7. He1 e6 8. b3 Be7
9. Bb2 O-O 10. h3 Dc7 11. e4 Bh7 12. e5
Rd7 13. De2 b5 14. h4 Db6 15. Rf1 c4 16.
dxc4 bxc4 17. Hed1 Hfc8 18. Re3 Bc5
19. Rxc4 Dc7 20. Re3 Bxe3 21. Dxe3
Rb4 22. Re1 Rxc2 23. Rxc2 Dxc2 24.
Ba3 Dc3 25. Dxc3 Hxc3 26. f4 Hxg3 27.
Hac1 Be4 28. Hd2 Rb6 29. Kh2 Hxg2+
30. Hxg2 Bxg2 31. Kxg2 Hc8 32. Hxc8+
Rxc8 33. Bc5 f6 34. a4 Kf7 35. b4 fxe5 36.
fxe5 Kg6 37. b5 Kf5 38. a5 Kg4
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu
í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Guð-
björn Sigurmundsson (1845) hafði hvítt
gegn Jóhanni H. Ragnarssyni (2110).
39. Bxa7! Rxa7 40. b6 Rc6 41. a6 svarti
riddarinn getur ekki eins síns liðs stöðv-
að frípeð hvíts en þrátt fyrir það var
svartur ekkert á þeim buxunum að gef-
ast strax upp. 41...Kxh4 42. a7 Rxa7 43.
bxa7 Kg4 44. a8=D Kf5 45. Da1 Ke4
46. De1+ Kf5 47. Dg3 g5 48. Dh3+
Kxe5 49. Dxh6 Kf5 50. Kf3 d4 51. Df8+
Ke5 52. Dc5+ Kf6 53. Dxd4+ Kf5 54.
De4+ Kf6 55. Kg4 og svartur gafst upp
saddur lífdaga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tour de France á göngustíg
GÖNGUSTÍGARNIR vestast á Sel-
tjarnarnesi eru vinsælir af útivist-
arfólki: Gangandi fólki, skokkandi
fólki, hjólreiðafólki og fólki á línu-
skautum, og fer þetta yfirleitt allt
vel saman. Einn hjólreiðamaður
sker sig þó úr og hjólar á slíkum
hraða að líkast er því að hann hafi
villst úr Tour de France inn á stíg-
inn. Ekki nóg með það, maðurinn
stærir sig af því að hafa drepið tvo
hunda sem voru lausir á stígnum.
Maður spyr sig: Hvað drepur
hann næst? Þeirri spurningu er auð-
vitað ósvarað en svör ættu að vera til
við eftirfarandi spurningum: Hver
er hámarkshraði reiðhjóla á göngu-
stígum? Hvernig ber hjólreiðamanni
að bregðast við þegar hann mætir
eða fer fram úr gangandi vegfar-
endum á göngustíg? Hér með er
óskað eftir þessum svörum.
Nesbúi.
Athyglisverð grein
Í DAG, 17. október, birtist í Morg-
unblaðinu stutt en mjög athyglis-
verð grein eftir 12 ára gamla stúlku.
Greinin nefndist „Mín skoðun“.
Ég dáist mjög að þessari grein og
höfundi hennar. Ég man ekki til þess
að ég hafi nokkurn tíma lesið grein í
dagblaði eftir svo ungan höfund.
Höfundurinn heitir Harpa Dís Há-
konardóttir. Mig undrar mjög að
svona ungmenni skuli skrifa svona
skynsamlega grein og þora að láta
birta hana í víðlesnasta blaði lands-
ins. Ég veit að við Íslendingar eigum
mikið af börnum og unglingum sem
eru mjög vel gefin og snemma búin
að taka út andlegan og líkamlega
mikinn þroska, en ég efast mjög um
að við eigum margt af svona ungu
fólki sem hefur á þessum aldri
myndað sér jafn afdráttarlausar
skoðanir á ýmsum þjóðmálum og
þessi unga stúlka. Hún hlýtur að
vera óvenju vel upp alin og vel upp-
lýst og með óvenju góða yfirsýn yfir
landsmálin.
Ég vil að lokum óska henni hjart-
anlega til hamingju og þakka henni
fyrir þá djörfung að þora að skrifa
þessa grein. Ég er sannfærður um
að hún á eftir að skrifa margar góðar
greinar í blöðin og láta mikið að sér
kveða á opinberum vettvangi í fram-
tíðinni.
Til hamingju, Harpa Dís Hákon-
ardóttir.
Sigurður Lárusson frá Gilsá.
Kvenhringur týndist
KVENHRINGUR týndist á Broad-
way sl. laugardag. Þetta er hringur á
litla fingur með dökkbláum, stórum
steini og hvítum steinum í kring.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
695 8547.
Kettlingar fást gefins
TVEIR stálpaðir kettlingar, fress og
læða, óska eftir góðu heimili. Þeir
eru búnir að fá allar sprautur og eru
heilbrigðir og hressir. Upplýsingar í
síma 697 7880.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 og 55 ÁRA afmæli. Í dag, laug-ardaginn 22. október, er fimm-
tugur Hörður Hákonarson, Hvassa-
leiti 20, Reykjavík. Kona hans,
Margrét A. Frederiksen verður 55 ára
í dag.
Brúðkaup | Gefin voru saman 3. sept-
ember sl. í Kópavogskirkju, af föður
brúðarinnar sr. Kjartani Erni Sig-
urbjörnssyni, þau Guðrún Birna
Kjartansdóttir og Guðmundur Freyr
Sveinsson. Með þeim á myndinni er
sonur þeirra Kjartan Sveinn.
Djasskvartettinn
LOS leikur á Múl-
anum í Þjóðleik-
húskjallaranum á
sunnudaginn kl.
21.30.
Kvartettinn skipa
þau Ásgeir Ásgeirsson á gítar,
Sunna Gunnlaugsdóttir á píanó,
Scott Mclemore á
trommur og Róbert
Þórhallsson á
kontrabassa.
Kvartettinn leikur
blöndu af tónlist eftir
meðlimi sveitar-
innar, Kenny Wheeler og John
Taylor svo eitthvað sé nefnt.
Djasskvartettinn Los leikur á Múlanum
SJÓNÞING Jóns Laxdal verður
haldið í Deiglunni á Akureyri í dag
kl. 15. Spyrlar eru Jón
Proppé, Arna Valsdóttir
og Þröstur Ásmundsson
og fundarstjóri Hannes
Sigurðsson.
Sjónþinginu er ætlað að
veita persónulega innsýn
í feril Jóns með það fyrir
augum að skoða framlag
hans og rifja upp farinn
veg. Jafnframt því að sitja
fyrir svörum og taka við fyr-
irspurnum úr sal verður sýndur
fjöldi mynda af verkum listamanns-
ins.
Á morgun lýkur yfirlitssýningu á
verkum Jóns undir heitinu „Ekki
orð“ í Listasafninu á Akureyri. Sýn-
ingin er unnin í samstarfi við Hafn-
arborg, menningar- og
listastofnun Hafn-
arfjarðar, og þangað fer
hún er henni lýkur á Ak-
ureyri. Um svipað leyti
verða verk eftir Jón til
sýnis í Safni, nútíma-
listasal Péturs Arasonar
við Laugaveg í Reykjavík.
Í mars á næsta ári fara
verkin síðan til Berlínar
þar sem Jón sýnir í Spielhaus
Morrison Galerie, sem meðal ann-
arra listamanna hefur Gabríelu
Friðriksdóttur á sínum snærum, en
ferðin endar svo í Listasafninu í
Færeyjum.
Sjónþing Jóns Laxdal
JPV útgáfa hefur sent frá sér sjöttu
bókina um Kaftein Ofurbrók eftir Dave
Pilkey. Hún heitir Kafteinn Ofurbrók
og líftæknilega horskrímslið. Fyrri
hluti: Hnerrað að næturlagi.
Nú lenda Georg og Haraldur í virki-
lega klístruðum aðstæðum. Nýjasta
prakkarastrikið þeirra fer svo í taug-
arnar á gáfnaljósi skólans, Sófusi
séní, að hann brennur í skinninu að
hefna sín. En þegar Sófus hyggst um-
breyta sjálfum sér í líftæknilegan of-
urgaur fer allt úr böndunum – og Líf-
tæknilega horskrímslið verður til!
Bjarni Fr. Karlsson þýddi bókina.
Bækurnar um Kaftein Ofurbrók hafa
tvívegis hlotið Bókaverðlaun ársins
sem besta þýdda barnabókin á veg-
um Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Börn