Réttur - 01.02.1917, Qupperneq 79
Neistar
8i
fyrir náungann. Og það hefir enn sannast: Eimskipafé-
lagið hefir frá byrjun beitt ýms héruð, einkum á Norð-
urlandi, einokunartökum og útilokun — töluverðum mis-
rétti, borið saman við aðra landshluta, einkum Reykja-
vík. Á því bólaði þegar í fyrstu ferðum íslenzku skip-
anna, að þau fluttu hlutfallslega mest vörur fyrir stór-
káúpmenn í Rvík, sérstaklega fyrir þá, sem voru í stjórn
þess. Fluttu vörurnar mest til Rvíkur, eða á aðrar hafnir,
þar sem viðskifti umboðsmannanna voru mest og lík-
legust. En kaupfélögin á Norðurlandi, sem gera sjálf
vörukaup sín erlendis, og hagnast miklu meira á því
heldur en að skifta við innlenda umboðsmenn — þau
hafa borið hiutfallslega rýran hlut frá borði íslenzku
skipanna. Og þegar skipin hafa verið send út af ferða-
áætlunarsviðinu til Ameríku, hafa þau undantekningar-
lítið verið í þjónustu Reykjavíkur-»spekúlanta« og um-
boðsmanna. En kaupfélög og verzlanir annarstaðar á
landinu hafa orðið að krjúpa að fótum þeirra, kaupa af
þeim vörur með álagningu, að viðbættri aukafragt frá
Rvík heim til sín. Ráðsmenska eimskipafélagsstjórnar-
innar síðastliðið haust hefir eigi lítið aukið vandræðin á
Norðurlandi, þegar Norðurlandsskipið, »Goðafoss«, var
tekinn af því tvær ferðir og leigður í vöruflutninga frá
Ameríku til Reykjavíkur, en norðlenzkum kaupfélögum
og verzlunum frá upphafi neitað um þátttöku í þeim
flutningum. Ennfremur má geta annars til sönnunar því,
hve eimskipafélagsstjórninni virðist hjábægt, og hversu
fráleit hún er til að meta hagsmuni annara landsmanna,
móts við hagsbætur nokkurra umboðsmanna og heild-
sala í Rvík. — í nóvember síðastliðnum var afráðið og
auglýst aðeins í Rvík, að íslenzku skipin yrðu send til
Ameríku í apríl 1917. Retta kvisaðist samdægurs norður
um land, og strax var pantað rúm í skipunum fyrir Sam-
bandskaupfélögin og fl., en því var jafnskjótt svarað
þvert nei. Skipin fyrirfram upptekin af kaupmönnum í
• 0