Réttur


Réttur - 01.02.1919, Page 10

Réttur - 01.02.1919, Page 10
12 Réttur. þekkingu á þjóðfélagsmálum og venja þá á að helga sig fé- lagsstörfum, sem gera þá mentaðri og nýtari menn. Eftir því sem jafnaðarhreyfingin verður sterkara afl í þjóðfélaginu, því víðtækari verður hún. Og þó hreyfingin lúti í byrjun eingöngu að ytri kjörum manna, þá hefir hún þó orðið til þess, að lærdómsmenn liafa farið að hugsa um þau lögmál, sem ráða breytingum og framförum í þjóðfélagslífinu. tJað er að miklu leyti jafnaðarhreyfingunni að þakka, að hagfræði og þjóðfélagsfræði eru orðnar svo mikilvægar vísindagreinar, sem þær eru. En nú munu menn spyrja: »Hvað kemur okkur íslend- ingum við, þó aðrar þjóðir berjist suður í löndum.« Ef þessu er nú svona varið, ef jafnaðarhreyfingin er sprottin af örbyrgð og volæði verkalýðsins í stóriðnaðarborgunum, og ef hún á að verða til þess að tryggja menn gegn yfirgangi auðvalds, hvað á hún þá að gera hér á landi? Og þó hún verði svo víðtæk, að hún vinni að því, að draga úr þeim mismun, sem liðnar aldir hafa skapað á milli stéttanna, hvaða erindi á hún samt hingað? Eg hefi margsinnis lieyrt því haldið fram, að hér sé eng- inn auður, sem óttast þurfi að verði þjóðfélaginu ofjarl, eða geti að nokkuru ráði þröngvað kosti lítilmagnans. Og það er ekki langt síðan eg sá því haldið fram í blaðagrein, að hér væri enginn munur á alþýðu og öðrum stéttum, þar sem svo mikill hluti hinna svonefndu heldri manna séu af alþýðu bergi brotnir. En eg held að það sé ekki nægileg sönnun þess, að stéttamunurinn sé ekki til í meðvitund manna. Fyrst og fremst mun óhætt að segja það, að þeir, sem þannig hafa rutt sér braut, munu finna til þess, að þeir séu að einhverju leyti hafnir upp yfir fjöldann. Eða hafið þið ekki tekið eftir því t. d., að margir af þeim, sem á skóla ganga, þykjast verða hart úti, ef þeir geta ekki notað nám sitt til þess að koma ár sinni betur fyrir borð en óbrotnir alþýðumenn. Svo er annað atriði, sem við þekkjum líklega flest meira eða minna til. Pað er barátta margra foreldra fyrir því, að láta ekki börnin síga niður á við í mannvirð-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.