Réttur - 01.02.1919, Side 13
Veðrabrigði.
15
svo rígbundin í einhverjum þeirra, að við þekkjum hann einn
og lítið annað. Finst okkur ekki að eitthvað vanti í alla
þessa flokka, einhverja meðvitund um hina, eitthvert hugboð
um að þeir séu til og einhvern snefil af því, hvað þeir eru?
Par eiga jafnaðarmennirnir ærið verkefni fyrir höndum, að
leiða eitthvað nýtt inn í alla þessa hópa; svolitla útsjón yfir
lífið, svolítinn skilning á högum og hugsunarháttum annara
manna. t*að er grundvöllurinn undir öltum mannjöfnuði. —
Vafalaust eru í öllum flokkum einhverjir menn, sem farnir
eru að hugsa um lífið í heild sinni. Peir eiga að jafnaði
litla samleið með fjöldanum. Peir þrá einhvern víðari sjón-
deildarhring en nokkur einn flokkur getur veitt þeim. F*eir
draga sig venjulega í hlé í samsætunum, og á mannamótum
hafa þeir sig ef til vill ekki mikið í frammi. En ef þeir
rekast á einhvern, sem hefir eignast »sjón út yfir hringinn
þröngva«, þá taka þeir höndum saman við liann, úr hvaða
flokki sem hann er. Fari menn á annað borð að opna aug-
un fyrir því, hvað allir flokkar eru þröngir og takmarkaðir,
þá falla af sjálfu sér allir múrar, sem mennirnir eru altaf að
hlaða á milli sín. Tortryggnin milli flokkanna og vanþekking
þeirra hvers á öðrum fjarlægir þá altaf meira og nieira, en
ef menn skilja hvað fyrir öllum vakir, skilja hversvegna þeir
eru eins og þeir eru, þá er hægt að fyrirgefa það, sem er
ófullkomið, eða öðruvísi en það ætti að vera. Fað er satt,
sem sagt hefir verið: »Að skilja alt, er að fyrirgefa alt.«
Og þess þarf sannarlega með í jafnaðarstarfseminni, að fyrir-
gefa, Pað gengur aldrei vel, að bræða alla flokka saman í
eina heild, meðan þeim finst, hverjum um sig, að aðrir séu
að reyna að knýja fram ósanngjarnar kröfur, sem ekki eigi
við nein rök að styðjast. — Jafnaðarstarfsemin, er því ekki
starf fyrir neina ákveðna stétt. Allar stéttir þurfa að njóta
hennar og eiga að njóta hennar. Allar stéttir verða fyrir
misréíti í einhverri grein, og jafnaðarhreyfingin er ekki sönn
og fullkomin, ef hún leyfir að á nokkura slétt sé hallað ann-
ari fremur. Pessa jafnaðarstarfsemi er hægt að vinna viðar
en á flokksfundum eða í nefndum jafnaðarmannafélaganna.