Réttur


Réttur - 01.02.1919, Page 43

Réttur - 01.02.1919, Page 43
Rœktun og sjálfstœði. 45 Þessi fjölhæfni, þetta viðsýni hinnar margbreytilegu starf- semi, er í háska statt í bæjum, og þess meir, sem bseirnir stækka og meiri verður verkaskiftingin, en starísvið einstakl- inganna þrengist. Hér getur ræktunin, störfin við ræktunina utanbæjar, hjálpað. Sjómaðurinn, verslunarmaðurinn og iðn- aðarmaðurinn, mundu hafa gott af því, að hvarfla að fleiri en einni starfsemi. Uppskera úr görðum og af túnum mundi verða bæjunum góður búbætir. Víða mundu bæirnir geta ræktað svo land sitt með tímanum, að þeir gætu mjólkurfætt sig að mestu. — Ymsa anmarka munu menn sjá á þessu fyrirkomulagi. Er það fyrst að telja, að víðátta bæjanna verði of mikil. En eg hygg, að lnín verði eigi meiri en nú gerist með skipulags- leysinu. Þótt húsin yrðu lág, ynnist aftur bilið á milli hús- anna; og þó að göturnar yrðu breiðari mundi það vinnast upp á betra skipulagi. Nú eru víða tún, fisk-þerrivellir og önnur stór óbygð svæði innan bæja og sjóþorpa, sem ættu að byggjast, en slíkar nytjar ætli að flytja út fyrir bæina. Eg held það væri mjög misráðið, ef hér væri stofnað til stórborga. Eftir því sem borgin er stærri, verður það að ýmsu leyti örðugra, að sjá fyrir öllti heilnæmi. Það sannar erlenda reynslan, og liggja að því mörg drög, sem rúmið leyfir eigi að rakin séu. I þessu sambandi má geta þess, að höfn í F*orlákshöfn mun einmitt styðja að sannri velgengni Reykjavíkur, með því að draga til sín nokkuð af vaxandi sjáv- arútvegi og verkalýðsfjölda þeim, sem honum fylgir, kaup- mönnurn og gróðabrallsmönnum. Myndu æfikjör almennings verða betri í tveimur þorpum, en orðið gæti, ef allur straum- urinn af nýju sjóliði sunnanlands stefnir til Reykjavíkur og niargfaldar þar þrengslin og lóðardýrleikann. Annar agnúinn á breyttu skipulagi bæja, er af sumum tal- inn sá, að eigi sé hægt að breyta gatnaskipun, nema að rífa búsin og byggja að nýju. Rví má svara: að »Rómaborg var ekki bygð á einum degi.« I öllum bæjum og þorpum Þarf að semja byggingarreglur og gera uppdrátt af bænum. eitis og hann á að lita út t framtíðinni. Ressir uppdrættir

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.