Réttur - 01.02.1919, Page 56
58
Réttur.
Utvegun á útlendum vörum: Pað mun víð-
ast hafa verið aðalhvötin til þess að stofna kaupféiög, að kom-
ast með því að betri kjörum á hinum útlendu vörum, sem
við þurfum að kaupa. Hefir sú líka orðið raun á, að þar
hefir árangurinn orðið meiri og margvíslegri, en hina fyrstu
stofnendur félaganna hefir grunað. Um slíkt þyrfti að rita
mjög ítarlega, og skal þó hér, aðeins drepið á fá atriði.
Vegna þess, að vörukaup þau, sein öll félögin til samans
gera, nema miklu, slanda þau betur að vígi með að komast
að góðum kjörum með kaup á markaði erlendis. Hefir þess
jafnan gætt hingað til og verður þó að sjálfsögðu betur,
þegar hin íslensku félög eru komin í Alþjóðasamband kaup-
félaganna, sem væntanlega verður strax og ófriðnum Iýkur.
f*að má telja eígi þýðingarlítinn kost á vöruútvegun kaup-
félaganna, að hún er í höndum fárra manna, sem vel eru
starfi sínu vaxnir. Hefir þannig útilokast, að misfellur þær
yrðu, sem oft verða, ef kaupa skal inn á óþektum stöðum
og frá mörgum seljendum.
Aður en kaupfélögin hófu starf sitt, kom tnest öll útlend
vara, sem fluttist til landsins, frá Kaupmannahöfn, og hefir
það áður verið rætt hér í tímaritum, hvað slíkt væri óheppi-
legt. Kaupfélögin gerðust brautryðjendur viðskifta við Bret-
land, sem hafa gefist einkar vel. Einnig voru þau í byrjun
ófriðarins komin í víðtæk sambönd við Þýskar og Hollensk-
ar verslanir, sem hefði aukist mjög, ef eigi hefði ófriðurinn
komið til hindrunar. En efalaust hefjast þau að nýju, strax
og mögulegt er, og mörg ný hefjast þar að auki.
Afnám skuldaverslunar: Pað var sagt um
kaupfélögin í blaði einu í fyrra að: »KaupféIögin væru orðin
helstu skuldaverslanir Iandsins.« Hvernig sem á er litið,
hljóta þessi ummæli að vera öfgar einar. Það er á allra vit-
und, að vegna þess hversu kaupfélögin hafa gefið miklum
mun betri viðskiftakjör en kaupmenn, þá hefir viðskiftamönn-
unum veití auðveldara að standa í skilum. Enda eru skuldir