Réttur - 01.02.1919, Blaðsíða 58
60
Réttur.
Hver hefir orðið árangur af starfsemi kaupfélaganna yfir-
höfuð, verður ljósast, ef litið er á hag þeirra héraða, þar sem
öflug kaupfélög hafa verið starfandi nokkur ár, og borið sam-
an við önnur héruð, þar sem aðeins eru kaupmannaverslanir.
í hinum fyrnefndu er víðast góður og jafn efnahagur, fram-
farir í jarðyrkju og öðrum atvinnuvegum, betri húsakynni og
aðbúð yfir höfuð, fólkið mentaðra og félagslyndara, og betur
fært til hverskonar samtaka og fyrirtækja. Kaupfélögin hafa
gjörbreytt svo sumum sveitum landsins, að þær eru nú alt
aðrar en fyrir nokkrum árum.
Pað er vel kunnugt, að sumstaðar á landinu, þar sem eigi
eru kaupfélög, hafa mjög litlar framfarir orðið síðustu ára-
tugina. Er þó enginn vafi á því, að í sumum þessum hér-
uðum eru landkostir góðir og staðhættir slíkir, að vel mætti
batna hagur þeirra, ef ill verslun væri eigi til hindrunar.'
* * * * *
* * * *
Kaupfélögin hér á landi eru enn svo ung, að þess má eigi
vænta, að fullur árangur sé kominn í ljós af starfi þeirra.
Pað verður framtíðin að leiða í ljós, hvað þau verða öflug
og áhrifamikil, En engin ástæða er til að vænta annars, en
að þau geti hér orðið eins heillarík og víða erlendis: Tekið
í hendur sínar verslun, samgöngur, iðnaðarfyrirtæki og margt
fleira, sem einstaklingarnir geta eigi leyst eins vel af hendi
og fjöldinn, ef hann sameinar kraftana.
Einar Sigfússon.