Réttur - 01.02.1923, Blaðsíða 28
28
Rjeítur.
tegund:n var fyrirfrain dæmd til dauða, þótt lifað hefðu þeir
nokkur a'r lengur. Enginn veit hvað átt hefir fyr en mist
hefii; engar bætiir megna að kalla þessa tegund aftur til lifs-
ins og enginn gelur grátið hana úr helju. Hamir þessara
fugla voru sendir á útlend náttúrugripasöfn og eru nú þar til
sýnis sem minnisvarði þeirrar þjóðar, er hjálpaði til að út-
rýma geirfuglinum. Einstakir útlendingar fóru nú að bjóða
mörg þúsund krónur fyrir einn einasta geiifuglsham eða þó
ekki væri nema fyrir eitt egg. Petta var gert til að æsa dráp-
girnina hjá tnönnum, sem ef til vill hiltu eiiin eða tvo fugla
einhversstaðar í afkirna jarðarinnar. En það var árangurslaust,
geirfuglinn var útdauður — mælirinn var fullur.
Útiýmingarsaga geirfuglsins sýnir, hvað menn eru sljófir
fyrir tilverurjetti margra dýrategunda í náttúrunni. Drápgirnin
gerir menn að tilfinningalausu verkfæri t'l að útrýma þeim
við hvett tækifæri sem býðst. Sömu aðferð er nú beitt við
allan þorra íslenskra fugla. Tilvera þeirra hangir á veikum
þræði. Það vantar ekki nema herslumuninn að sumum þeirra
verði þegar útrýmt. Og það sannaðist, að ef þá vantaði
flugfjaðrirnar, eins og geirfuglinn, til þess að lyfla sjer frá
jörðinni, væru þeir fyrir löngu útdauðir hjer á landi, og stór
eyða komin í íslenska nátlúru, þar sem áður drotnaði fegurð,
líf og fjör.
Rostungurinn er sem kunnugt er útdauður hjer við ísland.
Mikið var af þeirri dýrategund til forna við strendur lands-
ins. A það benda örnefnin, sem enn eru við líði, t. d.
Rosmhvalsnes. Svarðreipi, er notuð voru í höfuðbendur á
skip, var verslunarvara íslendinga til forna. Ressa vöruteg-
und fengu þeir af rostungum, sem veiddir voru lijer við land,
og mun það meðal annars hafa stutt að því, að úlrýma iost-
ungnum. Rað sem ertir er af þessari dýrategund hefst við
latigt norður í íshafi, nálægt Grænlandsströndum, og er talið
víst, að hún verði aldauða þar með tímanum. Stundum hefir
það komið fyrir, að rostungur hefir slæðst hingað til lands-
ins rjett af tilviljun, en aldrei komist lifandi í burtu aflur, ef
nokkur ráð liafa verið að drepa hann. Morðvopnin eru undir