Réttur


Réttur - 01.02.1923, Page 51

Réttur - 01.02.1923, Page 51
Kjettur. 51 framtíðinni. Auðsafn einstakra manna, sem stafaði frá ráns- feng úr náttúrunni, átti sjer sjaldan langan aldur. Niðjarnir erfðu stundum gnólt lausafjár og höfuðbólin niðurnídd. Peir eyddu sumir lausafjenu á nokkrum áratugum og fóru síðan á vonarvöl, en höfuðbólin urðu seinast, eins og kotjarðirnar, niðurnídd og útsogin beinagrind. Bestu bújarðinar á landinu verða jafnan taldar þær, sem ótakmarkað má rækta út, þó niðurníddar sjeu, þar sem má hundraðfalda afurðirnar með ræktun, en ekki hlunnindajarð- irnar, sjeu þær ekki ræktunarhæfar að öðru leyti. Náttúran gefur ávöxtinn, og því á hún heimting á útsæð- inu. Sje þess gætt, að sá bl uppskerunnar, þurfa gæði lands- ins aldrei að þverra. Uthagagróðurinn er, eins og hver önnur hlunnindi jarðarinnar, höfuðstóll, sem aldrei má skerða, svo að honum sje hætt við rýrnun eða uppblæstri. Upp- skeran af honum, eins og ræktaða landinu, eru renturnar; þær einar hafa menn rjett til að hirða. Eftirkomendunum er það meira virði að erfa óspiltan náttúruauð, vel ræktað og gróðursælt land, en gnægð Iau3afjár í gulli og gersemum. Meðan það á sjer stað, að einn blettur er ræktaður, sam- tímis því, að annar er sviftur gróðri, er í rauninni um enga framför að ræða f landbúnaðinum. Pað er svipað eins og þegar einhver dýrategund væri tamin, til þess að útrýma ann- ari villri tegund. Flestir búa á stórum jörðum, viðáttumiklu óræktarlandi, sem lítið gefur annað af sjer en beitina. Ræktaða landið er lítið annað en túnin. Fau gefa ekki nándar nærri svo mikið af sjer, að bóndinn geti lifað af þeim eingöngu; til þess þyrftu þau að vera 3 — 4 s'nnum stærri og vel ræktuð. Hann verður því að byggja á óræktarengjutn, og misjöfnum úthög- um, eða yfir höfuð á villigióðrinum, til þess að geta lifað. Sumrin endast mönnum tæplega til að heyja nógu mikið handa búfjenu, því að jörðin er víðast hvar svo graslítil, og heyaflinn seiutekiiin. Feikna landflæmi þarf að slá, vegna þess, hvað jörðin er snögg, til að afla nægilegra heyja; helmingi Iengri tíma, og meiri vinnuafla, þarf til heyskapar- 4*

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.