Réttur - 01.02.1923, Qupperneq 68
68
Rjettur
vjer tökum betur eftir náttúrunni, þá mun oss takast að efla
jurtarækt og jarðargróður meir en verið hefir. Þegar menn
gleyma sjálfum sjer, þá gleyma menn jörðunni, en jörðin er
allra móðir. Vjer ímyndum oss, að einhverntíma muni menn
vinna eftir tignarlegri og fegri hvötum en verðlaunaloforðum
í silfurpeningum.«
Skóglendumar í Síberíu eru Ijóst dæmi þe.s hvað náttúran
áorkar, þar sem hún er sjálfráð að græða upp aftur svæði,
sem svift eru gróðri. Oft kviknar í skógunum í Síberíu af
eldingu, eða þó ö!lu heldur af hegningarverðu skeytingarleysi
manna, sent með eldinn fara. Oft geysar eldurinn um skóginn
svo vikum skiftir. Pykkir reykjarmekkir þyrlast í loft upp og
byrgja fyrir sól, á mörg hundruð kvaðratkílómetra svæði.
Úr skóginum, og undan eklinum, sópast öll dýr, sem flúið
geta. Svo tugum þúsunda skiftir æða þau langar leiðir inn í
land undan voðanum. Birnir og önnur dýr finnast eftir brunann í
hjeruðum, þar sem þau sjaldan eða aldrei hafa áður verið. En
enginn veit þó, hve mörg verða eldinunt að b áð. Árið 1870
geysaði einn slíkur skógareldur í Síberfu, brendi hann á
hálfum mánuði um há!fa miljón hektara af stórvöxnum og
gróðursælum skógi. Eftir slíka skógarbruna lítur landið ekki
út mjög gróðurvænlega. Tilsýndar að sjá er það eins og
biksvart flag, enda sjást menjarnar eftir skógarbrunann í 1 til
100 mannsaldra á eftir. Fauskarnir, sem eftir standa, eru sviðnir
og brunnir. t*eir brotna og molna niður smám saman, svo
jarðvegurinn verður stráður óteljandi hálfbrunnum og albrunn-
trjábolum. En loks eftir langan tíma framleiðir þó jarðvcgur-
inn nýtt líf, nýjan gróður. Frjófgandi afl náttúrunnar tekur
nú til starfa. Aslcan veröur að áburði og gróðurgjafa. Fyrsta
trjátegundin, sem vex á biunaland nu, er b'rkið, það gengur
á undan og greiðir öðrum skógi veg. Fræ þessi eru yfrið
ljett og berast víða undan vindinum; þau festa rætur í ösk-
unni, og eftir nokkurn tíma er kominn þarna þjettur birki-
skógur. Par næst koma barrtrjen og taka sjer bólfeslu hjá
biikinu, því að það er búið að undirbúa komu þeirra og
laga skilyrðin. Geta þau nú vaxið upp f skjóli þess. Eftir
i.