Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 7
Rjettur]
KOMANDI ÞING
135
vera um ódýrasta olíu að ræða og engin frelsishætta
samfara slíkum samningum.
Tóbakseinkasalan er frá þjóðhags-sjónarmiði engan-
veginn mikilvæg. Aðalkostur hennar er að vera tekju-
lind ríkissjóðs. En vinstriflokkunum hefði átt að vera
það metnaðarmál að hrinda henni í framkvæmd. Al-
ment er kunnugt, að núverandi Tóbaksverslun íslands
er hlutafjelag, sem helstu menn vinstri flokkanna hafa
fjárhagslega hagsmuni af og að fjelagið er með mestu
gróðafjelögum landsins. í sífellu hefir rógur og ögran-
ir öfundsjúkra íhaldsmanna dunið á þessu fyrirtæki.
Þeir hafa ekki getað gleymt því, að jafnvel undir
skipulagi hinnar dásömuðu frjálsu samkepni skildi
slíkur biti frá þeim tekinn, sem heildsölugróðinn af
% hlutum tóbaksinnflutningsins var. Alþýðan brosir
að vísu að klaufalegum tilraunum íhaldsins til að
sverta eigendur Hf. T. f. í augum hennar, einmitt fyr-
ir að gera það, sem íhaldið telur sína fögru hugsjón,
sýna »dugnað og framtakssemi« á verslunarsviðinu, og
hún ann ýmsum foringjum sínum þess vafalaust, að
gera íhaldsmönnum dálítinn grikk, með því að láta þá
•einu sinni sjá ranghverfu frjálsu samkepninnar, en hjá
hinu geta hugsandi alþýðumenn ekki komist, að áfell-
ast foringja sína þunglega fyrir að fresta stofnun
tóbakseinkasölunnar, eftir að myndaður var möguleiki
til þess að koma henni á aftur. Heiður vinstri flokk-
anna og fjölda af foringjum þeirra persónulega er í
veði, og engar ástæður eru sjáanlegar er á móti tóbaks-
einkasölu gætu mælt. En hinsvegar skyldi enginn ætla.
að í henni væri nokkur snefill af sosialisma eða þjóð-
nýtingu; það er einskær ríkisrékstur, sem átt getur við
í hvaða auðvaldslandi sem er. Því minni afsökun fyrir
Framsókn. Verkalýðnum er tóbakseinkasalan engan-
veginn beint hagsmunamál; gildi hennar liggur í því,
að draga úr gróða burgeisastjettarinnar og sameina
verslunina á einn stað.