Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 152
R i t
s j á.
Kristín Sigfúsdóttir; Gömul
sagu. Fyrri hluti: 1 meinum. Ak-
ureyri 1927. Síðari hluti: Eld-
raunin. Akureyri 1928.
Öll listaverk eiga rætur sínar í reynslu höfundarins og vaxa
þaðan eftir ýmsum leiðum. Það liggur í augum uppi, að kona
með kjör og gáfur og listaþroska Kristínar Sigfúsdóttur hefir
lifað reynslustundir, sem farið hafa eldi um sál hennar. Milli
hæfileika og lífskjara er háð grimmilegt stríð. Fluggáfuð kona,
sem gædd er ódrepandi hneigð til bókmentalegra iðkana, en verð-
ur að beygja sig' fyrir skyldustörfum bláfátækrar einyrkjakonu,
hún brýtur heilann um lög-mál tilverunnar og tilgang lífsins,
erfiðleikar lífskjaranna fylla hana marga stundina lífsergi,
fjötrar þreytunnar leggjast að sál hennar sem jámhlekkir og
þráin til andlegra viðfangsefna stynur og kveinar eins og fangi
í fjötrum. í tilbreytingarleysi sveitalífsins verða oft smávægi-
leg óþægindi í heimilislífinu að uppsprettulindum langvinnrar
óhamingju. Þar er fátt um atvik að utan, sem hrífa með sjer
og láta gleymast það, sem orðið er, og kippa í lag, hafi eitthvað
færst úr horfi. Þá verða það stóratburðir, þegar einhver atvik
róta til í heimilinu, reka í burtu kvæðaþoku smávæg'ilegra móðg-
ana og misskilnings og gefa ástvinunum tækifæri til að átta sig
á lífinu og hefja samlíf sitt að nýju á grundvelli hlýrrar ein-
drægni. Allar konur, sem lifað hafa við lífskjör þau, sem Krist-
ín hefir haft við að búa, hljóta að hafa fengið að kenna á þess-
ari reynslu að meira eða minna leyti.
Þegar um Kristínu er að ræða, þá bætist hjer við sú reynsla,
að hún verður alt í einu gripin af nýrri lífsskoðun. 1 ljósi henn-
ar verður alt mótlæti lífsins alvitur ráðstöfun frá algóðum
stjórnara allífsins. Rjettur skilningur á lífinu gerir alt mótlæti
ijettbært. Mótlætið er skilyrði til meiri þroska og í gegnum það