Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 30
Ífe8 ÚR RÚSSLANDSFERÐ [Rjettur
Iýðurinn í Rússlandi veit til hvers arðurinn af vinnu
hans er notaður. T. d. voru árið sem leið notaðar ca.
1000 miljónir rúbla til viðhalds og aukningar á iðnaði
og annari framleiðslu í Rússlandi. Árið 1925—26 voru
gjöld ríkisins þessi:
milj. eða
Stjórnarkostnaður, lögregla og her 1128 28,6%
Til uppeldis- og mentamála 273 6,9—
Til iðnaðar- og framleiðslufyrirtækja 752 19,0—
Til hjeraða og bæjarstjórna 389 9,8—
önnur útgjöld 1414 35,7—
Nú í ár eru þessar hundraðstölur: 23,0; 6,2; 28,8;
8,9; og 33,1. Er hjer ótalin öll sú menningar og við-
reisnar starfsemi sem verkalýðsfjelögin kosta og
framkvæma á eigin spýtur. — Við urðum að kannast
við, að aðstaða hins rússneska verkalýðs, er á þennan
hátt byggir sjálfur upp sinn iðnað og vinnur sjálfum
sjer til hagsmuna og menningarauka — er mjög ólík
aðstöðu verkalýðsins í Vesturevrópu, sem engu fær að
ráða um arðinn af striti sínu og verður víða, t. d. í
Þýskalandi, að horfa á mikinn hluta hans streyma í
vasa ameríkanskra auðmanna.
Við gengum í gegnum alla verksmiðjuna. Alstaðar
var unnið af kappi, en mest öll vinna er framkvæmd
með vjelum. — Verksmiðjan hefur sína eigin »sjúkra-
stofu« (Ambulatorium), með fastan lækni og nokkrar
hjúkrunarkonur. Þangað leitar hver sem meiðist eða
verður sjúkur við vinnuna. En auk þess er þar skoðað
af lækni alt nýráðið verkafólk, áður en það tekur til
starfa í verksmiðjunum. Þar er einnig sjerstök tann-
lækningastofa. öll sú læknishjálp, sem hjer er veitt, er
ókeypis. — Til verksmiðjunnar heyrir barnaheimili,
er getur tekið 40 börn. Það er í tveimur deildum. önn-
ur er fyrir ungbörn frá því þau eru tveggja mánaða
gömul. Hin er fyrir börn á aldrinum 3—7 ára. Hver