Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 84
212 ATHS. MARX VIÐ GOTHASTEFNUSKRÁNA [Rjettur
sá, að skrið komst á málið, en eftir ósigur sameignar-
lýðveldisins í París, var sambandið ekki lengur fram-
kvæmanlegt í sinni fyrstu mynd í veraldarsögunni.
»Norddeutsche« hans Bismarcks hafði alveg rjett
fyrir sjer, þegar það lýsti ánægju meistara síns yfir
því að nú hafi þýski verkalýðsflokkurinn þvegið hend-
ur sínar af alþjóðastefnunni, í hinni nýju stefnuskrá.
II.
»Á þessum grundvelli mun verkalýðsflokkur jafnað-
armanna í Þýskalandi vinna að því með öllum lögleg-
um tækjum að koma á fót frjálsu ríki og — sósíalist-
isku þjóðfjelagi. Hann mun vinna að afnámi launa-
fyrirkomulagsins, hins járnharða launalögmáls og arð-
ránsins í allri mynd. Hann mun vinna að því að út-
rýma öllum þjóðf jelagslegum og pólitískum ójöfnuði«.
Jeg kem seinna að frjálsa ríkinu.
Samkvæmt þessu á þýski verkalýðurinn að trúa á
»járnharða launalögmálið« hans Lasalle’s frá þessari
stundu! Til þess að koma því að hafa höfundarnir gert
sig seka í þeirri fásinnu að ræða um afnám »launa-
fyrirkomulagsins« (á að vera launavinnufyrirkomu-
lagsins) og »járnharða launalögmálsins«. Ef vjer af-
nemum launavinnuna, afnemum vjer einnig lögmál
hennar og skiftir þá engu máli hvort þau eru »járn-
hörð« eða dúnmjúk. En barátta Lasalle’s gegn launa-
vinnunni snýst því nær eingöngu um þetta svokallaða
lögmál. Til þess nú að sanna það, að söfnuður Lasalle’s
hafi sigrað, verður að afnema »launafyrirkomulagið á-
samt járnharða launalögmálinu« en ekki án þess.
Eins og kunnugt er, hefir Lasalle ekki fundið upp
neitt, sem snertir »járnharða launalögmálið«, nema
orðið »jámhart«, sem lánað er úr orðum Goethes: »ei-
lífum, járnhörðum, miklum lögmálum«. Orðið »járn-
hart« er vörumerki handa hinum rjetttrúuðu, en þegar