Réttur - 01.07.1928, Side 40
168
ÚR RÚSSLANDSFERÐ
[Rjettuv
tveir stúdentar og einn prófessorinn. í Rússlandi er
nokkuð erfitt að komast inn í kommúnistiska flokkinn.
Enginn er tekinn inn fyrr en löngu eftir að hann hefir
sótt um inntöku. Fresturinn mun vera heilt ár eða
meira. Þegar stúdentarnir voru bornir upp, stóðu
nokkrir menn upp hjer og þar í salnum og báru fram
athugasemdir og fyrirspurnir. Meðal annars var spurt,
hversvegna foreldrar annars stúdentsins byggju í Pól-
landi, en þar búa margir rússneskir »flóttamenn«
(Emigranter) frá byltingunni, og eru þeir flestir hin-
ir mestu hatursmenn Sovjet-Rússlands. Stúdentinn
svarar öllum þessum spurningum, og þeir eru síðan
teknir inn með því nær öllum greiddum atkvæðum.
Áður en greidd eru atkvæði um umsókn prófessorsins,
les fundarstjóri langt skjal er lýsir ágæti og afreks-
verkum hans. Það vekur mikinn fögnuð að prófessor-
inn hefur verið hlyntur baráttu verkalýðsins bæði fyrir
og eftir byltinguna og ennfremur verið meðlimur í
fjelagi einu, er vinnur að því að rannsaka og skýra
hi'nn »dialektiska materialisma« (það hefur verið út-
lagt: »rökþróunar-efnishyggja«). Umsókn prófessors-
ins er samþykt með langvarandi lófaklappi. Þá talaði
prófessoi'in n nokkur orð. Hann var á skyrtunni og til
fara eins og hann kæmi frá heyvinnu. Hægri hluti
andlits hans var máttlaus, svo að munnurinn var mjög
skakkur og hann virtist tala um vinstra munnvikið.
Hann sagði að ástæðan til að hann gengi nú í flokkinn
væri sú, að nú lægi fyrir hendi starf, sem ef til vill væri
mikilvægara en nokkuð annað, er flokkurinn hefur
þegar af hendi leyst, en það væri viðreisn landbúnað-
arins. En það telja Rússar að takist með því einu móti
að koma á vjelræktun og samvinnu í ræktun og bú-
skap (Industrialisering og kollektivisering). Taldi
hann sjer skylt að helga þessu máli alla krafta sína,
og það gæti hann best innan flokksins. Var þessari
ræðu hans fagnað mjög.