Réttur - 01.01.1974, Blaðsíða 1
léttur
57. árgangur
1 974 — 1 . hefti
LAKDSBOKASAFN
314802
Í3LANDS
Tveir atburðir framar öðrum setja mark sitt á fyrstu mánuði þessa nýbyrjaða
árs: sigur verklýðssamtakanna í nýafstöðnum vinnudeilum og undirskriftar-
safnanir hernámssinna.
Sigur íslensks verkalýðs með samningunum 27. febrúar er mikill, ekki síst
vegna þess að með honum fást verulegar kjarabætur fyrir þær konur, er
að fiskverkun vinna, auk alls annars, sem á vannst, ekki síst í skjóli þess að
vinsamleg ríkisstjórn verkalýðnum situr nú að völdum. Þessi sigur sýnir enn
einu sinni hve mikið vald verkalýðsins er, einkum þegar ekki er hægt að
beita ríkisvaldinu gegn honum, eins og gert var 1959—1971, — jafnvel að
ríkisvaldinu sé nú beitt til að uppfylla óskir verkamanna. En þessi sigur
krefst þess að íslenzkur verkalýður athugi stöðu sína alla.
Valdinu fylgir vandi. Það vald, sem verkalýðurinn hefur öðlast vegna sam-
takamáttar síns, skapar honum skyldur. Sá verkalýður, sem afnumið hefur
fátæktina og getur allt að því fyrirskipað launahækkanir og lög, verður
frekar fyrr en síðar að taka að sér stjórn þjóðfélagsins. Meðan einkaatvinnu-
rekendur ráða framleiðslutækjunum og allur atvinnurekstur miðast við þeirra
gróða, munu þeir á einn eða annan máta velta kauphækkunum af sér yfir á
verðlagið. Og þegar íslensk verðbólga er ekki lengur ein að verki með sín