Réttur - 01.01.1974, Qupperneq 15
sterkt, en íslenska þjóðin þverklofin: Bur-
geisastéttin að mestu á bandi hins útlenda
valds, voldugar stofnanir sundurgrafnar af
áróðri og áhrifum 30 ára hernáms, áhrifa-
mestu fjölmiðlar landsins, útvarp og sjón-
varp, að mestu rekin í anda afturhaldsins á
þessu tímabili og útbreiddasta blað landsins
alveg í þjónustu árásarvaldsins, þannig að
með sjónhverfingum og vélabrögðum allra
þessara áhrifatækja er búið að gera árásar-
aðila og kúgara að verndara, vin og hjálpara
í augum þúsunda Islendinga.
Viðureignin við þennan óvætt, sem á sig
tekur allra kvikinda líki, verður því bæði
löng og ströng. Því eru bækur Kristins, —
þess manns, er var í senn frumkvöðull að
skipulagningu skáldakynslóðarinnar rauðu og
andlegur leiðtogi þeirra löngum, — bækur
um reisnina mestu í sjálfstæðisbaráttunum
tveim og byltingarrætur þeirra, svo ágæmr
fengur öllum þeim, er þá baráttu eiga að
heyja. Það kom hér enn einu sinni í Kristins
hlut að skapa eigi aðeins bókmenntasögu,
heldur og að skrifa hana. Kemur hér að not-
um öll hans yfirburða þekking á félagslegum,
bókmenntalegum og pólitískum forsendum
jafnt Fjölnismanna sem „rauðra penna",
hvað hina síðari snertir mikið byggt á per-
sónulegri reynslu og þekkingu. Margur fræði-
maðurinn mun eiga eftir síðar að byggja
á ýmsu í þessum ritum, er farið verður til
hlítar að rannsaka sögulega þau rismiklu
skeið tvö.
★
Kristinn skrifar síðustu bók sína, „Ný
augu" sárveikur, veit að hann á skammt eftir
og verður að nota tímann. Og það er mikill
missir fyrir sósíalistíska hreyfingu á Islandi
að hann skyldi ekki lifa það að geta gert
hana eins úr garði og hann vafalaust hefði
KRISTINN I''■..ANDRIÍS.SON
Ný augu
TÍMAR FJÖLNLSMANNA
kosið. En það er fádæmi hvílíku hann hefur
getað afkastað á þessum skamma tíma, en
honum lá svo margt þungt á hjarta, sem
hann varð að tjá sig um.
Eitt af því varðar alla vora hreyfingu:
Hugsjónamaðurinn mikli óttast um hug-
sjónina og örlög hennar og því er rauði þráð-
urinn í þessari bók hitaður svo af hugsjóna-
eldi, að oft verður hann glóandi, jafnvel í
þeirri hætm að brenna sundur.
Það er óhjákvæmilegt í þessu sambandi að
íhuga nokkur viss vandamál, sem Kristinn
hefur auðsjáanlega verið að glíma við, því
15