Réttur - 01.01.1974, Side 31
Karl Liebknecht
Rosa Luxemburg
Wilhelm Pieck
,,En hvernig komust í yðar eigu eintökin af Rauða
fánanum?" spurði höfuðsmaðurinn lymskulega.
„Auðskilið!" svaraði Wilhelm Pieck rólega eins
og um ósköp venjulegt spjall væri að ræða, en
ekki líf eða dauða. ,,Á þessum æsingatímum verð-
um við blaðamenn að vita allt og kynna okkur
allar skoðanir. Þess vegna varð ég mér úti um
þessi eintök af blaðinu."
Meðan á þessu stóð hafði Wilhelm Pieck auð-
vitað náð sér í stól og fengið sér sæti, jafnframt
því sem hann gaf andstæðingi sínum nánar gætur.
Það lýsti sér bæði undrun og efi í svip höfuðs-
mannsins. „Ég get ekki sleppt yður fyrirvaralaust",
sagði hann loks, „fyrst verður að sannprófa fram-
burð yðar."
Hálfur sigur vakti vonir Wilhelms Pieck. Þá var
að slá út næsta trompi.
Hann reis á fætur, horfði fast á höfuðsmann-
inn, talaði með hægð og lagði þunga í hvert orð:
„Herra höfuðsmaður, í þessu hóteli eru fangar
ekki öruggir um líf sitt. Það mundi valda yður
miklum óþægindum ef eitthvað kæmi fyrir blaða-
mann frá hinu þekkta blaði Frankfurter Zeitung
meðan hann væri í yðar vörslu!"
Eftir nokkurt hik skipaði höfuðsmaðurinn liðs-
foringja einum, að láta færa fangann til næstu her-
stöðvar og láta kanna þar framburð hans. „Ég
vil ekki að neitt hendi hann", bætti hann við.
Þannig komst Wilhelm Pieck úr morðingjabælinu.
Hann var nóttina i herstöðinni og allan timann
óttaðist hann, að Pabst höfuðsmaður kæmist að
raunverulegu nafni hans. Að morgni var farið með
hann á aðra herstöð og siðan á aðallögreglustöð-
ina. Þar var hann látinn bíða úti í garðinum. Aðeins
einn varðmaður var í fylgd með honum. Wilhelm
Pieck spurði hann hvort það væri rétt, að Rósa
Lúxembúrg og Karl Liebknecht hefðu verið myrt.
Maðurinn svaraði vandræðalega: „Já, en ég kom
þar hvergi nærri!"
„Ég er vinur Karls og Rósu", sagði Wilhelm
Pieck lágt. „Nú á að fara með mig í fangelsi hers-
ins. Hver veit hvað þeir gera við mig þar. Komdu,
við skulum fara héðan áður en liðsforinginn kemur
aftur."
„Þá hypja ég mig lika burt", sagði hermaðurinn,
,,ég er búinn að fá nóg af þessum þorpurum."
Enginn varnaði þeim útgöngu um hliðið út á
götuna.
Wilhelm Pieck er frjéls.
Hann slapp frá morðingjunum, hann var ekki
drepinn.
31