Réttur - 01.01.1974, Page 42
Svipmynd frá Berlín 1945.
um þýzk-fluttrar ræðu Franks,* fulltrúa Kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu — hann var varamaður
Slanskys aðalritara flokksins, — því 1945 var ekki
gott að mæla á þýzku í Tékkóslóvakíu nema við
nána félaga.
En látum hér staðar numið — ella leiddu endur-
minningarnar of langt.
* Josef Frank var ásamt Rudolf Slansky dæmdur
saklaus til dauða í ofsóknarréttarhöldunum gegn
ágætum kommúnistum í Tékkóslóvakíu 1952 og
tekinn af lífi ásamt tíu öðrum félögum 3. des. 1952.
IV.
Kraftaverkið, sem hafið var i rústum Berlínar
1945, hefur tekizt.
Það er stolt þjóð, sem litur nú á verk sín eftir
aldarfjórðungstilveru DDR. Þýzka alþýðulýðveldið
er nú 10. mesta iðnaðarland heims. Lífskjör alþýðu
í landinu eru hin beztu í sósíalistísku ríkjunum.
Æskan er nú full trúar á framtíðina, í íþróttum
Ólympíuleikja skipar hún sér við hlið risaveldanna.
SED —hinn sósíalistiski sameiningarflokkur Þýzka-
lands — hefur haft forustuna um þessa nýsköpun
lands og þjóðar. Og hann hefur jafnhliða hinu þjóð-
lega endurreisnarafreki, sýnt slíka alþjóðahyggju i
verki, að fyrirmynd er að (Vietnam t.d.) og unnið
afrek í vísindalegu útgáfustarfi á ritum Marx og
42