Réttur


Réttur - 01.01.1974, Side 63

Réttur - 01.01.1974, Side 63
Aðvörun Sósíalistaflokksins: „Standið vörð gegn því hemámi hugans og hjartans, gegn forheimskuninni og þýlyndinu, sem leppblöðin og leppflokkar amerísks auðvalds boða, — því það her- nám er öllu öðru hættulegra.“ Úr „Ávarpi til Islendinga“ frá miðstjórn Sósíalistaflokksins 8. maí 1951. Aðvörun skáldsins, Jóns Helgasonar: Sú þjóð sem löngum átti ekki í sig brauð, en einatt bar þó reisn í fátækt sinni, skal efnum búin orðin þvílíkt gauð, er öðrum bjóði sig að fótaskinni. Sú þjóð sem horuð ærið afhroð galt af ofurheitri trú á frelsið dýra, hún býður lostug sama frelsi falt með fitustokkinn belg og galtarsvíra. Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark en aurasníkjur, sukk og fleðulæti, mun hljóta notuð herra sinna spark og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti. Sú þjóð sem dottar dáðlaus, viljasljó og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja, skal fyrr en varir hremmd í harða kló. Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja. Birt vegna undirskriftasöfnunar hernámssinna. 63

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.