Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Lætin í kringum endurkom-una hafa reyndar veriðslík að hinn harðduglegiog sívinnandi Jimmy Page, gítarleikari sveitarinnar, sá sig tilneyddan til að taka sér stutt frí skömmu eftir tilkynninguna. Far- sími Page bræddi nánast úr sér þeg- ar misgóðir kunningjar bombar- deruðu símann með sms-um þar sem reynt var að kría út miða. Þá var hægt að kaupa í gegnum þartilgerða vefsíðu sem hrundi um leið og hún var sett í gang eftir að tuttugu millj- ónir manna ruddust inn á hana sam- tímis. Allt síðan sveitin lagði upp laup- ana árið 1980 hefur hún verið í mikl- um metum hjá tónlistaráhugamönn- um; gömlu hundarnir hafa verið … ja … hundtryggir en nýjar kynslóðir hafa heldur ekki staðist töfrana og í aðdáendahópinn bætist með hverju árinu. Þetta upphlaup vegna endur- komunnar sýnir glöggt hina gríðar- miklu virðingu sem Zeppelin nýtur í dag og hún hefur losað um útgáfu- skriðu; safnplata, Mothership, er ný- komin út, eldri plöturnar eru loks fá- anlegar sem niðurhal og hin umdeilda kvikmynd, The Song Remains The Same, hefur verið end- urbætt og endurútgefin. Grant breytti öllu Led Zeppelin er ekki bara ein fremsta rokksveit sem uppi hefur verið, heldur umbylti hún ótal þátt- um í rokkmenningu samtímans. Á áttunda áratugnum náði Led Zep- pelin slíkum hæðum, bæði í tónlist- arsköpun og vinsældum, að fyrir því voru engin fordæmi. Umfangið og stærðin á öllu tengdu sveitinni var með slíkum ólíkindum að mönnum hreinlega óaði við. Ofgnóttin, ólifn- Sama lag og áður? TÓNLIST» Það er á morgun sem rokksveitin goðsagnakennda Led Zeppelin kemur saman á nýjan leik og heldur tónleika í O2-höllinni í London. Þrír af fjórum upprunalegum meðlimum koma þar fram en það er Jason Bonham sem sér um trumbuslátt, sonur trommarans sáluga Johns Bonhams, sem lést langt fyrir aldur fram árið 1980. Viðbrögð almennings við þessari endurkomu hafa verið slík að elstu menn rokkbransans muna ekki eftir öðru eins. Goðsagnir Hljómsveitin Led Zeppelin þótti marka tímamót í sögu rokksins og tónleikar hennar magnaðir. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Fátt hefur komið mönnumjafnspánskt fyrir sjónir íensku knattspyrnunni áþessum vetri og gengi Tottenham Hotspur. Liðið sem margir bjuggust við að myndi blanda sér af fullum þunga í bar- áttuna um meistaradeildarsæti marar nú í hálfu kafi í 16. sæti og hefur aðeins unnið tvo af fimmtán leikjum sínum í úrvalsdeildinni. Mikil bjartsýni var ríkjandi á White Hart Lane síðastliðið sum- ar. Tvö undangengin tímabil hafði Tottenham hafnað í fimmta sæti deildarinnar – sem er besti árang- ur liðsins í sögu úrvalsdeildarinnar – og var aðeins hársbreidd frá meistaradeildarsæti vorið 2006. Martin Jol hafði komið eins og stormsveipur frá Hollandi með væntingar og metnað í farteskinu og með áhugaverðum kaupum á leikmönnum í sumar fyrir um 40 milljónir sterlingspunda þótti liðið til alls líklegt. En gengið hefur látið á sér standa. Liðið fór ömurlega af stað og fljótlega var ljóst að Jol var kominn í hugmyndarfræðilegt þrot. Hann náði ekki að lyfta lið- inu á kreik og áður en október var allur var Hollendingurinn látinn taka pokann sinn. Inn kom Spán- verjinn Juande Ramos, sem gert hafði góða hluti hjá Sevilla. Hann hefur farið ágætlega af stað, ef undan er skilið tapið gegn Birm- ingham um liðna helgi, en alltof snemmt er að kveða upp dóm um hans frammistöðu. Hitt er þó ljóst að hann á ærið verk fyrir höndum. Valinn maður í hverju rúmi En hvað hefur farið úrskeiðis hjá Tottenham? Ekki vantar mannskapinn. Fá félög, utan hinna fjögurra stóru, eru betur mönnuð og ýmsir öfunda félagið af fram- herjunum fjórum, Dimitar Berba- tov, Robbie Keane, Darren Bent og Jermain Defoe. Sóknin hefur líka skilað sínu, liðið hefur gert 26 mörk á leiktíðinni, aðeins topplið Arsenal hefur skorað meira, 32 sinnum. Keane hefur verið fremst- ur meðal jafningja og er næst- markahæstur leikmanna í úrvals- deildinni, með 12 mörk í öllum keppnum. Allir geta hins vegar verið sammála um að Berbatov og Bent geta betur. Tottenham hefur gengið öllu verr að verjast, fengið á sig 28 mörk í leikjunum fimmtán sem er vitaskuld alltof mikið. Aðeins Derby, Sunderland og Reading hafa þurft að hirða tuðruna oftar úr netinu. Fyrir þennan leka verð- ur Ramos að komast hið fyrsta. Snar þáttur í skýringunni er fjar- vera fyrirliðans Ledleys Kings, sem enn hefur ekki látið að sér kveða á leiktíðinni vegna meiðsla. Michael Dawson og Younes Kabo- ul hafa staðið vaktina lengst af og ekki náð að stilla saman sína strengi. Sérstaklega hefur franska ungstirnið átt erfitt uppdráttar. Svo má auðvitað velta fyrir sér hvort Tottenham eigi að sætta sig við bakverði á borð við Pascal Chimbonda og Young-Pyo Lee. Þeir eru ekki miklir varnarjaxlar. Ekki var það heldur á ástandið bætandi að sjálfstraust Pauls Rob- insons markvarðar skyldi hverfa eins og dögg fyrir sólu. Allt kom fyrir ekki þótt hann andaði að sér íslensku fjallalofti. Það helst þó oftar en ekki í hendur, góð mark- varsla og góður varnarleikur. Við þetta má bæta að lykilmenn á borð við Aaron Lennon komu seint til leiks vegna meiðsla, þann- ig að leiðin hlýtur að vera upp á við. Annað er óhugsandi. Þau koma samt óneitanlega upp í hug- ann orð kollega míns sem talaði af biturri reynslu á dögunum: Lífið er of stutt til að halda með Totten- ham! Reuters Eiga mikið inni Aaron Lennon og Dimitar Berbatov fagna marki gegn Anderlecht. Tottenham þarf á framlagi þeirra að halda á komandi vikum. KNATTSPYRNA» » Aðeins Derby, Sunderland og Reading hafaþurft að hirða tuðruna oftar úr netinu. Fyrir þennan leka verður Ramos að komast. Er lífið of stutt? JÓLAGJÖFIN FYRIR ÞÁ SEM ELSKA PIPAR• S ÍA • 7 2 4 6 3 Þú ætlar að horfa á sjónvarpið - einn takki Með aðeins einum takka á fjarstýringunni kveikir þú í senn á sjónvarpinu, myndlyklinum og heimabíó- magnaranum. Sjónvarpið stillist sjálfkrafa inn á réttu rásina. Þú ætlar að horfa á DVD - einn takki Sjónvarpið stillist sjálkrafa inn á réttu rásina, það kviknar á DVD-tækinu og þú stjórnar öllum aðgerðum með Logitech fjarstýringunni. Opnunartími: virka daga 9-18 | laugardaga 12-17 | sunnudaga 12-17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.