Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 47

Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 47 UMRÆÐAN Á VÍSI.is 29. nóv- ember sl. er viðtal við Bolla Pétur Bollason, prest í Seljakirkju, vegna ákvörðunar fimm leikskóla í Selja- hverfi um að afþakka heimsóknir presta. Hér er útdráttur úr viðtalinu: „Fámennur hópur trúleysingja hindrar kirkjustarf í Selja- hverfi. Jón Hákon Hall- dórsson skrifar: Bolli Pétur Bollason, prestur í Seljakirkju, telur að það sé vegna athugasemda frá fá- mennum en háværum hópi fólks sem leik- skólastjórnendur í Seljahverfi hafi tekið þá ákvörðun að gera hlé á samstarfi kirkj- unnar við leikskólana. Í fréttum Ríkissjón- varpsins í gær var greint frá því að þrír af fimm leikskólum í hverfinu hefðu tekið fyrir heimsóknir presta í leik- skólana. Bolli Pétur Bollason, prestur í Seljakirkju. Við höfum átt gott samstarf við stjórnendur leikskólanna og reynd- ar grunnskólanna líka,“ segir Bolli. Hann segir að þau rök sem hafi ver- ið færð fyrir því að slíta samstarfi við skólana hafi verið þau að á Ís- landi væri að skapast fjölþjóðlegt menningarsamfélag og sum börnin væru ekki kristinnar trúar. „Reynd- ar verð ég að taka fram að það er ekki fólk af erlendum uppruna sem er að gera athugasemdir. Það eru miklu frekar Íslendingar sem standa utan trúfélaga,“ segir Bolli til útskýringar. Ég bjó sjálf í Seljahverfi í yfir 20 ár og starfaði í nokkur ár á einum leikskólanna sem um ræðir. Það var alltaf hátíð þegar farið var í kirkju og þegar unnið var með kirkjunni og margar góðar stundir sem börn- in áttu með prestinum. Að mínu mati og reynslu hefur kirkjan verið fasti punkturinn í hverfinu ásamt leikskólunum og grunnskólunum. Mikið og gott starf fer fram í Selja- kirkju fyrir börn og unglinga og hef- ur verið gott samstarf á milli allra. Kirkjan er nú þannig staðsett að hún er í miðju hverfinu á grænu svæði. Í kirkjunni er alltaf einhver við og hefur hún verið oft athvarf barna sem hafa verið að leik við tjörnina þar hjá ef eitthvað hefur bjátað á. Þau hafa feng- ið djússopa hjá prest- unum, kexköku og plástur á sárin sín. Árið 1992 lenti besti vinur sonar míns í alvarlegu slysi þegar þeir voru á unglingsaldri þar sem þeir voru á leið sinni á hljómsveitaræfingu. Ekið var á hann niðri í bæ af jeppabifreið á fullri ferð. Varð sonur minn vitni að slysinu. Vini hans var ekki hug- að líf og barðist hann fyrir lífi sínu í nærfellt tvo mánuði. Þegar þessi válegi atburður gerðist leituðu skólafélagar hans í Seljaskóla til sr. Valgeirs Ástráðssonar, sóknarprests í Selja- kirkju, og báðu hann að opna kirkjuna og vera með bænastund. Kirkj- an fylltist af nemendum úr skólanum að leita styrks og til að biðja fyrir félaga sínum og vini. Bænastundirnar urðu margar með þessum ungmennum. Kirkjan var fasti punkturinn hjá ungmenn- unum í hverfinu enn og aftur. Mér finnst með þessari ákvörðun að verið sé að taka frá þeim að kynnast góð- um gildum kirkjunnar. Stærstur hluti barnanna er skírður af kristn- um söfnuði og því á að taka það af þeim að kynnast kirkjunni sinni? Þeim sem ekki vilja að börn sín kynnist kirkjunni eða því starfi er hægt að bjóða aðrar stundir á með- an. Þeir sem eru annarrar trúar ættu því að fá að kynnast einnig sinni trú. Þarna finnst mér einum of langt gengið. Hafi einhvern tímann verið þörf á því að kynnast góðum gildum, kærleika og að lífið snúist um annað og meira en peninga og að eignast allt, þá er það núna. Því að taka frá þeim góð gildi kirkjunnar? Sigurlaug B. Gröndal skrifar um trúmál í leik- og barna- skólum Sigurlaug B. Gröndal » Að mínumati og reynslu hefur kirkjan verið fasti punkturinn í hverfinu ásamt leikskólunum og grunnskólunum. Höfundur er verkefnastjóri og fyrr- verandi íbúi í Seljahverfi. Fréttir á SMS Hjá Mótormax fá allir áhugamenn í mótorsportinu draumagjöfina sína. Allt frá hjálmum að skóm og allt þar á milli. Mundu að gjafabréf Mótormax er tilvalin jólagjöf. í mótorsportinuÓskagjöfin MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 www.motormax.is          Ostakarfa sælkerans > Gómsætir ostar að hætti Osta og Smjörsölunnar, ostabakki og ostahnífar, kertakveikjari og flöskuopnari. > Bæta má við léttvínsflösku í körfuna og hægt að logo merkja ostabakka, kveikjara og flöskuopnara. > Innihald: Höfðingi, Jóla Yrja, Stóri Dímon, Rjóma- ostur með svörtum pipar, Gullgráðostur, Hrókur, Mexikanskur ostur, sulta, Lorenz Clubs kex, ostabakki með segli og fjórum ostahnífum, kerta- kveikjari, og flöskuopnari. 25 stk. 50 stk. 400 stk. 5.900 kr. 5.700 kr. 5.100 kr. Höfðabakki 9 · 110 reykjavík · sími 567 0500 · tanni@tanni.is · www.tanni.is JÓLAgJAfir fyrirtækJA VAndAðAr Vörur sem berA merkið þitt VíðA skoðAðu úrVALið www.tAnni.is Föt / töskur / klukkur spil / pennar / teppi golfvörur / handklæði og fleira og fleira Ve rð er u án vs k. Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardag 10-18 sunnudag 11-17Opið Allt það fína frá Kína ATH! Þú greiðir aðeins fyrir dýrari hlutinn • Vasar • Diskar • Lampar • Pottar • Myndir o.m.fl . 2 fyrir 1 Tilboð á kínversku m listmunum til jóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.