Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Blaðsíða 9
HOLGER DRACHMANN „Skáldið er eins og hafið“. Holger Drachmann. Fá eða engin siciari alda skáld á Norðurlönd- um hafa verið skáld sjávarins í jafn ríkum mæli og danski' rititöfundurinn Holger Drachmann. Sjálfur var Drachmann svipaðs eðlis og hafið, sú hin máttuga höfuðskepna. Særinn er síkvik- ur og breytir háttum og hrynjandi á skammri stundu. Ýmist er hann ekkaþrunginn og kvein- andi eða ógnum fullur og ofsafenginn, ham- rammt, ægimattugt" tröll. Aðra stundina er sen» liann rauli vögguljóð blíðum rómi, hitt veifið æðir hann beljandi og með boðaföllum. Ýmist er hann háðskur á svip eða hýr í bragði. Stundum svigna feiknstafir í brosi. Særinn brýtur allt og bramlar, sem feykið er og meyrt, en vaggar hinu trausta þægilega á brjóstum sínum. Það er sama hvaða hamskiptum særinn tekur. Hann verður aldrei daufur. Alltaf er hann saltur og beizkur á bragðið. — Þessu líkur var Iiolger Drachmann. Sjálfur segir hann: ,,En Digter er Söen lig, han ligger med sine Luner bestandig í aaben Krig ....“. Holger Drachmann fæddist 9. okt. 1846. Fað- ir hans var kunnur skiplæknir. Þegar á barns- aldri komst Drachmann í náin kynni við hafið og farmennskuna, því að hann sigldi víða um höf á skipi með föður sínum. Næmur hugur drengsins mótaðist snemma af umhverfinu, og voru sæfarir og sæfarar honum hugleikin æ síðan. Þegar Drachmann stálpaðist, vildi hann gjarn- an halda áfram.lífi sjómannsins, en faðir hans ákvað að sonurinn yrði til mennta settur. Var Drachmann nú á skólabekk um hríð og lauk stúdentsprófi. En skapið var ákaft og ört. Hann gat ekki sætt sig við að sitja enn mörg ár við bókina. Hann tók að lifa reglulitlu og óróasömu járnlausa báta, þeir lumuðu á hinum æviforna arfi bátasmiðanna, sem gerðu Alsbátinn um 200 fyrir Kr., og ávöxtuðu hann í nýja land- inu. Verkmenning sú, er landnámsmennirnir fluttu með sér til Islands, á sér rætur óralangt aftur í forsögu Norðurlanda. Kristján Eldjárn. lífi. Vín, víf, listir og ferðalög áttu hug hans allan. Drachmann fann, að hann var fæddur listamaður. Hann ákvað að gerast listmálari, — málari sjávarins og skipanna. Drachmann náði brátt ágætum árangri í list- grein sinni. Hann málaði sterkar, hrífandi mynd- ir af hafinu og myndbreytingum þess, skipun- um, sjávarströndinni, hafnarborgunum. Jafn- framt ferðaðist hann víða um lönd, draslaði og drakk. Hann lenti til Englands, svalt heilu hungri í London, flæktist um eins og rekald í hafnarhverfunum og kynntist af eigin raun kjörum lágstéttanna. Drachmann gerðist sósía- listi. Þegar byltingin varð í Frakklandi 1871, hreifst Drachmann með af hugsjónum kommúnardanna. Um svipað leyti skrifaði hann nokkrar ferðaminningar, sem þóttu bráð- skemmtilegar og voru mikið lesnar. Og nú krafðist skáldið, sem bjó í hinum unga listmál- ara, réttar síns. í nóvembermánuði 1871 birtist í tímariti nokkru logheitt og mjög snjallt bylt- ingarkvæði: Enskir jafnaðarmenn. Ivvæðið birt- ist undir dulnefni. Leyndist það engum, sem sjá vildi og heyra, að þar hafði mikið skáld kvatt sér hljóðs. Höfundur kvæðisins var Holg- er Drachmann. Næstu ái'in starfaði Drachmann jöfnum hönd- um við pennann og pensilinn. Náði hann ágæt- um árangri í báðum þessum listgreinum. Það var ekki fyrr en hann var kominn um þrítugt, að honum þótti sýnt, að hæfileikar hans lægju fyrst og fremst á rithöfundarsviðinu. Hætti hann þá að mála og sendi frá sér hverja bókina eftir aðra, skáldsögur, smásögur, Ijóð, leikrit og ritgerðir. V ÍKINGUR 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.