Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Side 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Side 14
ast hér eins og kettlingur í koppi. Svo kom hann Jens á fæturna, og nú skreið ég með aðstoð Sörens upp um opið og leitaðist við að láta fara svo vel um mig í kjallaraholunni sem kring- umstæðurnar leyfðu. Það var nú ekkert sérlega notalegt, það verð ég að segja. Þegar ég var búinn að draga að mér fæturna og kýta höfuðið niður á hnén, þá stóð það heima, að ég hefði rúm undir kjölnum. Það var einskonar kuðungskreppa, í myrkra- skoti í ofanálag, eins og soldáti mundi segja. Ég varð að gera sjálfskeiðung úr skrokknum á mér; en hinir tveir fengu þó ennþá minna rúm. Sören skreið upp á eftir mér. Hann stakk höfðinu og efri búknum upp á milli öftustu þver- bandanna, og annar fóturinn fylgdi, en hinn hékk niður í káetuna. Það var nú síður en svo þægilegt; en verst var þó, að hann mátti ekki láta höfuðið hvílast við káetugólfið, sem að innan var svo þakið naglaoddum, að það var einna líkast gaddakylfu. Hann varð því alltaf að hafa annan handlegginn eins og kodda undir höfðinu, til þess að láta hann taka á móti nagla- stungunum, í hvert sinn er skútan tók dýfur. Hann hélt því fram, að hann hefði einhvern- tíma á ævinni legið á mýkra. Jens Tani komst ekki einusinni jafnlangt upp og við. Hann varð stöðugt að standa í vatni í geirvörtur, með höfuð og handleggi uppi í op- inu. Aftur á móti gat hann svo hreyft fæturna, og það gerði hann líka, þegar honum kólnaði um of. Að fótfestu hafði hann ofninn, sem olt- ið hafði á hliðina, þegar skútunni hvolfdi, og skondrast þráðbeint undir hleraopið, alveg eins og við hefðum lagt hann þar. Til sjóveikinnar fann hann nú ekki neitt að ráði. Að minnsta kosti talaði hann ekki um hana. Yfirleitt var lítið spjallað. Framan af sagði Sören sitt af hverju, en það var víst meir til dægrastyttingar eins og þar stendur. „Hér er bölvaður óþefur!“ sagði hann. 0g þar fór hann ekki fjarri sannleikan- um. Kjallarinn var fullur af skít og þesskonar, sem ekki er haft orð á. Enda líka mundum við hafa kafnað, þótt við hefðum einstaka sinnum áður þefað af svipuðu, en þar sem flakið hjó í meira lagi kröftuglega, barst okkur ferskt loft við hverja dýfu. Og þegar svo bar undir, að skuturinn stakkst á kaf, kom líka dásamlega ferskt loft til okkar. í hvert sinn er skuturinn þrýstist niður, þjappaðist loftið svo undir okk- ur, að við sjálft lá, að við losnuðum úr skorð- um, og þegar hann svo lyftist á ný, sogað- ist loftið frá okkur eins og gegnum ofn, og gerð- ist okkur þá þungt um andardráttinn. Þannig sátum við alla nóttina, þar til við gát- 284 um okkur til, að þriðjudagurinn hlyti að vera runninn á loft. „Hvernig er heilsan, Jens?“ spui'ði ég síðan. „Svo-na!“ svai'aði hann. „Um hvað ei’tu að hugsa, Jens litli ?“ spui’ði ég. „Ég held ég sé að hugsa um hann föðurbróður minn, hann Óla gamla í Heiðarkoti. Hann var vanur að láta gi'ísinn sofa í í’úminu hjá sér all- an veturinn, til þess að skepnunni liði vel. Ég vildi næstum að ég væri kominn í bólið gríss- ins“ „Ó, já!“ svaraði ég, „betur gæti víst farið um okkur heldur en þetta. En verra gæti það líka verið. Við erum þó, hvað sem öðru líður, á lífi.“ „Já, ennþá!“ svai’aði Sören. „Hvað ert þú að liugsa um, Söi’en?“ spui’ði ég. „Ég er að hugsa um, að það væri gott að vera kominn úr stígvélunum. Á fótunum gei’a þau ekki mikið gagn. Mér kæmi betur að hafa þau undir andlitinu og höndunum, því að naglarnir nema við beinið!“ Ég hjálpaði honum að toga í þau. Það var erfitt verk, en eftir langa mæðu gátum við los- að hann við þau og hagrætt þeirn undir honum. „Sko, það dugði!“ sagði hann. „Þú mátt fjanda kornið ekki sofna, Óli!“ sagði hann nokkru síðar. „Þú þjai’mar svo að hryggnum á mér, að ég næ vai’la andanum. Það er, skal ég segja þér, ekkert þægilegur hluti af kjallarahlei’anum, sem ég hef undir bi’jóst- inu. Það er eins og ég liggi á rakhníf!“ Ég skildi vel, að það var ekkert notalegt fyr- ir hann. Ég var elztur okkar þriggja. Ég hef nærri hálfa öld að baki, skal ég segja yður, og drunginn sezt að manni á þeim aldi’inum. En þegar Sören var búinn að aðvara mig, gerði ég það, sem ég mátti, til þess að halda augunum opnum. Síðan leið víst aftur nálægt tíu stundum, og samkvæmt áætlunum okkar hlaut að vera tals- vert áliðið dags. Svo spurði ég Söi’en: „Ei’tu svangux’, Sören?“ „Nei!“*sagði hann. „Eða þyi’stur?“ „Nei!“ sagði hann. „En ég þyrfti helzt að hægja mér!“ „Láttu það fara!“ sagði ég. „Hér hefur kom- ið fólk fyrr!“ Rétt á eftir rakst flakið á. „Varst það þú, Sören?“ spurði ég. „Nei, það var skipið, sem tók niðri.“ „Það var þá á klöppum,“ sagði ég. „Þá hljót- um, við að vera á sænsku ströndinni!“ „ó, já, guð lijálpi okkur!“ sagði Jens. „Já, nú skulum við sjá, hvort hann vill!“ sagði ég. „Og ef hann getur, gerir hann það VtKINGVR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.