Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 20
og líka að hinar stóru, áðurnefndu fiskveiða- þjóðir munu stunda hér veiðar í Norðurhöfum á hundruðum slíkra skipa, þá er ekki nein goð- gá að gera ráð fyrir þessum togai-afjölda hjá okkur fslendingum. Undanfarna áratugi hafa þessi atvinnutæki verið stærsti og bezti bak- hjallurinn í íslenzkum þjóðarbúskap, og svo hygg ég að verði um næstu framtíð. Lítum á litflutningsskýrslurnar undanfarin mörg ár, þá mun sjást að hér er ekki farið með neina stað- lausa stafi. Það getur vel farið svo, að við verð- um að sækja afla á hinum stóru togurum til fjar- lægari miða, t. d. til Grænlands, Bjarnareyjar og fleiri staða; mætti þá aftur nota minni tog- arana á sömu slóðum og nú tíðkast. Undanfarið hefi ég dvalið við togarana, en mun nú snúa mér að hinum smærri útvegi, mótorbátunum. Þeir hafa undanfarna áratugi verið stór þáttur í atvinnulífi íslendinga. Hafa þeir víða hér við land sett svip á sjávarþorpin. Hefir nú á allra síðustu tímum komið mikill vöxtur í þá útgerð. Er ekki nema gott eitt til þess að segja. Von er nú á 45 skipum heim á næstu mánuðum, sem byggð hafa verið úti í Svíþjóð fyrir milligöngu íslenzkra stjórnar- valda. Ennfremur hafa verið keypt nokkur ný og nýleg skip í Svíþjóð. Loks hefir verið ákveð- ið að byggja um fimmtíu 35 og 55 smálesta báta innanlands, auk þess sem nokkur skip eru hér fyrir í smíðum. Verður því talsverð aukning og endurnýjun á mótorbátaflotaokkar íslendingaog bátarnir væntanlega búnir öllum beztu tækjum, bæði hvað öryggi snertir og eins tií aflafanga. Því aðeins getum við vænst árangurs af aukn- um og endurnýjuðum skipastól, að skipin séu búin hinum fullkomnustu tækjum, en á því hefir oft orðið mikill brestur. En vel skyldi það at- hugað, að þar sem svona ör vöxtur verður allt í einu á mótorbátaflotanum, þá er hætt við að sjómenn okkar vilji frekar, af eðlilegum ástæð- um, vera á stærri bátunum,en þeim minni. Þarf þá vel að athuga, að ekki má framleiða of mikið af hinum smærri bátum, heldur láta hina sitja í fyrirrúmi. Þá má loks nefna eina tegund fiskibáta, en það eru hinir svonefndu trillubátar og jafnvel opnir árabátar. Ég býst við að þeir verði við líði enn um skeið og er ekkert við því að segja. Víða eru staðhættir þannig, að þeir verða enn um skeið einu fleyturnar frá vissum stöðum hér við land, sem hægt er að afla fiskjar á. Eiga út- gerðarmenn þessara báta sömu kröfu á hendur ríkisvaldinu og hinir, sem stærri skipin kaupa. Það segir sig sjálft, að þegar gera á svona myndarleg átök eins og hér er stungið upp á að gerð séu, (aukning togaraflotans) og sumpart er verið að koma í framkvæmd, að til þess þarf mikið fé. Og sem betur fer þurfum við nú ekki 290 að kenna um fjárskorti, það eru nóg fjárráð til að kaupa 70—80 togara, fást þá þeir, sem aurana eiga, til að leggja þá í togaraútgerð. Úr því fæst líklega brátt skorið. En þeir, sem vilja hætta fé sínu í útgerð, eiga þá kröfu á hendur ríkisvaldinu, að það sjái um að aðgengileg lán fáist til kaupa skipanna. Nýbyggingarráð hefir samið frumvarp til laga um breytingu á lögum um Fiskveiðasjóð íslands. Hefir ráðið þar notið aðstoðar ýmissa góðra manna, og mér finnst að frumvarp þetta, ef að lögum verður, hljóti að marka tímamót í sögu hins íslenzka sjávarútvegs. Ég ber það traust til hæstvirtrar ríkisstjórnar að hún fylgi þessu máli fast fram á haustþinginu og verði það eitt af fyrstu verkum þess þings að leggja blessun sína yfir það mál og koma því heilu í höfn. í nefndu frumvarpi — án þess að ég fari út í einstaka liði þess — er gert ráð fyrir að sjóð- urinn verði efldur svo mikið að hann verði að voldugri lánsstofnun útvegsmanna, sem og þeirra, er byggja vilja verksmiðjur til fiskiðn- aðar, dráttarbrautir o. fl. til hagsældar útgerð- inni, sem miðar til alþjóðarheillar. Er gert ráð fyrir heimild til að lána % út á skip, en % út á önnur mannvirki samkv. áðursögðu. Þó er þess að gæta, að hér er miðað við hámark lána út á kostnaðarverð fyrirtækis. Það er á valdi sjóð- stjórnar að ákveða lánsupphæð. Er þetta regin- breyting frá því sem áður var. Þá er og í sama frumvarpi gert ráð fyrir að vextir verði 2(4 %• Það er líka lækkun. Fjárskortur og óbærilegir vextir hafa oft á undanföi'num árum legið eins og mara á útgerð- inni. Slíkt má aldrei koma fyrir aftur. En verði umrætt írumvarp að lögum, er komið drengi- lega á móti þeim einstaklingum, félögum og öðr- um þeim, sem leggja vilja peninga í útgerð. Ég skal strax taka fram, að ríkissjóði, samkvæmt greindu frumvarpi, er ekki ætlað að veita Fisk- veiðasjóði neina aðra hjálp né styrki, en að á- byrgjast þau lán, sem sjóðurinn þarf til að ann- ast þetta sitt stóra hlutverk. í nefndu frumvarpi kemur fram mikil bjart- sýni og trú á íslenzkan sjávarútveg og tel ég það gott vera, en eins og ég sagði áðan, þá hvíl- ir sú skylda á því opinbera, að koma drengilega á móts við þá, sem leggja vilja peninga sína fram til stuðnings framleiðslu bæði til sjávar og sveita. Því þarfara verk tel ég þá krónu vinna, sem fer til eflingar framleiðslu, sem skapar okkur erlendan gjaldeyri og þjóðinni vel- megun, en hina krónuna, sem lögð er í glingur til að prýða búðargluggana eða þá í saumastofur til að sauma úr haldlitlu erlendu taui. Þá vildi ég næst koma inn á hagnýtingu afl- VÍKINGUK

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.