Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 30
11 kílómetra frá stærstu flotastöð Norðurríkjamia, Hampton, var sú að verkamennirnir í skipasmíðastöð- inni og íbúarnir 1 nágrenni hennar voru Suðurríkja- mönnum vinveittir og veittu þeim hjálp þegar hersveitir þeirra hófu skyndisókn til Norfolk. í sigurvímunni sýndi her Suðurríkjamanna eignum Enski bryndrekinn „The Warriorsmíðaður árið 1860. Norðurríkjanna enga hlífð, hvorki á sjó né landi. Eldur kom upp í freigátunni. Hvort kveikt var viljandi í henni eða eldurinn kom upp vegna ógætni skal ósagt látið. Hið síðara er þó sennilegt, því mikil áherzla var lögð á að ráða niðurlögum eldsins. Þegar það loks tókst voru reiði og siglur „Merrimac’s" brunnin til kaldra kola, og skipið hafði hlotið svo mikinn skaða ofan þilja, að hin glæsta freigáta var nú ekki annað en sótugt og sviðið flak. Aðgerð var ekki talin ómaksins verð, því engum kom til hugar að freigátan gæti nokkru sinni framar orðið nothæft herskip. Síðar meir hugkvæmdist þó Suðurríkjamönnum að ef til vill gætu þeir, þrátt fyrir allt, notað flakið til þess að vinna fjandmönnum sínum ógagn. Nokkrir ráðsnjallir menn úr þeirra flokki töldu að slíkt yrði bezt gert á þann hátt að breyta skipinu og vígbúa það eftir hinum nýju aðferðum, sem ýmsar Evrópuþjóðir voru nú farnar að nota á herskipum sínum. Flakið af hinni glæstu freigátu, sem dæmd hafði verið ónýt endurreis nú sem óskapnaður í augum allra sjó- manna. Bolur skipsins var brynvarinn frá skutaðstefni. I þessari nýju mynd átti skipið eftir að reynast ógnar- skelfir hinum mörgu skipum andstæðinga sinna, þó ekki yrði lengur en einn dag. Skorið var ofan af skipsboln- um svo borðstokkurinn reis aðeins þrjú fet upp fyrir vatnsyfirborð. Sprengjuheld yfirbygging með að- dregnum veggjum var yfir öllu skipinu og hlífði bæði stýri og skrúfu. Þessi yfirbygging var gerð úr 20 þuml. þykkum eikarplönkum og klædd 4% þumlunga þykkum járnplötum. Skipshliðarnar voru varðar með samskon- ar plötum sex fet undir yfirborði sjávar, en kinnungar og skutur með stálplötum. Stefnið var útbúið með langri og hvassri stáltrjónu eða „hrúti“ undir vatnsyfirborði. Skipið hafði engin siglutré. Reykháfurinn, flaggstöng- in og lítill, brynvarinn sjókortaklefi var hið eina sem '300 hærra bar en þiljur eða þak hinnar brynvörðu yfir- byggingar. Byssur skipsins voru undir yfirbyggingunni, alls átta að tölu, 11 þuml. víðar, þrjár á hvorri hlið, en ein í skut og ein í stefni þessa ferlega risaskrokks. „Merrimac," sem með himingnæfandi reiða og' hvít- um seglaturnum hafði verið augnayndi alira sjómanna, var nú orðið slíkt afskræmi, að sjónarvottur að sigl- ingu þess út frá skipasmíðastöðinni líkti því við krókó- díl marandi í kafi í sjónum. Suðurríkjamenn skírðu fer- líkið upp og nefndu „Virginíu". En jafnt í munnmælum sem í sögunni hefir skipið haldið nafninu „Merrimac", og er þvi engin ástæða til að nota hér annað nafn þegar lýst er hinu skammvinna frægðarskeiði þess. I dögun 8. marz 1862 lagði „Merrimac" út frá Nor- folk, undir stjórn Buchanans kapteins, og tók stefnu beint til Hampton, þar sem fimm freigátur Norður- ríkjanna, „Congress“, „Cumberland", „Minnesota", „St. Lawrence" og „Roanoake" láu ásamt nokkurum smærri hei;skipum. Áhöfn þessara fimm skipa var alls 2000 manns, og vopnaðar voru þær 150 fallbyssum, en skipin voru öll úr tré án nokkurrar brynvarnar. Stafalogn var um morguninn. Sýnilega væntu áhafnir Norðurríkjaskipanna ekki árásar. Mátti sjá það á því, að bátar skipanna flutu við hliðar þeirra og klæði skips- manna hengu til þerris í reiða skipanna. Enginn við- búnaður var hafður til að taka bátana um borð eða bjarga þvottinum. Hver var orsök þessa kæruleysis? Höfðu Norðurríkjamenn ekki ennþá séð hinn undarlega, svarta, válega gest, sem nálgaðist, eða vissu þeir eng- in deili á honum, er þeir sýndu komu hans slíkt tóm- læti? Var hugsanlegt að þeim væru með öllu ókunnug- ar athafnir Suðurríkjamanna í Norfolk. Eða voru þeir vopnaðir tundurskeytum, sem þeir treystu að mundu nægja til að sökkva jafn vel brynvörðu skipi og „Merri- mac“ á skemmri tíma en einni mínútu? Þessar spurn- ingar voru ræddar meðal fylgjenda Suðurríkjamanna, sem úr landi fylgdust með atburðunum. Snögglega komst hreyfing á allt um borð í freigát- unum. Flauturnar kváðu við í morgunkyrrðinni. Búist var um á öllum skipunum og spurningunum þannig að nokkru leyti svarað. „Merrimac" hóf orrustuna með því að skjóta á „Con- Freigátan ,,Merrimach“, áður en henni var breytt í bryndreka. VtKINGVR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.