Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 32
■
Bardaginn í Mobile Bay fí. ágúst 18fí4
ir, er þeir sigldu „Merrimac," sem þeir töldu ósigrandi,
út frá Seawall’s Point, byggi yfir einhverri hættu, að
öðrum kosti hefðu þeir naumast farið jafn varlega og
raun var á, er þeir ætluðu að hefja eyðileggingarstarfið,
sem frá var horfið daginn áður. Hið sama átti sér stað
með „Monitor" er það nálgaðist andstæðing sinn. Því
var líkast sem skipin sætu hvort um sig um að finna
heppilegasta árásaraugnablikið.
„Monitor" skaut fyrsta skotinu á nálægt 100 metra
færi. Eftir það hófst bardaginn með ofsalegri skot-
hríð á báða bóga, án þess þó að valda nokkru verulegu
tjóni. A þessu langa færi hrundu kúlurnar blátt áfram
af brynplötum skipanna. Þá missti Buchanan kapteinn
þolinmæðina og ákvað að freista að sigla andstæðing
sinn í kaf. Fyrsta tilraun hans í því augnamiði mis-
tókst algerlega vegna þess hve „Monitor" lét fljótt og
vel að stjórn. Endurtekin tilraun, þar sem honum tókst
að hitta turnskipið lítið eitt framan við miðju, hafði
þær afleiðingar að „Monitor“ snerist eins og skoppara-
kringla, en hélt jafnvægi og var með öllu óskemmt af
kúlnaregninu, sem „Merrimac" jós yfir það samtímis.
Meðan stóð á „hringekju skemmtuninni", sem „Moni-
tor“ hlaut, hafði það hætt að skjóta. Ahöfn þess var nú
sannfærð orðin um það að því yrði hvorki sökkt með
ásiglingu né skotum og tók því með köldu blóði kúlnaélj-
unum, sem „Merrimac" hellti stöðugt yfir það. A stuttu
færi hóf nú „Monitor“ að hringsóla kringum andstæðing
sinn unz það virtist hafa fundið heppilegt skotmark
fyrir Dalgren-fallbyssur sínar. Nú sendi það „Merrimac"
tvær kúlur, sem báðar gengu í gegnum brynvörn þess
og tihburklæðningu, og ollu miklu hervirki innan í hin-
um ferlega skipsskrokk. Þriðja skotið fylgdi brátt á
eftir, og nú biðu Suðurríkjamenn ekki eftir fleiri slíkum.
Illa leikið lagði „Merrimac" á flótta svo hratt sem það
komst. Þannig lauk þessum þætti borgarastyrjaldai'inn-
með fullkomnum sigri „Monitors“ John Ericson’s.
Viðui'eignin á Hampton skipalægi, 9. marz 1862 mark-
ar þýðingarmikil tímamót í sögu sjóhernaðarins. Nú
hófst bygging turnskipa af ýmsum gerðum, sem allar
voru þó grundvallaðar á sömu frumatriðum og bygg-
ing „Monitors" John Ericson’s og reynslu þeirxd, sem af
því skipi fékkst. En „Monitor" var um langt skeið mest
umrædda skipið og í mestu áliti. Byggingar þessar
áttu sér ekki eingöngu stað í herskipasmíðastöðvum
Noi'ðurríkjanna heldur einnig með öðrum þjóðum. Bi'átt
létu skipasmiðirnir sér ekki lengur nægja að byggja
turndi'eka með einum bryntuimi heldur tveimur, sem
snúa mátti eftir vild og þörfum. í því efni gengu Norð-
uiTÍkin á undan. Slíkum tvítui'nuðum skipurn var það
mest að þakka að Suðurríkin biðu úrslitaósigur í sjó-
orustunni við Mobile Bay þann 5. ág. 1864.
Þó turnskip þessi þættu hin ágætustu að orustuhæfni
til sti'andvai'na og í bai'dögum veð önnur skip á grunnu
vatni, kom brátt í ljós að þau voru ekki heppileg her-
skip á höfum úti. Til þess höfðu þau of lítið rúm fyrir
eidsneyti — kol. Hinir þungu bryntui'nar og stóru fall-
byssur, ásamt því, hve lítið borð þau höfðu fyrir báru
ollu því að í stói'sjó líktust þau mest neðansjávarbát-
um, og var þó sízt til slíks ætlast. Ganghraði þeirra var
auk þess lítill.
Fi'am að árinu 1870 hafði hvarvetna í Evi'ópu verið
leitazt við að x-áða bót á þessum göllum, og fjölda marg-
ar gerðir höfðu smám saman séð dagsljósið. Það bygg-
ingarlag, sem á þeim tíma vakti mesta athygli og mest
var um rætt var hið svokallaða haffæra turnskip, „The
Captain", sem enska flotastjómin lét byggja eftir teikn-
302
VlKINGUR
i