Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 44
fram þakkarguðsþjónustur í öllum kirkjum landsins, einnig í Ameríku. Blað eitt í Hollandi sagði, að fólkið á götunum í Amsterdam hefði grátið af gleði, er það heyrði tíðindin. Jafnvel Tyrkjasoldán sendi „hróður sín- um,“ hinum göfuga keisara allra Frakka, heillaskeyti. Allt til hinna fjarlægu nýlendna Breta og Hollendinga í Indlandi bárust áhrif þessara atburða. Og átta hundr- uð Kaffar úr villtasta kynflokki Suður-Afríku komu til trúboðans, köstuðu frá sér lensunum og sögðu: „Nú viljum við kristnast!“ Og hin rólynda þýska þjóð gat þá heldur ekki orð- ið ósnortin af hinum eldlega áhuga, er þannig ruddi sér braut um öll lönd jarðar. í fyrstu, er það fréttist, að franski herinn fyndist ekki, skömmuðust blöðin yfir hugleysi Frakkanna, en fljótlega breyttist tónninn í þeim. „Berliner Tageblatt“ varð fyrst til þess að tala um okkar frönsku jafningja“, því næst „okkar frönsku bræður", og Hamburger Nachrichten" birti grein um skattkröfutillögu, þar sem sagt var, að ekki væri rétt- lætanlegt að koma heim sem ræningi frá þjóð, er svo vinsamlega hefði tekið okkur. Erfiðast var að eiga við hermennina okkar. Tala liðhlaupa, sem óðfúsir vildu komast heim til sín, óx óhugnanlega. En þegar við vorum í París og höfðum i'áðgazt um það í nokkra daga, hvað gera skyldi, fór einnig að bera á andstöðu gegn okkur hjá þeim her- flokkum, sem til þeSsa höfðu sýnt fyllstu tryggð. Stál- hjálmasveit Ágústínu keisaradrottningar sem formsins vegna bar að halda vörð um aðalherráðið fór að láta í ljósi óánægju sína mjög berlega: „Frakkar gera okk- ur ekkert mein, hví skyldum við þá vinna þeim tjón?“ sögðu dátarnir, og beint fyrir framan gluggann á her- bergjum herforingjaráðsins æptu þeir: „Niður með skattana! Frakkland lifi!“ Ungur herráðsforingi varð svo örvita, er hann heyrði þessi óp af þýskum vörum, að hann þreif til skamm- byssunnar og skaut í hópinn. Ég vaknaði við hvellinn, hentist til og varð þess vísari, að ég lá í rúminu! Ann- ar livellur heyrðist, en hann hljómaði eins og snöggt högg á dyrnar. Aðstoðarforingi minn kom inn. Yðar göfuga tign, — sagði hann, — við höfum fund- ið óvinina við Wörth, og við Spiechen hófst fyrsta or- ustan. Af okkar liði eru 80 fallnir. Ófriðurinn var hafinn, og honum lauk eins og ég hafði þegar séð fyrir. Allar áætlanir mínar stóðust, og allar mínar vonir rættust. Og þó, þegar hugur minn hvarflar meðfram gröfum föllnu hermannanna á Pravelotte sléttunni, þegar mér verður hugsað til allra þeirra hörmunga, sem ófriður- inn hefur fært þessum tveimur stórþjóðum, verð ég að játa með hryggð í huga, að fegursti draumur lífs míns hefur enn ekki rætzt og rætist sennilega ekki fyrst um sinn. Þó ekki vegna þess, að þjóðirnar séu svo mjög ófriðsamar, heldur hins, að þær eru allar of deigar, of huglausar til að „játast kenningum Krists“, eins og presturinn í Saint-Privat sagði. Einmitt þess vegna grípa þær allar til sverðsins, og fyrir sverðinu hljóta þær því að falla. Frakkar í dag, við á morgun. Marskálkurinn þagði, og stundarkorn þögðu þau öll og horfðu á litlu jólatrésljósin, hlustuðu á hringingar litlu klukknanna, sem svo lengi hafa kallað „frið á jörð“, án þess þó að mæta endurhljómi skilningsins í hjörtum mannanna. Guðvi, Guðmundsson frá Ófeigsfirði þýddi. Ekknasjóður íslands. Þann 21. janúar 1943 lagði kona, sem ekki vill láta nafns síns getið, fram 1000,00 krónur að gjöf til sjóðs- stofnunar. Sjóðurinn skyldi bera nafnið Eklcnasjóður Islands. Sjóðurinn er stofnaður af sjómannskonu og þetta þús- und króna framlag var hluti af áhættuþóknun manns hennar. í skipulagsskrá sjóðsins er svo kveðið á, að honum skuli stjórnað af biskupi fslands, yfirlækninum við tryggingarstofnun ríkisins og einni konu, tilnefndri &f þeim, og hefur frk. Inga Lárusdóttir tekið við tilnefn- ingu í stjórnina. Takmark sjóðsins er að styrkja fátækar ekkjur á ís- landi til að halda heimilum sínum og ala upp börn sín, einnig þær, er mennirnir hafa yfirgefið, án þess að þær eigi sök á. í skipulagsskránni er mœlt svo fyrir, að eigi megi veita fé úr sjóðnum fyrr en höfuðstóll hans er orðinn 100 þúsund krónur, og aldrei þó meira fé, en árlegum vöxtum nemur. Ennfremur er svo kveðið á, að verði eigi þörf á að styrkja ekkjur, vegna þess að fyrirhuguð ekknatrygg- ing ríkisins verði svo rífleg að hún nægi, skuli fé sjóðs- ins varið til mannúðarmála og líknarstarfsemi í sem beztu samræmi við upprunalegan tilgang gefandans og skipulagsskrána. Skipulagsskrá sjóðsins var útgefin af dómsmálaráð- herra 21. janúar 1944 og birt i sjórnartíðindum það ár (A.3, B.4, bls. 57—58). Mjög hljótt hefur verið um sjóðsstofnun þessa og hef- ur sjóðurinn því lítið vaxið. Sjóðseignin er nú um 1500 krónur. Stjórn sjóðsins hefur álitið rétt að vekja nú athygli almennings á honum, með því að fæstum mun kunnugt um, að hann sé til. Oft hefur því verið hreyft, að stofna beri einn allsherjar líknarsjóð, og má telja, að þessi sjóður sé fyrsti vísirinn. Nú er hinn mikli hildarleikur. genginn um garð, og standa vonir til, að mannfórnum vorum af hans völdum geti verið lokið. En ber oss þá ekki að minnast ekkna og barna þeirra manna, sem féllu? Það var sjómannskona, sem stofnaði þennan sjóð með hluta af áhættuþóknun manns hennar. Er næsta líklegt, að konur og menn vilji nú feta í fótspor hennar, er þeim er kunnugt um fordæmið, og efli Ekknasjóð íslands. Biskupsskrifstofan veitir framlögum viðtöku. 314 VlKlNGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.