Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 48
Að lönduninni lokinni var farið aftur á somu slóðir og fékkst þar annar sæmilegur túr. Síðan hafa íslenzkir togarar stundað veiðar á Horn- banka og oft fengið góðan afla, einkanlega síð- ai’a hluta maí og í júnímánuði og sömuleiðis vetrarmánuðina desember og janúar. Þórður Sigurðsson. Haustið 1915 að síldveiðum loknum, sendi h.f. Kveldúlfur togara sína, Skallagrím, Snorra Goða og Snorra Sturluson til viðgerðar til Kaup- mannahafnar. Komum við úr þeii’ri ferð snemma í desember og var þá búizt á veiðar 10.—12. desember. Veðrátta var mjög slæm, sífelld aust- an stórviðri og hvergi fisk að fá, enda ekki hægt að fiska nema á grunnmiðum. Eftir viku tíma vorum við að toga, í mjög slæmu veðri, grunnt undan Skálavík og var lítill afli. Síðustu fjóra dagana höfðum við verið á líkum slóðum og Skallagrímur; skipstjóri á honum var þá Guð- mundur Jónsson á Reykjum. Um hádegisbilið talaði hann við okkur, hafði hann verið úti nokk- uð lengur en við, sagði hann, að hér fyrir vest- an væri ekkert að fá, nema illviðrið. Sagðist hann ætla suður í Faxaflóa og hélt að fiskur myndi vera í Garðsjó, sem algengt var um þetta leyti árs, nokkru fyrir jól. Nokkru síðar héld- um við inn á Hesteyri og lögðumst þar. Heldur þótti mér horfa óvænlega með túrinn og var nú farið að athuga, hvernig vænlegast væri að bjarga honum. Kolin voru slæm, tekin í Höfn, og vorum við búnir að nota mikið af þeim. Datt mér þá í hug mið það, sem Þórður hafði talað um 1911, út með Djúpinu og var nú ákveðið að reyna þar þegar lygndi. Um kl. 3 um morgun- inn var vindur nokkru hægari, og hafði mig dreymt fiskilega um nóttina. Var þá akkerum létt og haldið út. Þótti það æði langt að halda fimm tíma beint til hafs. Austan stormur var, en fór heldur lygnandi. Klukkan 10 f. h. var 318 kastað á 85 faðma dýpi, mjög nálægt þeim slóð- um, sem Þórður hafði lýst. Var þar ágætur afli, en ekki þó mok. Komumst við á um eða yfir 100 faðma og var þar mikið af karfa. Héldum við okkur á 85—90 föðmum og rifum ekki mjög mikið. Aflinn var vænn þorskur og mjög mikið af smá- og stofnlúðu. Á aðfangadag vorum við orðnir íslausir og mikill fiskur á þiljum; var þá haldið til Patreksfjarðar eftir ís. Austan strekk- ings storumr var alla dagana, en sjólítið. Ekk- ert skip sáum við þessa daga, enda var skyggni slæmt. Þegar við höfðum siglt rúman klukku- tíma á leið til Patreksfjarðar, fórum við fram- hjá botnvörpungnum Apríl, dálítið á stjómborða — skipstjóri á honum var Þorsteinn Þorsteins- son —; fyllti Apríl sig í þessari ferð á mjög skömmum tíma. Hjalti Jónsson fór svo með skipið til Fleetwood kortalaus eða kortalítill, eins og getið er um í bókinni Eldeyjar-Hjalti. Við fengum ísinn mjög fljótt á Patreksfirði og lágum þar til kl. 2 f. h. á jóladag. Aðfanga- dagskvöld var ég í boði hjá Ólafi sál. Jóhannes- syni konsúl og konu hans, og verður þetta kvöld mér lengi minnisstætt fyrir þær ágætu móttök- ur, sem ég hlaut þar, og er það ágætasta að- fangadagskvöld, sem ég hef notið utan heimilis míns. Var það í fyrsta, en ekki í síðasta sinni, sem ég naut hinnar landskunnu gestrisni, sem á því heimili ríkti. Við fórum út eins og áður er getið kl. 2 f. h. á jóladag í sama austan stormi. Héldum við suð- ur á Röst, fiskuðum þar úm það bil í sólarhring, og var góður reitingur af kola. Við komum inn á þriðja í jólum og héldum svo til Fleetwood og fengum ágætan markað. Ekki fórum við þarna út aftur í næsta túr, enda var sífellt illviðri. Þennan vetur var tíð ákaflega slæm, en um mánaðamótin janúar og febrúar gerði mjög góða tíð, og var vertíðin 1916 vanalega nefnd vertíðin góða. Mátti heita að ekki tæki úr dag. Árið 1921 sendi h.f. Kveldúlfur þrjú af skip- um sínum á saltfiskveiðar í miðjum nóvember sem var algengt í þann tíma. Voru það Skalla- grímur yngri, Þórólfur og Snorri Sturluson yngri; var ég þá skipstjóri á Þórólfi, afburða góðu skipi, og var það álitið bezta skip togara- flotans og er það líklega enn. Reynt var á þess- um vanalegu stöðum, báðum megin við ísafjai’ð- ardjúp, á Hornbanka og víðar. Fiskur var mjög tregur, en tíð frekar góð. Öll skipin höfðu farið út um líkt leyti, því að verkfall hafði verið um haustið og öll skip voru á ísfiskveiðum nema þessi þrjú frá Kveldúlfi. Eftir að hafa reynt til og frá, datt mér í hug að reyna á sömu slóðum og um jólaleytið 1915. IJélt ég suður fyrir Djúp og út með því. Veður var gott og sást vel til lands. Kastaði ég þar á VlKlNGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.