Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Qupperneq 64
gerði 32 vélbátar, 12—42 smálestir að stærð, og auk þeirra einn vélbátur 55 smál., sem gerður var út á veiðar með botnvörpu. Á þeirri vertíð henti það slys, að þá fórst vé!- báturinn óðinn frá Gerðum, með allri áhöfn. Gæftir á vertíðinni voru dágóðar. Meðaltai róðrafjölda var 62 róðrar. Afli var góður, þótt misjafn væri. Hæsti bátur hafði 1730 skippund af fiski, en meðalafli var 900—1000 skippund. Lifrarmagnið í allri verstöðinni var 990 þús. lítrar. úr lifrinni fengust um 500 smálestir aí' lýsi. Ilæsti bátur þessa vertíð var Faxi úr Garði, skipstjóri Þorsteinn Þórðarson. Aflaði hann 1730 skippund og var lifrin 54 þús. lítrar. Annar Gunnlaugur Jósepsson, oddviti og hreppstjóri í Miðneshreppi. að aflamagni var Gunnar Ilámundarson, skip- stjóri Gísli Halldórsson. Lifrarmagn hans var 51 þús. lítrar. Síðasta vertíð í Sandgerði, 1945, var með lík- um hætti og næsta ár á undan. Fyrstu bátar hófu veiðar í byrjun janúar, en aðkomubátar komu sumir ekki fyr en í janúarlok eða febrúar- byrjun. Afli var óvenju góður í janúarmánuði, og misstu hinir síðbúnu bátar því mikið úr. Voru hæstu bátar komnir með 300—400 skip- pund fiskjar í lok janúar. Bátar þeir, sem veiðar stunduðu frá Sandgerði þessa vertíð, voru 28 að tölu. Bátar þessir voru frá eftirtöldum stöðum: Fjórir frá Sandgerði, sjö úr Garði, tveir úr Keflavík, þrrí úr Hafnar- firði, einn úr Ólafsfirði, tveir frá Dalvík, tveir frá Norðfirði, fjórir frá Eskifirði og einn frá Reyðarfirði. Meðalróðrafjöldi var 70 róðrar á bát, en flest voru farnar 97 sjóferðir. Hæstur afli í einum róðri var 42 skippund. Mestur afli á bát yfir vertíðina var 1700 skippund. Lifrarmagn það, er úr fiskinum fékkst, var 870 þús. lítrar sam- tals, og var það nokkru minna en árið áður. úr lifrinni fengust um 450 smálestir af lýsi. Hæstu bátarnir voru þessir: M.b. Víðir frá Garði, skipstjóri Garðar Guð- mundsson, fékk 53 þús. lítra lifrar í 97 róðrum. 334 Faxi frá Garði, skipstjóri Þorsteinn Þórðarson, 51 þús. lítrar í .53 róðrum, Muninn frá Sand- gerði, skipstjóri Guðni Jónsson, 49 þús. lítrar í 91 róðri og Freyja frá Garði, skipstjóri Harald- ur Kristjánsson, afli 48V2 þús. lítrar lifrar í 94 róðrum. Skipstjórinn á Víði, Garðar Guðmundsson frá Rafnkelsstöðum í Garði, er 27 ára að aldri. Hann er sonur Guðmundar Jónssonar útgerðarmanns á Rafnkelsstöðum, sem á tvo af hæstu bátunum, Víði og Freyju. Þorsteinn Þórðarson, skipstjióri á Faxa, sem nú varð annar í röðinni en afla- kóngur í fyrra, er fóstursonur Þorbergs Guð- mundssonar á Jaðri, alþekkts afla- og dugnaðar- manns, sem um langt skeið var í hópi allra fremstu skipstjóra í Sandgerði. Þorsteinn er 32 ára gamall. Sýna þeir það Garðar og Þorsteinn, og fleiri hinna ungu skipstjóra, hve myndarlega ungu mennirnir taka við merki þeirra, sem eldri eru. Verðmæti aflans. Eins og fyrr var getið, eru nú í Sandgerði tvö stór hraðfrystihús. Annað þeirra á h.f. Mið- nes, en h.f. Garður hitt. Frystihús þessi geta hvort um sig framleitt 12—15 smálestir af fiskflökum á sólarhring hverjum. Mun því láta nærri að bæði húsin séu fær um að taka dag- lega við 70 smál. af hausuðum fiski, þegar af- kastamöguleikarnir eru fullnýttir. Auðvelt er að sanna það með ljósum og óvé- fengjanlegum tölum, að verðmæti afla þess, sem í land kemur árlega í Sandgerði, nemur mjög miklum upphæðum á íslenzkan mælikvarða. Mun óhætt að fullyrða, að ekkert þorp með jafn- lága íbúatölu geti státað af svipaðri framleiðslu og Sandgerði. Þess ber þó og að sjálfsögðu að gæta, að fjöldi aðkominna' báta róa þaðan og stórir hópar aðkomufólks vinna þar á vertíð- inni. Til að finna þeim orðum nokkurn stað, að Sandgerði sé í röð mestu fiskiþorpa landsins, skal bent hér á nokkrar tölur frá árinu 1944. Barnaskólahúsið í Sandgerði. VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.