Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Síða 73
Vr vélarúminu
Eftirfarandi atvik kom fyrir á dönsku dieselmótorskipi
með 2 Burmeister & Wain vélar 2200 IHK. Vélarnar
voru fjórgengis Trunk-vélar með þrýstiloftsýringu. Seg-
ist vélstjóranum svo frá:
„Dag nokkurn er skipið var á fullri ferð fór strokkur
nr. 5 á SB vél að „skjóta“ og það allkröftuglega. „Skot-
in“ endurtóku sig nokkrum sinnum, en svo varð þeirra
ekki vart síðan þann dag. Það var nú álitið að orsökin
mundi liggja í því, að. eldsneytislokinn væri lekur, og
þyrfti að skipta lionum við fyrstu hentugleika.
En „skotin" endurtóku sig daginn eftir og nóttina
þar á eftir og áframhaldandi með mism. millibili.
Eldsneytislokinn var nú tekinn upp og bullutoppurinn
eftirlitinn, ef vera kynni að smurolía hefði safnast fyr-
ir, en lokinn var þéttur og enginn vottur af bruna-
leifum. Olíudælan var einnig í góðu lagi. Vélstjórarnir
höfðu nú vakandi auga með þessum strokk, en það
skeði — eins og oft vill verða — ekki neitt þegar þess
er vænst. En „skotin" héldu áfram endrum og sinnum,
þó að alltaf gengi að öðru leyti vel.
Allt var nú skoðað og prófað, og margskonar ágisk-
anir voru uppi um orsökina, en enginn hitti á það rétta,
fyrr en eftir f jórar vikur.
Smám saman var þetta atriði rannsakað frá öllum
hliðum og kom mönnum þá í hug sá möguleiki, að kamb-
-arinn sem opnaði oliudæluna fyrir afturábak mundi
vegna slits á gangskiptitækinu geta gripið hjólið á elds-
neytisdæluarminum, og með því gefið olíu snemma á
nokkur hörg-ull á smáum kaupskipum. Á hinn
bóginn virðist vera meira en nóg af 6000—10000
smálesta skipum. Sennilegt má telja, að innan
skamms tíma, e. t. v. fárra mánaða, verði fram-
boð á slíkum skipum miklu meira en eftirspurn-
in. Má jafnvel búast við að sumar tegundir kaup-
skipa, t. a. m. Liberty-skipin svonefndu, verði
að miklu leyti lögð til hliðar. Ennfremur benda
líkur til að óþarflega mikið verði brátt af tank-
skipum.
Tölur þær, sem liér hafa verið nefndar, tala
allskýru máli. Athyglisverðust er sú staðreynd,
að nú eiga Bandaríkin fullan helming alls kaup-
skipaflota heimsins, eða um 39 millj. smálesta..
Að öllum líkindum þurfa Bandaríkin sjálf ekki
að nota meira en 10 til 13 milljón smál. til eigin
þarfa, og yrðu þó 5 millj. smál. af þeim flota í
siglingum til annara landa. Með öðrum orðum:
Bandaríkin munu hafa yfir að ráða a. m. k. 25
millj. smálesta skipa, sem þau hafa enga þörf
fyrir. Hvað verður um allan þann flota?
samanþr. slaginu, en hinar kröftugu sprengingar gáfu
einmitt slíkt til kynna.
Einn vélstjóranna tók sér nú fyrir hendur að rann-
saka þetta sérstaklega og sat hverja stund sem hann
gat við komið framan við strokkinn. Eftir nokkra daga
fékk hann loksins laun iðju sinnar. Strokkurinn „skaut“
þá svo kröftulega, að lokið virtist ætla af honum og
um leið uppgötvaði vélstjórinn leyndarmálið.
Kambskífa fyrir eldsneytisdælu og eldsneytisdæluhjól.
(a) Fram-kambskífa. b sívalt fjarlægðarstykki: c Aft-
ur-kambskífa. d sívalt fjarlægðarstykki laust og gengið
út. e eldsneytisdæluhjól.
Eins og kunnugt er, er kambur eldsneytisdælunnar á
þessari vélategund gerður úr tveimur helmingum, sem
spenntir eru fastir með skrúfum. En til þess að stýra
þessum tveimur helmingum er þeim megin sem kamb-
urinn er, fellt inn í hann sívalt fjarlægðarstykki eins og
„nót“ (sjá myndin). Hafði þetta litla stykki losnað í
aftur-kambinum og við það hreyfðist það út úr gat-
inu. Gat það þá „fiskað“ hjólið á armi eldsneytis-
dælunnar. Á þennan hátt fékk strokkurinn olíugjöf
snemma á samanþr. slaginu og síðar sinn venjulega
skamt þegar fram-kamburinn hreyfði dæluna. Þetta
var þá orsökin til þessara heiftarlegu sprenginga í
strokknum. Þegar „skotin" höfðu endurtekið sig tvisvar
eða þrisvar sinnum, ýttist fjarlægðarstykkið inn aftur,
og allt gekk þá eins og vera átti. Við athugun ltom þá
einnig í ljós, að brúnin á stykkinu var slitin af. Þegar
búið var að festa stykkinu, gekk allt vel, og „skot“ hafa
ekki komið fyrir í þeirri vél síðan.
Þetta atvik er í rauninni ekki svo mikils vert, en af
því að ástæðan var svo lítilfjörleg, en erfitt eftir henni
að komast, geta línur þessar ef til vill sparað vélstjór-
um sem lenda í svipuðu ónauðsynleg heilabrot.
Eftir „Tidskrift for Maskinvæsen“
H. J.
VÍKINGUR
343