Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 37
Blaðað í fundargerð fyrsta þingsins
Þaö sem stendur hér fyrir
ofan er úrdráttur úr þingfrétt-
um frá fyrsta þingi FFSÍ, sem
Hallgrimur Jónsson, formaður
bráðabirðastjórnarinnar, sem
sat frá stofnfundi til fyrsta
þingsins, lagði fyrir fyrsta
stjórnarfund eftir þing og var
ákveðiö þar að þirta úrdrátt-
inn í útvarpi og öllum dag-
blöðum bæjarins. Við lestur
gagna um undirbúning og
störf þingsins 1937 vekja
nokkur atriði sérstaka athygli.
Að vísu er auðvitað aö slik
gögn gefa ekki alla myndina,
vegna þess að aldrei er allt
bókað og þar vantar hina per-
sónulegu mynd mannanna
sem í málunum snúast. Eigi
að siður gefa bókanir vissar
visbendingar, sem hægt er að
byggja álitá.
Síðbúið fundarboð
í fyrsta lagi vekur athygli
hvað fundartimi og staður
voru ákveðnir með stuttum
fyrirvara. I fundargerð bráða-
birðastjórnarinnar frá 31. mai
1937 segir orðrétt: „Fundar-
efni var að ákveða hvaða dag
og stað hið fyrirhugaða þing
skyldi haldið og að öðru leyti
að ræða tilhögun þingsins“.
Siðan er ákveðið að setja
bingið aðeins tveim dögum
siðar og þess er getið i fund-
srgerðinni að húsið fyrir
Þinghaldið hafi verði „fengið
strax á fundinum". Á sama
fundi var samþykkt dagskrá i
17 liðum.
Vafalaust hafa stjórnar-
menn verið búnir að ræða sín
ámilli um þessi mál og einnig
við stjórnir félaganna sem að
sambandinu stóðu. Þannig
hefur legið í loftinu að þingiö
skyldi háðum þetta leyti og
um hvað það skyldi fjalla. Á
hinn bóginn lá ekki fyrir form-
le9 ákvörðun fyrr en með
|Veggja daga fyrirvara og því
'f'll timi til stefnu að boða
þingið og kynna fulltrúum
dagskrá þess.
„þarsem nú eroröið
áliöiö nætur...“
í öðru lagi virðist stjórnin
ekki hafa ætlað þinginu lang-
an starfstima, liklega aðeins
tvö kvöld. Þetta tvennt vekur
hugmyndir um að stjórnin hafi
ekki búist við miklum þing-
störfum, sem gæti stafað af
örðu tveggja: að hún hafi talið
sig hafa undirbúið mál svo vel
að þau þyrfti litið að ræða,
eða að hún hefur hreinlega
vanmetið fulltrúana sem til
þingsins komu í umboði fé-
laga sinna. Sennilega eru
báðir þessir þættir þó sam-
verkandi.
Hallgrímur Jónsson formaður
bráðabyrgðastjórnar setti fyrsta
þingið.
Á daginn kom að fulltrúarnir
voru komnir til þings til aö
vinna af fullri alúð og alvöru
og þingtiminn var allt of stutt-
ur til að ná þeim árangri sem
menn helst vildu ná. Er
aðeins þrjú mál höföu veriö
afgreidd og byrjað á því fjórða
á öðrum degi þingsins, var
fundi frestað og segir um það
i þingtíðindum: „Þar sem orð-
iö var áliðið nætur, var fundi
frestað og næsti fundur
ákveðinn mánudaginn 7. júní
kl. 20.00 á sama stað“.
Var þessi frestur svona
langur vegna hinnar miklu
vinnu, sem þurfti til þess að
afgreiða málin úr nefndum“.
Eitt kvöld til viðbótar dugði
ekki, og kl. tvö um nóttina var
fundi enn frestað til kl. átta
næsta kvöld, en á þeim fundi
tókst að Ijúka þingstörfum.
Þingsetning
Vikjum nú að gangi þings-
ins. Hallgrimur Jónsson for-
maður bráðabirðastjórnar-
innar setti þingið klukkan
20.00 miðvikudaginn 2. júni
1937 í Oddfellowhúsinu i
Reykjavik. Þorgrímur Sveins-
son frá Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Kára úr Hafn-
arfirði var kosinn fundarstjóri,
og gegndi hann þvi starfi
reyndar á fimm fyrstu þingum
FFSÍ. Ritarar voru Steindór
Árnason og Guömundur H.
Oddsson. Kjörbréfanefnd
fann ekkert athugavert við
kjörbréf fulltrúanna og var
þeim þá skipt í fimm þing-
nefndir: Dagskránefnd, fjár-
hagsnefnd, atvinnunefnd,
laga- og menntamálanefnd
og allsherjarnefnd.
Fyrir þinginu lá þessi
dagskrá:
1. Þingsetning.
2. Kosning fundarstjóra,
ritara og varamanna.
3. Kosin kjörbréfanefnd og
hún látin starfa.
4. Upptaka væntanlegra
félaga.
5. Kosning fastra nefnda.
6. Lög sambandsins.
7. Skólamál.
8. Siglingalögin.
9. Launakjör yfirmanna á
fiskiflotanum.
10. Öryggi sjófarenda.
11. Útgáfa blaðs eða tíma-
rits fyrir sjómenn.
Eitt kvöld til
viöbótar dugöi
ekki, og kl. tvö um
nóttina var fundi
enn frestaö til kl.
átta næsta kvöld,
en á þeim fundi
tókst aö Ijúka
þingstörfum.
VÍKINGUR 37