Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 208
Utan úp hcimi
Sigurbjörn
Guömundsson
stýrimaöur
208 VÍKINGUR
Níu skemmtiferðaskip
í smíðum
Níu skemmtiferöaskip er
nú i smíöum. Átta þeirra eru
yfir 35000 brúttótonn. Klost-
er grúppan á tvö þeirra, og
Royal Caribbean Cruise Line
eitt, Carnival Cruise Line tvö
skip, sömuleiðis Sitmar.
Farþegar og farmur á
sama kili; er þróunin
að snúast við?
Ýmsir útgerðarmenn ihuga
nú að sameina farþegaflutn-
inga og gáma- og farartækja
flutninga. Ivaran Lines, sem
siglir milli Norður og Suður
Ameríku er með gámaskip i
smíðum, sem jafnframt eiga
að hafa rými fyrir 120 far-
þega. Finnar kynna nú „Roll-on
Roll-off“ skip er jafnframt
flytur 190 farþega og 550
fólksbílaeiningar, eða vöru-
bifreiðar. Einnig er hægt að
flytja gáma.
Verður smáskipum
(,,Coasters“) lagt upp
um skemmri tíma
reglubundið?
Eftirtaldar þjóðir ihuga nú
að leggja kerfisbundið smá-
skipum sinum um takmark-
aðan tima hverju sinni. Skipin
sem liggja fá ákveðna
greiðslu fyrir legudag. Orsök-
in er of mikið framboð á
smáskipamarkaðnum og si-
felld undirboð á farmgjöldum.
Eftirtaldar þjóði ihuga nú
þetta af fullri alvöru:
Sonur Klosters
stofnar félag fyrir
útgerð
skemmtiferðaskipa
Eplið fellur ekki fjarri eik-
inni, segir máltækið. Peter
Kloster sonur Knuts Utsteins
Kloster, tæplega þrítugur að
aldri, er nú ásamt fleirum að
panta skemmtiferöaskip,
stækkaða útgáfu af hinum
vinsælu „Sea Goddess"
skipum. Skipið á að taka 550
farþega og stærðin 40.000
brúttótonn. íburður og þæg-
indi verða mikil. Skip svipaðr-
ar stærðar eru yfirleitt með
1500—1800 farþega.
Færeyingar tapa á
nauðungaruppboði
Tveir nýlegir gastankarar
frá Transmar i Þórshöfn voru
nýlega boðnir upp á nauð-
ungaruppboöi í Rotterdam.
Skipin kostuðu ný 150 millj.
d.kr. samanlagt. Á nauðung-
aruppboðinu seldust þau á
100 millj. d.kr.. Tap Færey-
inganna varð mjög mikið og
hefur félagið verið leyst upp.
Skipin voru byggð árin 1984
og 1985.
Skráning kaupskipa
undir fána Panama
slær öll met
Skipaskráning lýðveldisins
Panama er nú 72 ára gömul. I
dag eru skráðar 52.9 milljónir
brúttótonna undir fána þess,
og skipafjöldinn er 11970
skip. í tonnatölu, er Panama
næst á eftir Liberíu, en skipa-
fjöldi Panamamanna er miklu
meiri, eða nær tvöfaldur að
tölu.
Eins dauði er annars
brauð
Borpallar seljast nú á
spottpris, og nokkurra ára
gamlir pallar á 1 —5% af
byggingarkostnaði nýrra
palla. A.P. Möller gerði
„kúpp“ og keypti „Glomar
Arctic 11 “ á 20 milljónir doll-
ara. Byggingarkostnaðurinn
var 110 milljónir dollarar og
var borpallurinn fullbyggður í
nóvember 1986.
Vestur-Þýskaland 735 skip 292.170 brt. 1.077.802 dw.
Holland 267 “ 295.659 “ 528.392“
Belgía 6“ 5.333 “ 10.512“
Danmörk 323“ 175.924“ 354.270“
Bretland 264 “ 159.555“ 285.629 “
Finnland 54 “ 29.000 “ (vantar)