Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 116
Gísli
Eiríksson
formaöur
Vélstjórafélags
Vestmannaeyja
Vélstjórafélag
Vestmannaeyja
116 VÍKINGUR
Frá forystunni
Þaö var áriö 1970 sem mikil umræöa hófst í
Vélstjórafél. Vestmannaeyja um stöðu félags-
ins og vélstjóra almennt innan ASI og 22. nóv.
þaö ár mættu á fund i félaginu fulltrúar frá FFSÍ
og Sjómannasambandinu til aö skýra hags-
muna- og baráttumál sinna sambanda. Sitt-
hvaö sýndist félögum um hvoru sambandinu
skyldi fylgja og urðu talsverð átök í félaginu
vegna þessa, en á aöalfundi 27. feb. 1972 var
samþ. úrsögn úr ASI að undangenginni alls-
herjar atkvæöagreiöslu og 16. feb. 1975 var
samþykkt að ganga i FFSÍ, vó þar eflaust
þyngst að menn töldu aö FFSÍ mundi frekar
beita sér i menntunarmálum vélstjóra svo og
aö auðveldara væri að ná fram ýmsum sér-
hagsmunamálum þeirra innan sambands yfir-
manna því talsverð hætta væri á því aö fagfé-
lag mundi einangrast í Sjómannasambandinu.
Og í dag held ég aö allir séu á einu máli um aö
þetta hafi verið rétt ákvörðun. Samskipti FFS’l
og Vélstjórafélags Vestmannaeyja hafa veriö
meö ágætum þó aö menn hafi ekki alltaf verið
sammála. Á þingum sambandsins hefur veriö
tekist á um hin ýmsu mál og ber þar einna
hæst fyrir utan kjaramálin öryggismál sem yfir-
leitt eru einn stærsti málaflokkurinn. Þar hefur
Vélstjórafélagiö beitt sér talsvert m.a. i gegn-
um Fiskideild Vestmannaeyja. Félagið hefur
reynt aö beita sér nokkuö i menntamálum
stéttarinnar, t.d. til að reyna aö stemma stigu
við undanþágum var þaö fyrst til aö taka
ákveðiö gjald af meðmælum fyrir þær sem
rann í sérstakan sjóð og var notað til að styrkja
menn til náms. Þetta hefur hin rikisskipaða
undanþágunefnd nú tekiö upp. Og talandi um
menntamál þá er leitt til þess aö vita þegar
sambandið reyndi aö lúra á frumvarpi til laga
um atvinnuréttindi vélstjóra á sinum tima og
félagið varö að fá þaö eftir öðrum leiðum og
þeita sömu aöferöum til aö koma skoðunum
sínum á framfæri viö þá nefnd alþingis sem um
þaö fjallaði, en þar hótaöi fulltrúi FFS’l aö
ganga af nefndarfundi þegar formaður félags-
ins mætti fyrir nefndina. Flverra hagsmuna var
FFSI að gæta þá?
Ein af stærstu kjarabótum sem Farmanna-
sambandiö hefur náö fyrir sjómenn er lækkun
lífeyrisaldurs í 60 ár, en, NB, þá gleymdust þeir
sjómenn sem voru í öörum sjóöum en Lífeyris-
sjóö sjómanna, eða eru einhverjar aðrar
ástæöur þar aö baki? Vélstjórafélag Vest-
mannaeyja beitti sér einna haröast fyrir því að
þetta næöi fram aö ganga í Lífeyrissjóði Vest-
mannaeyinga, þó svo aö aðrir hafi viljað eigna
sér þaö, enda skiptir þaö ekki máli, aðalatriðið
er að þaö haföist og L.V. er einn af fáum ef ekki
eini sjóöurinn þar sem sjómenn njóta sömu
réttinda hvaö þetta varðar og i Lífeyrissjóö sjó-
manna. Þessu þarf að fylgja eftir þannig að
allir sjómenn sitji viö sama borö án tillits til
búsetu eða sjóðsaðildar.
Á tveim undanförnum þingum hefur Vél-
stjórarfél. Vestmannaeyja átt þátt í tillögu um
aö komið veröi á fót starfi einskonar upplýs-
ingafulltrúa innan sambandsins sem kynnti
störf þess og svaraöi áróöri og oft vanþekk-
ingu á störfum sjómannsins. Við sjáum þetta
oftast bæöi frá bændum og kennurum þegar
einhver vogar sér að gagnrýna þá. Þetta mál
máekki daga uppi.
Ekki er hægt aö rita grein í málgagn sam-
bandsins Víkinginn án þess aö minnast á einn
Ijótan galla sem það annars ágæta blað hefur,
en þaö er þegar einhver skrifar gagnrýna grein
á forystu einhvers félags; þá skal næstum
alltaf birtast svar i sama blaði þannig aö áhrif
greinarinnar fá aldrei aö koma fram.
Vélstjórafélag Vestmannaeyja hefur ekki á
aö skipa neinum launuðum starfsmanni heldur
er allt þess starf unnið i sjálfboöavinnu eins og
hjá svo mörgum öörum félögum, sem oft háir
starfi þess, sérstaklega þegar boöaö er til
mikilvægra funda innan sambandsins i miðri
viku eins og t.d. síðustu formannaráöstefnu.
Félagiö á nú einn fulltrúa í stjórn sambandsins
sem er Matthias Nóason.
Samtök eins og FFSÍ hljóta eðli síns vegna
aö vera ihaldssöm, samt er þaö með okkur
eins og fleiri félög og sambönd aö viö verðum
að fylgja hjartslættinum í þjóðfélaginu á hverj-
um tíma og þurfum þvi aö vera í stööugri nafla-
skoðun. I gegnum árin viröist hafa tekist bæri-
lega að samrýma skoðanir hinna ýmsu félaga
sem aö sambandinu standa, þó að ekki hafi
alltaf allir fengiö allt sitt fram, en getur verið aö
einmitt nú á þessum merku timamótum þurfi
aö framkvæma eina slika?
Engu aö síður eru góöu málin sem náð hafa
fram aö ganga vegna tilurðar FFS’l eru fleiri og
stærri en hin, og vil ég fyrir hönd Vélstjórar-
félags Vestmannaeyja færa FFSÍ baráttu- og
árnaöaróskir.
Gísli Sig. Eiriksson
vélfræöingur.