Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 62
Skólamálið
Gömul mynd af
kennslustund i vélskól-
anum.
... ekki þótti
viöeigandi aö
hefja kennslu í
skólanum án þess
aö einhverskonar
vígsla færi fram
áöur.
62 VÍKINGUR
Fram kom tillaga frá Henrý
Hálfdánarsyni þess efnis að
þingið skoraði á ríkisstjórnina
að flytja minnismerki Leifs
heppna á Rauðarárholtið á
hinn heppilegasta stað í ná-
munda við Sjómannaskól-
ann. Þetta er i fyrsta sinn
sem sá staður er nefndur á
nafn i fundargerðum þinga
FFSÍ sem staður fyrir Sjó-
mannaskólann. Eftir allt sem
á undan var gengið í staðar-
vali, hefur ný ákvörðun í þvi
efni greinilega verið tekin á
öðrum vettvangi en þingum
FFSÍ. En þyggingin var hafin
og þaö var fyrir mestu.
„Þótteigi gangi eins
fljótt og gjört var ráð
fyrir í fyrra“
Næstu ár hefst bókun um
skólann svona: „Um skólann
er þaö að segja aö þar miöar
nú jafnt og þétt áfram, enda
þótt eigi gangi eins fljótt og
gjört var ráö fyrir í fyrra". Þaö
sem einkum tafði var verkfall,
sumarleyfi og að byggingar-
efni kom ekki á réttum tima til
landsins. Þá er þess getið að
i allt sé búið að veita 2,5
milljónum króna til skólans
og sagt frá loforði um 1,5
milljónir til viðbótar á fjárlög-
um ársins 1945, „en nú er
stjórninni tjáö aö ríkisstjórn
eöa fjárveitinganefnd hafi
dregiö þar af 500.000 kr. “.
Á 9. þingi FFSÍ árið 1945 er
þetta bókað á fyrsta degi
þingsins, 9. októþer, kafli úr
skýrslu stjórnar:
„Eins og menn hafa heyrt,
stendur til aö skólinn veröi
vígöur laugardaginn 13. okt.,
meö allmikilli viöhöfn. Enda
þótt hann sé ekki nærrí þvi
fullgjör. Þetta veröur aö sjálf-
sögöu og samkvæmt þvi, er til
hefur talast í byggingarnefnd-
inni, ekki fullnaöarvigsla. Hún
fer þá fyrst fram, er hann verö-
ur fullgjör og allar deildir hans
geta tekiö til starfa. En ekki
þótti viöeigandi aö hefja
kennslu ískólanum án þess aö
einhverskonar vígsla færi fram
áöur“.
Með öðrum blæ
Hér mætti setja amen eftir
efninu og rekja þetta fyrsta
baráttumál FFSI ekki lengra.
Þó er langt frá að því sé lokið
enn, vegna þess að stöðugt
er háð barátta við fjárveiting-
arvaldið um peninga til að
búa skólann svo kennslu-
gögnum að hann svari alltaf
kröfum tímans. En baráttu-
málin i sambandi við skólann
fá á sig svolítið annan blæ
eftir að þessum áfanga er
náð, sem réttlætir aö hér sé
látið staðar numið. I lokin
skulum viö lita örlitið á kafla
úr fundargerð þessa sama
þings, 9. þingsins.
Úr skýrslu stjórnar:
„Vegna þess aö Gagn-
fræöaskóli Reykjavíkur fær 2
stofur eöa 3 á annarri hæö, þá
gekk greiöar aö fá fé til bygg-
ingarinnar".
Úrtillögu:
„Þá leyfir 9. þing FFSÍ sér
aö mótmæla því kröftuglega
aö nemendum úr öörum
óskyldum skólum veröi hleypt
inn í Sjómannaskólann, þegar
vitaö er aö 75 mótorvélstjóra-
nemendur veröa aö hafast viö í
setuliösbröggum niöur viö
Skúlagötu".
Samþykkt tillaga um stjórn
Sjómannaskólans:
„Skólanum sé stjórnaö af
skólaráöi, er samanstandi af
öllum skólastjórum skólanna.
Þeir velji sér formann úr sínum
hópi, og sé hann valinn til eins
árs í senn. Starf formanns og
skólaráös veröur, aö sjá um
allan rekstur Sjómannaskól-
ans, meö svipuöum hætti og
Háskóla íslands. Síöan ræöur
skólaráð mann, er sér um allt
reikningshald skólans og út-
borganir".