Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 144
FFSÍ Árnaö heilla
■
144 VÍKINGUR
Á merkisafmælum er staldraö viö og gjarna
rifjuö upp liöin tíö. 50 ára afmæli Farmanna- og
fiskimannasambands Islands gefur mér undirrit-
uöum tilefni til aö hugsa til baka og rifja upp
minningar af þessum vettvangi þótt ekki hafi ég
sjáifur veriö þar beinn þátttakandi i starfi. Hins
vegar hef ég lengi haft talsverö kynni af sam-
bandinu og forystumönnum þess, fyrst vegna
starfa fööur míns, Henrys A. Hálfdanssonar, en
hann mun hafa setiö í stjórn FFSÍ lengur en
nokkur annar, og svo vegna góö samstarfs sem
ég hef sjálfur átt viö forystumenn sambandsins
undanfarin ár. Þaö, sem mér finnst athyglisverö-
ast, þegar litiö er yfir sögu sambandsins, er
hversu mörg almenn velferöar- og þjóöþrifamál
sambandiö hefur látiö til sín taka og oft haft for-
ystu um, sem ekki flokkuðust undir kjara- og
hagsmunamál í þröngum skilningi. Sýnir þaö
Ijóslega, aö innan FFSÍ hafa löngum starfaö
stórhuga og víösýnir menn. Megi svo veröa
áfram um alla framtiö.
Slysavarnafélag Islands hlýtur á þessum tíma-
mótum aö minnast og þakka fyrir sérstaklega
gott samstarf viö FFSÍ. Allt frá upphafi til þessa
dags hafa veriö mikil og nái tengsl milli þessara
tveggja hreyfinga. Margir forystumenn FFSÍ
hafa jafnframt veriö ótrauöir baráttumenn fyrir
slysavörnum og starfaö mikið á vettvangi SVFÍ.
Rétt er aö nefna hér, aö þrír foresta SVFÍ á ára-
bilinu 1932 — 1960 voru skipstjórar, sem voru
virkir í starfi FFSÍ og aöildarfélaga þess, þ.e.
Þorsteinn Þorsteinsson, Friörik Ólafsson og
Guöþjartur Ólafsson. Loftskeytamenn komu
einnig talsvert viö sögu á báöum stööum og vil
ég t.d. nefna Friörik Halldórsson, Geir Ólafsson
og HenryA. Hálfdansson, sem var skrifstofu- og
framkvæmdastjóri SVFÍ frá 1943 til dauöadags
áriö 1972. Fer ekki milli mála, aö starf þessara
manna allra innan beggja hreyfinganna hefur
haft sín áhrif og leitt til aukinna tengsla og sam-
vinnu.
Þaö leiöir og af sjálfu sér, aö öryggismál sjó-
manna hafa jafnan veriö mikiö til umræöu hjá
FFSÍ, svo sem glöggt má sjá af ályktunum þinga
þess frá upphafi, svo og meö lestri málgagns
sambandsins, Sjómannablaösins Víkings. Mörg
þörf slysavarna- og öryggismál hafa einmitt átt
Haraldur Henrýsson
forseti
Slysavarnafél. íslands
upptök sín í þessari umræöu. SVFÍog FFSÍ hafa i
sameiningu barist fyrir framgangi margra góöra
mála, sem betur fer oft meö góöum árangri.
Mætti nefna mörg dæmi um sameiginleg bar-
áttumál, svo sem varöandi bættan björgunar-
búnaö, úrbætur í skipaeftirliti og vitamálum,
markvissa rannsóknir sjóslysa og aukna fræöslu
meöal sjómanna um öryggismál.
Varðandi síöast greinda máliö, öryggisfræöslu
sjómanna, vil ég sérstaklega þakka þaö sam-
starf, sem viö höfum átt á þeim vettvangi á síö-
ustu árum. Aö því hefur veriö unniö aö koma á
fót slysavarnaskóla sjómanna, þar sem gefinn
veröi kostur á alhliöa og staögóöri fræöslu um
helstu grundvallaratriöi varöandi slysavarnir og
möguleika til björgunar á sjó. Er markmiöiö aö
hún nái til allra sjómanna, bæöi yfirmanna og
undirmanna, og aö í framtíöinni veröi enginn
ráöinn í skipsrúm án þess aö hafa fengiö slíka
fræöslu. SVFÍ hefur veriö falin umsjón þessa
verkefnis og hafa fengist allgóöar fjárveitingar
til þess á síöasta og þessu ári. Hefur þetta starf
sífellt veriö aö aukast og á þessu ári er ætlunin
aö halda námskeiö um allt land, er nái til vel á
annaö þúsund sjómanna.