Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 55
viiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiimiii|i|*i|11*111111^
ur í álfur, eftir landslagi og legu, og síðan er álfunum skipt í
lönd eftir þjóðerni, tungu og stjórnmálum. Alveg á svipaðan
hátt skipta dýrafræðingar jörðinni niður í svæði, sem við getum
kallað ríki, eftir dýralífinu, þannig að öll þau lönd, eða allir
þeir staðir, þar sem dýralífið er nokkurn veginn eins í aðaldrátt-
um, teljast ríki, þótt mikill breytileiki sé annars að mörgu leyti.
Reyndar er alveg ómögulegt að draga skarpa marklínu á milli
ríkjanna, af þeirri einföldu ástæðu að hún er ekki til. Dýralífið
í hverju ríki hefir þó vanalega nokkra megindrætti sameigin-
lega, en á hinn bóginn er oft mjög auðug f jölbreytni og mismun-
ur á mismunandi stöðum.
Dýrategundunum, í hvaða ríki, sem vera skal, má
skipta niður í þrjá flokka, eftir því hvernig á þeim stend-
ur. í fyrsta lagi eru þær tegundir, sem hafa myndast innan
vébanda ríkisins, þær eru kallaðar autochtomar tegundir eða
heimategundir. í öðru lagi eru þær tegundir, sem eru komnar frá
öðrum stöðum, og hafa myndast annars staðar, en þær nefnast
heterochtonar tegundir, eða aðfengnar tegundir. Og loks eru
þau dýr, sem fyr hafa verið útbreidd um stórt svæði, en nú eru
að mestu úr sögunni, þær kallast relinct-tegundir. Dýralífið í ein-
hverju ríki getur því eftir þessu verið af þrennu bergi brotið, að
því er uppruna snertir, en auk þess geta tegundirnar verið mjög
mismunandi gamlar, það er að segja, myndaðar á mjög mis-
jöfnum tíma eða tímabilum í jarðsögunni.
Við skulum nú virða fyrir okkur hvernig heiminum er skipt í
ríki, eftir útbreiðslu dýrategundanna, seinna skal þess verða
minnst, hver eru takmörk þessara ríkja. Aðalríkin eru fjögur,
og þau eru þessi: í fyrsta lagi er Notogea, eða EyjaríkiS, sem
tekur yfir meginlendi Ástralíu og eyjarnar í grend. í öðru lagi er
Neogea, eða Nýja ríkið, sem nær yfir Suður-Ameríku og Mið-
Ameríku. f þriðja lagi er Gamla ríkið, en til þess telst mestöll
Norður-Ameríka, öll Evrópa, öll Asía og öll Afríka, og í fjórða
lagi er Antarctica, eða Suðurpólsríkið, sem nær yfir löndin í
kring um Suðurheimsskautið. Langstærsta rílcið af þessum fjór-
um er Gamla ríkið, enda skiptist það í þrjú svæði, nefnilega
afríska svæðið eða Etiopica, sem grípur yfir alla Afríku fyrir
sunnan Sahara, að meðtaldri eyjunni Madagaskar, og ennfremur
suðurhluta Arabíu. Annað svæðið er Indland allt, ásamt suðurhluta
Kína og nokkrum eyjum, þar á meðal Celebes, þetta getum við
nefnt Indverska svæðið. Loks er þriðja svæðið, eða Norður-svæðið,