Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 30
74 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN '.immmiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiimiimiiiiiiiiimiiimmiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiii sem er sérkennileg fyrir Afríku, er gullmoldvarpan, það er frek- ar lítið dýr, gulgljáandi á lit, og minnir í mörgu á moldvörpur, enda þótt það sé ekkert skylt þeim. Nú eru gullmoldvörpur ein- ungis til í Afríku fyrir sunnan Miðjarðarlínu, en á Nýju öldinni hafa þær einnig verið í Norður-Ameríku. Á eyðimerkum Suður- og Austur-Afríku er lítil skordýraæta, sem nefnd er stökksnjáld- urmús, hún er með mjög langa trjónu, og langa afturfætur, og getur tekið feikna mikil stökk. Af skordýraætum eru þarna líka ýmsar tegundir, sem einnig eru til um aðra hluta Gamla ríkisins, til dæmis 1 Evrópu, en þar mætti nefna snjáldurmýs, broddgelti og moldvörpur. 10. mynd. Jarðsvín (Oryctoropus capensis), um 2 metrar á lengd. Einn flokkur af tannleysingjum, hin svonefndu jarðsvín, eru einungis til í Afríku.Annars eru tannleysingjar einungis til í Suð- ur-Ameríku, og á Indlandi, eins og við munum, og um það eru mjög skiptar skoðanir meðal dýrafræðinga, hvort skoða skuli alla tannleysingja í heiminum sem einn skyldleikaflokk, eða hvort skipta skuli þeim í tvo, tannleysingjana í gamla heiminum annars vegar, og tannleysingjana í nýja heiminum hins vegar, eða hvort tannleysingjarnir þeir, sem kallast hreisturdýr, og eiga heima í Afríku og á Indlandi, skuli skoðast sem þriðji flokkurinn. Úr þessu er alveg ómögulegt að skera eins og nú standa sakir, vegna þess, að milliliðir á milli flokkanna, sem eru mjög ólíkir, hafa ekki ennþá fundist í jarðlögunum. Jarðsvínið er frekar stórt dýr, og mjög einkennilegt að útliti. Það er með löngum hala, sem það dregur á eftir sér, og skoltarnir dragast

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.