Andvari - 01.01.1944, Síða 74
70
Steingrímur Steinþórsson
ANDVABI
stafar öðrum þræði af skorti á verkafólki, en hins vegar af því,
að vöntun hefur verið á nauðsynlegu efni til verklegra fram-
kvæmda, s. s. efni til húsagerðar og vélum lil jarðvinnslu.
Þetta er landbúnaðinum stórkostlegt áfall, þvi að þörfin liefur
aldrei verið jafnbrýn og aðkallandi sem einmitt nú að auka
ræktun og gera aðrar umbætur, er til léttis og framleiðsluauka
mætti verða. Reynt hefur verið að bæta úr þessum erfiðleikum
með því að útvega vinnusparandi vélar og verkfæri. Þær til-
raunir hafa strandað ;ið nokkuru leyli á því, hve takmörkuð
íramleiðsla slíkra tækja er af styrjaldarástæðum. Þó hefur
heppnazt að ná i nokkrar skurðgröfur og eklci alllítið af drátt-
arvélum til jarðvinnslu, sem fullnægir þó á engan hátt þeirri
þörf, sem fyrir hendi er.
Annað áfall, sem landbúnaðurinn varð fyrir af völdum styrj-
aldarinnar, var það, að lielztu markaðslönd lokuðust fyrir
sumar af útflutningsvörum landbúnaðarins. Hefur þetta valdið
því, að ekki hefur náðst það verð fyrir þessar vörur, sein nægði
fyrir framleiðslukostnaði. Til þess að bæta þann halla, sem
bændur urðu fyrir af þessum ástæðum, varð því að greiða
verðuppbælur úr ríkissjóði á hinar útfluttu vörur. Síðan var sá
háttur upp tekinn að greiða niður verð landbúnaðarvara á inn-
lendum markaði til þess að halda framfærsluvisitölunni í skefj-
um. Hefur þetta þróazt í þá átt, að nú er opinber verðskráning
lögboðin á ölluin helztu framleiðsluvörum landbúnaðarins og
hreyfist verðið eftir ákveðinni vísitölu, sem vísitölunefnd land-
búnaðarins lagði grundvöll að sumarið 1943. Síðan er flókið
kerfi um niðurgreiðslur varanna á innlendum markaði frá'
hinu skráða vísitöluverði. Þetta er mjög þungt i vöfum og
iná teljast alger neyðarráðstöfun, sem gripið er lil á styrjaldar-
tímum. Verður það eitt af fyrstu og nauðsynlegustu verkefn-
um, sem þarf að leysa að styrjöldinni lokinni, að koma verð-
lagsmálum landbúnaðarvara á réttan og eðlilegan grundvöll,
þannig, að það vandræðaástand hverfi, sem nú er.
Þrátt fyrir þá erfiðleika, sem bændur hafa átt við að etja
styrjaldarárin hefur þó tekizt að halda landbúnaðarframleiðsl-
unni óskertri að mestu. Framleiðsla sumra afurða hefur vaxið,