Andvari - 01.01.1944, Side 88
84
Steingrímur Steinþórsson
ANDVARI
Ýmsir, sem rætt hafa um byggfSamálin í sambandi við nýbýli
og landnám, hafa að mínum dómi teigt það í öfgar sitt til
hvorrar hliðar, og er hvort tveggja jafnfávíslega.
Annars vegar eru þeir, sem telja sig verndara hinna dreifðir
byggða. Þeir segja, að ekkert býli megi fara í auðn. Það sé af-
sláttur og undanlátssemi við þá, sem vilji kasa alla þjóðina í
þéttbýli við sjóinn. Þá, sem jrannig tala, virðist vanta skiln-
ing á þeim viðfangseínum, sem leysa þarf í sambandi við bún-
aðarháttu nú. Á fyrstu öldum íslandsbyggðar voru býli reist
upp um heiðar og íjöll víðs vegar um land. Fólk undi á þess-
um stöðum og gat lifað sæmilegu lífi þar, meðan búskapar-
hættir voru þeir, að hvert bú var nokkurn veginn sjálfu sér nóg
um allar nauðsynjar. Nú er margt breytt í þessum efnum.
Hvert býli verður íramvegis að geta sótt jarðargróður á rækt-
að land. Býlin verða að hafa vegasamband, síina, rafmagn og
fleiri slík gæði, svo að fólk vilji og geti sinnt búskap. En tak-
mörk eru fyrir þvi, hvert vegir verða lagðir, hvar símalínur
settar og rafmagn leitt. Af þessu er eðlilegt, að eitthvað sneið-
ist af byggðum. Aðrir kenna algerlega hið gagnstæða i þessum
efnum. Þeir segja, að smábúskapur sá, er nú tíðkast, eigi eng-
an rétt á sér. Það eigi að færa byggðina saman þar sem skil-
yrðin sé bezt. Þar eigi svo að hafa stórrekstur. Skiptar munu
vera skoðanir þessara manna um það, bvers konar skipulag
skuli hafa um búreksturinn. Sumir munu vilja einkarekstur,
aðrir samvinnubúskap og enn aðrir ríkisrekstur. En sameigin-
ieg skoðun þessara manna er það, að byggðina eigi að draga
saman, jafnvel sníða af heil byggðarlög, sem færi í eyði. En
Jandbúnaður yrði síðan á sinn hátt rekinn á svipaðan hátt seni
togaraútgerð eða verksmiðjuiðnaður er starfræktur nú.
Þessi skoðun er að mínuin dómi röng og liættuleg, sé luig-
myndin sú, að allur sveitabúskapur slíuli steyptur í það inób
Það er tvímælalaust nauðsyn hverju þjóðfélagi, að nokkur hluti
þjóðarinnar fáist til þess að búa og starfa í dreifbýli. Menning-
arsaga allra þjóða sannar þetta og vor eigin elíki sízt. Hvernig
hefði farið fyrir þjóð vorri, ef hún hefði öll búið i borguin
og þorpum við sjávarsiðuna á umliðnum öJdum? Vér hefð-